Íþróttablaðið - 01.06.1993, Blaðsíða 7
—Rætt við Þorstein Hallgrímsson
kylfing frá Vestmannaeyjum
LF
STEINN
vinnu þegar maður dvelur langdvöl-
um á fastalandinu yfir sumartímann."
— Nú náði íslenska karlalandslið-
ið í golfi frábærum árangri síðastlið-
ið sumar þegar liðið varð Norður-
landameistari í golfi. Telurðu raun-
hæft að liðið fari að velgja öðrum
þjóðum undir uggum?
„Já, ég tel það raunhæfan mögu-
leika. Við sigruðum m.a. Svía á síð-
asta Norðurlandamóti en þeir urðu í
einu af efstu sætunum á Evrópu-
meistaramótinu. Maður spyr sjálfan
sig af hverju við ættum ekki að geta
velgt keppinautum okkar á Evrópu-
verður fjárhagsbaggi sem hvílir á
herðum þeirra sem eru utan af landi
og leggja stund á golfíþróttina af ein-
hverri alvöru. Sem dæmi þess má
nefna að eftir síðastliðið sumar var ég
tæplega fjögur hundruð þúsund
krónur í mínus.
Golfklúbbur Vestmannaeyja kost-
ar ferðir mínar og þátttökugjöld í
mótum en ég verð fyrir miklu tekju-
tapi yfir sumartímann, sem ég verð
að bera sjálfur, því eins og gefur að
skilja verður manni ekki mikið úr
meistaramótinu undir uggum og ég
sé ekkert sem ætti að standa í vegi
fyrir því."
ÚLFAR GETUR ORÐIÐ
ATVINNUMAÐUR
— Nú náði Úlfar Jónsson frábær-
um árangri á alþjóðamóti þar sem
áhugamenn leiddu saman hesta sína.
Telurðu hann eiga möguleika á að
verða atvinnumaður f golfinu?
Þegar allt annað klikkar!!
„Já, ég tel svo vera. Úlfar er sterkur
persónuleiki og samspil þess og mik-
illa hæfileika hans í golfi gæti vel leitt
til þess að hann yrði atvinnumaður í
íþróttinni."
— En hvað með sjálfan þig?
„Nei, það held ég ekki. Ætli ég
haldi mig ekki bara við áhuga-
mennskuna, stundi mína vinnu þess
utan og haldi áfram að hafa gaman af
því að spila golf."
7