Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1987, Page 34

Íþróttablaðið - 01.04.1987, Page 34
Margar voru viti sínu fjær af hræðslu — rætt við Sigurð Hjörleifsson landsliðs- þjálfara kvenna í körfubolta. Þjálfari kvennalandsliða íslands í körfubolta - þ.e. A-landsliðsins og landsliðs skipað leikmönnum 19 ára og yngri er Sigurður Hjörleifsson. Sigurð- ur er flestum körfuknattleiksunnend- um að góðu kunnur því hann lék með Val í áraraðir og er einn af Hólmurun- um sem var í sigursæla liðinu undir stjórn Tims Dwyer. Sigurður er frá Hnífsdal á Snæfellsnesi en frá 14 ára aldri bjó hann í Stykkishólmi og lék hann körfubolta með Snæfelli þar til hann snéri suður á bóginn. Sigurður hefur fengist við þjálfun um nokkurra ára skeið og þjálfaði m.a. meistaraflokk Breiðabliks í þrjú ár, þar af eitt í 1. deild. Um þessar mundir þjálfar hann 2. og 3. flokk karla hjá KR ásamt því að sjá um fyrrgreind kvenna- landslið. Sigurður tók við þjálfun landsliðs kvenna skipað leikmönnum 19 ára og yngri í janúar síðastliðnum og var ráðinn til tveggja ára. Þegar hef- ur liðið farið í eina keppnisferð erlend- is en stúlkurnar öttu kappi við Skota en töpuðu báðum leikjunum með 30-40 stiga mun. Umræddir landsleikir voru fyrstu landsleikir íslands í körfu- knattleik kvenna í þessum aldursflokki. Framundan hjá þessu landsliði er Norðurlandamót í Noregi dagana 1.-3. maí næstkomandi og stefna stúlkurnar að þátttöku þar. „Um þessar mundir erum við að fara af stað með æfingar fyrir stúlkurnar," segir Sigurður Hjör- leifsson. „Ég verð líklega með 19 manna hóp í byrjun úr þeim sex kvennaliðum sem stunda körfubolta á suð-vestur horni landsins. Næstu þrjár vikurnar æfum við einu sinni til tvisvar sinnum í viku en að íslandsmótinu loknu verður æft fjórum sinnum. Nei, við gerum okkur ekki vonir um 34 að hljóta stig á Norðurlandamótinu því nágrannaþjóðirnar standa okkur miklu framar. Danir, Finnar og Svíar eru reyndar meðal bestu þjóða Evrópu í körfuknattleik kvenna. Tilgangur okk- ar með þátttöku á svona sterku móti er að sjá hvar við stöndum og til þess að stúlkurnar öðlist reynslu. Þær öðlast ekki reynslu nema með því að spreyta sigviðstöllursínar. Til marks um reynsluleysi þeirra má geta þess að í leikjun- um gegn Skotum fyrr á árinu voru þær svo taugaóstyrkar að ég átti í erf- iðleikum með að fá sumar þeirra til að hita upp. Allar utan tveggja sem höfðu reynslu með A-landsliðinu voru viti sínu fjær af hræðslu, það nánast birti til í salnum því þær voru svo fölar. Ástæðan er líka sú að í liðinu eru nokkrar kornungar stúlkur, fimmtán sextán ára gamlar. Margar hverjar hafa einungis leikið körfubolta í eitt til tvö ár og því er ekki hægt að ætlast til mik- ils af þeim. En til þess að þær nái árangri í framtíðinni verða þær að kynnast andstæðingnum strax og öðl- ast reynslu sem kemur þeim að notum seinna. Það sem háir okkur líka er hæðin - eða öllu heldur smæðin. Stúlk- urnar eru ekki nógu háar í loftinu. Það er mjög stutt síðan farið var að leika körfubolta í yngri flokkum kvenna. í Keflavík eru góðir yngri flokkar og hafa stúlkurnar þaðan unn- ið sína flokka undanfarin fjögur ár. Ástandið hjá félögunum hvað varðar yngri flokka kvenna er ekki til fyrir- myndar. Stelpurnar fá ekki tíma í íþróttahúsunum fyrr en seint á kvöldin og er því ekki búnar á æfingu fyrr en klukkan ellefu. Topplið eins og Kefla- vík sem hafnað í 2. sæti í íslandsmót- inu fær til dæmis aldrei að æfa í stóra íþróttahúsinu en æfir hins vegar í litla íþróttahúsinu við barnaskólann. Einu sinni í viku æfa þær í Sandgerði en sá tími er oft tekinn af þeim ef aðrir þurfa á honum að halda. Það er eiginlega kominn tími til þess að stúlkurnar séu meðhöndlaðar eins og fólk en ekki ýtt til hliðar endalaust og látnar sitja á hakanum. Stúlkurnar í 19 ára liðinu eru mjög efnilegar og tvær þeirra reyndar í fremstu röð á íslandi. Ef þær gefa kost á sér í A-liðið væru þær líkast til báðar í byrjunarliðinu. Það er virkilega gam- an að vinna með þessum stelpum því þær eru sérlega áhugasamar. Hópur- inn sem fór til Skotlands fyrr á árinu var mjög samrýmdur og skemmtilegur. Aldrei nein vandamál eða leiðindi. Skoskur körfuboltaþjálfari sem keyrði okkur um svæðið á rúti sagði að ís- lenska liðið væri kannski ekki það besta sem hann hafði séð en örugglega það kátasta og háværasta. Það sem við þurfum að gera til að standast stöllum okkar á Norðurlönd- unum snúninginn í framtíðinni er að gera æfinga- og keppnisáætlun tölu- vert fram í tímann. Ég myndi vilja þjálfa þessar stelpur næstu fimm árin og takast þá á við jafnaldra erlendis. Það þarf að leggja aðaláherslu á yngra liðið næstu árin og halda A-liðinu gangandi. Ég hef áhuga á að valið verði lið skipað leikmönnum 17 ára og yngri og lögð áhersla á það. Svo mætti koma á fót æfingabúðum fyrir stúlkur víðs vegar af landinu á sumrin. Það er enginn spurning að áhugi ungra stúlkna og hefur aukist með tilkomu yngra kvennalandsliðs. Þessar stúlkur vilja leggja mikið á sig til þess að ná góðum árangri," sagði Sigurður að lokum.

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.