Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1987, Qupperneq 17

Íþróttablaðið - 01.04.1987, Qupperneq 17
„SKÍRÐUR í HÖFUÐIÐ Á SYM MÍNUM“ ívar Webster landsliðsmaður í körfubolta í viðtali við íþróttablaðið. Texti og myndir: Kristján Kristjánsson. Þeir sem fylgst hafa með körfubolta hér á landi síðustu árin vita sennilega allir hver ívar Webster er. Hann er bandarískur að uppruna, svartur á hör- und og nokkuð yfir 2 metrar á hæð. ívar hóf ferilinn hér á landi hjá KR haustið 1979, fór þaðan til Borgarness sem þjálfari og leikmaður. Flutti síðan aftur í bæinn og lék með Haukum í Hafnarfirði í nokkur ár. Í haust fluttist hann norður yfir heiðar og gerðist þjálfari og leikmaður með 1. deildarliði Þórs á Akureyri. Þá hefur hann verið einn af máttarstólpum íslenska lands- liðsins eftir að hann fékk íslenskan rík- isborgararétt og varð löglegur með lið- inu. ívar Webster er giftur íslenskri konu Sigurbjörgu Halldórsdóttur og eiga þau tvö börn þau Pálma ívar 6 ára og Halldóru Janet 2 ára. En hvað var það nú sem varð til þess að hann kom til íslands að spila körfubolta? „Það var bandarískur umboðsmaður sem hafði samband við mig og spurði hvort ég hefði áhuga á því að leika körfubolta á íslandi. Mér þótti það alls ekki svo vitlaus hugmynd og sló til. Við komum hingað saman ég og Danny Shous, fyrir tilstuðlan þessa sama um- boðsmanns. Ég fór til KR en Danny til Ármanns. Um þetta leyti spilaði ég körfubolta með áhugamannaliði úti í Bandaríkjunum og hafði svo sem ekki frá miklu að hverfa. Umræddur um- boðsmaður var mikið í því að útvega íslenskum liðum leikmenn frá Banda- ríkjunum á þessum tíma og fékk sjálf- sagt dágóðan skilding fyrm" LÉK I HÁSKÓLALIÐI MEÐ LARRY BIRD — Spilaðir þú ekki körfubolta með einhverju háskólaliði? „Jú ég spilaði körfubolta með há- skólanum í Indiana, Indiana State University, í þrjú ár og stundaði nám því samfara. Kerfið í Bandaríkjunum er þannig að ef þú ert góður í íþróttum keppast skólarnir við að fá þig í nám og bjóða þér alls konar styrki um leið.“ — Voru einhverjir frægir kappar með þér í þessu skólaliði? „Já við spiluðum saman í tvö ár með þessu liði, ég og Larry Bird sem nú er atvinnumaður með Boston Celtics og er einn snjallasti leikmaðurinn í NBA deildinni í Bandaríkjunum í dag. Þarna voru einnig góðir spilarar sem komust síðar að hjá liðum í NBA deildinni. Það var svolítið skrýtið að þegar við Larry Bird hittumst fyrst hafði ég varla séð hvítan mann og hann varla augum litið svertingja. Við komum úr gerólíku umhverfi og í hverfinu sem Larry ólst upp í, voru t.d. Ku Klux Klan samtökin stofnuð. Þannig að svertingjar voru ekki hátt skrifaðir þar sem hann ólst upp. En við urðum strax miklir mátar og vorum m.a. herbergisfélagar eitt sumar. Þetta var virkilega skemmtileg- ur tími.“ — En ef við snúum okkur aftur að komu þinni hingað til lands. Þú fórst fyrst til KR en dvöl þín þar var frekar stutt, afhverju ? „Ég var hjá KR í tæpa tvo mánuði. 17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.