Íþróttablaðið - 01.04.1987, Síða 52
Æfum við vitlaust?
Hjá knattspymumönnum var þolið
mjög gott við fyrstu mælingu, þ.e.
meðalgildi á þoltölu og mestu súrefnis-
upptöku (V02 max) voru mjög há.
Breytingar voru mjög litlar fram eftir
hausti, en yfir jólin, réttara sagt milli
mælinga í lok nóvember og í janúar, þá
féllu þessi gildi, en þó voru breyting-
arnar ekkert stórvægilegar. Fallið í þol-
tölu var heldur stærra og bendir það til
þyngdaraukningar.
Ég mun nú fara nánar út í einstaka
mæiingar hjá knattspyrnumönnum. Á
MIÐJU SUMRI, ÞÁ VAR MEÐALTAL
13 MANNA 64,3 ml02/min/kg sem er
mjög hátt gildi. Til samanburðar, þá
má geta þess að á árunum 1975-1976
þá var meðaltal 40 manna í fullri æf-
ingu 57,1 ml02/min/kg. í „Textbook
of Work Physiology" eftir þá Astrand
og Rohdal, er talað um að þoltöiur 11
knattspyrnumanna sænska landsliðs-
ins hafi verið að meðaltali tæplega 56
ml02/min/kg og fari hjá bestu ein-
staklingunum upp undir 70
ml02/min/kg en þessar tölur eru frá
1970. Okkar tölur eru mun hærri, t.d.
eru í 13 manna hópi 3 menn sem eru
yfir 70 ml02/min/kg, og sá hæsti
tæplega 75 ml02/min/kg. í ágúst var
meðaltal 10 manna 64,4 ml02/min/kg
en þá var hópurinn jafnari en í júlí.
ÆTLA MÆTTI, AÐ ÞEGAR ÆFINGAR
FALLA NIÐUR AÐ HAUSTI, ÞÁ FÉLLI
ÞOLTALAN. Svo reyndist ekki vera, að
minnsta kosti ekki að neinu marki, því
að í NÓVEMBER ER MEÐALTAL 8
MANNA 64,0 ml02/min/kg. Þetta er
góður árangur, sérstaklega þegar tillit
er tekið til þess, að þetta fall kemur
ekki fram, þegar litið er á mestu súr-
efnistökuna (tafla I). Virðist vera um að
ræða fall í þoltölu vegna aukins lík-
amsþunga, en menn bættu á sig allt að
3 kg, eða jafnvel meira. Það skal ítrek-
að, að þessir menn höfðu, frá því æf-
ingum lauk, ekki stundað neina skipu-
lega líkamsþjálfun, utan létts heilsu-
bótarskokks, og sumir alls ekki neitt.
Jólin, með öllum sínum mat, drykk og
letilífi taka sinn toll af íþróttamönnum
sem ekkert hreyfa sig, þó svo að þessi
tollur sé furðulega lítill. MEÐALTAL 9
KNATTSPYRNUMANNA féll niður í
57,9 ml02/min/kg og féll V02 max
einnig. Þessi þoltala er mjög góð, þeg-
ar tillit er tekið til þess að HÉR ERU
MENN EFTIR 4 MÁNAÐA HVÍLD FRÁ
Ætli þessi ungi piltur komi til með að njóta þeirrar framþróunar sem hefur orð-
ið í þjálfun íþróttamanna.
ÆFINGUM OG KEPPNI. Hópurinn
sem eingöngu kom í mælingu fyrstu
dagana í febrúar sýndi samskonar nið-
urstöður. Þar höfðu menn ekki æft í
rúma 4 mánuði, en samt var meðaltal
þessa hóps 59,14 ml02/min/kg. Auk
þessa, má geta þess að 19 manna
hópur knattspyrnumanna sem mældir
voru í janúarmánuði 3 árum áður
sýndi svipaðar niðurstöður. Þar var
þoltalan 57,5 ml02/min/kg. Af þessu
dreg ég þá ályktun að íslenskir knatt-
spyrnumenn, bæði í fullri æfingu og í
hvíld hafi mjög gott líkamlegt þol. Það
skal tekið fram að ýmsar nýrri aðferðir
við það að meta þol svo sem greining
vöðvasýna eða athugun á virkni hvata
(enzyma) í vöðvum, geta gefið mun
betri upplýsingar um þolið. Þeim var
ekki komið við að þessu sinni, enda
íjárfrekar, en einföld 02-upptöku mæl-
ing eins og hér var gerð, gefur góða
vísbendingu um hvað er að gerast.
HVAÐ SEGJA ÞESSAR
NIÐURSTÖÐUR? Jú, þær benda til
þess að sú stefna margra þjálfara að
hefja miklar þolæfingar strax í janúar