Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1993, Blaðsíða 58

Íþróttablaðið - 01.06.1993, Blaðsíða 58
Friðrik Ólafsson og Guðmundur Sigurjónsson afsöluðu sér laununum eftir að þeir hættu að mestu að tefla opinberlega þannig að nú eru fimm af stórmeisturunum sjö á launaskrá hjá ríkinu. Helgi Ólafsson og Jóhann Hjartarson hafa fengið laun frá 1985, Jón L. Arnason og Margeir Pétursson frá 1986 og nú um mánaðamótin júní-júlí bættist Hannes Hlífar Ste- fánsson í hópinn eftir að hafa verið útnefndur stórmeistari af FIDE. ENGIN KONAÁ LAUNUM Það ákvæði er í lögunum að ef kona er ekki hópi stórmeistara skuli veita laun hverju sinni a.m.k. einni konu sem hafi náð afburðaárangri í skák liggi umsókn um það fyrir. Þetta ákvæði var sett inn eftir ábendingu Jafnréttisráðs og var talið geta verkað hvetjandi fyrir íslenskar skákkonur. Ekki voru þó allir þingmenn hrifnir af því. Halldór Blöndal, sem er mikill áhugamaður um skák, ákvað að sitja hjá við afgreiðslu laganna vegna þessa ákvæðis. í umræðum á Alþingi sagði hann: „Eg sé engin efnisleg rök fyrir því að það sé áskilið að kona, sem ekki nái tilteknum árangri, njóti styrks úr sjóðnum og finnst kynskipt- ingaf þessu tagi út í hött.... I öðru lagi get ég ekki skilið að nokkur kona muni geta hugsað sér að þiggja laun úr sjóðnum á öðrum forsendum en jafningjar hennar sem eru karlkyns. ... Egskil ekki efnislegu rökin fyrir því að taka upp kynskiptingu af þessu tagi, finnst þessi framkoma í garð kvenna móðgandi og get ekki fellt mig við lögin eins og þau eru. Setning af þessu tagi á ekkert skylt við jafn- rétti, á ekkert skylt við kvenréttindi, almennt talað. Það er einungis verið að gera lítið úr konum með því að setja inn ákvæði af þessu tagi." Hvort sem menn eru sammála Halldóri eða ekki stendur eftir sú staðreynd að engin íslensk skákkona hefur enn sótt um laun frá ríkinu. AFREKSMANNASJÓÐUR ÍSLENSKRA ÍÞRÓTTAMANNA I umræðum á Alþingi um launa- sjóð stórmeistaranna lagði Hreggvið- ur Jónsson þá spurningu fyrir menntamálaráðherra hvort ekki Jón L. Árnason (tv) segir að stórmeistarar stæðu varla í því að tefla fengju þeir ekki laun frá ríkinu. mætti vænta þess að lagt yrði fram frumvarp til laga um launasjóð íþróttamanna. SvavarGestsson svaraði Hreggviði því til að ekkert hefði verið unnið að því að stofna slíkan sjóð. „Það kann að vera álitamál af hverju það stafar að það hefur ekki verið gert," sagði Svavar. „Ég hygg þó að það stafi fyrst og fremst af því að menn vilja gjarnan að þessi mál séu á ábyrgð íþrótta- hreyfingarinnar sem slíkrar sem allra mest frekar en það sé verið að gera íþróttamenn í mjög verulegum mæli að opinberum starfsmönnum eins og við erum raunar að gera í sambandi við stórmeistarana og má segja að það orki tvímælis í sjálfu sér." Ingi Björn Albertsson og Hreggvið- ur Jónsson sættu sig greinilega ekki við þetta svar. Þeir brugðust skjótt við eftir að lögin um launasjóð stórmeist- ara voru samþykkt ogfluttu frumvarp til laga um afreksmannasjóð ís- lenskra íþróttamanna daginn eftir. Tilgangur afreksmannasjóðsins, samkvæmt frumvarpinu, skyldi vera „að skapa efnilegum íþróttamönnum fjárhagslegan grundvöll til að helga sig íþrótt sinni." Stofnfé sjóðsins skyldi samsvara árslaunum fjörutíu háskólakennara og árleg framlög til hans nema sömu upphæð. Rétt til greiðslu úr sjóðnum skyldu hafa þeir íþróttamenn „sem að mati stjórnar sjóðsins hafa sýntótvíræða hæfileika í íþróttagrein sinni og eru því líklegir til afreka á því sviði." Gert var ráð fyrir í frumvarpinu að sérsamböndin innan ISI tilnefndu íþróttamenn ár- lega. í greinargerð með frumvarpinu segja flutningsmenn þess m.a. að geta íslenskra keppnismanna hafi aukist ár frá ári og árangur þeirra vak- ið athygli vfða um heim. Það hafi þó háð markvissri uppbyggingu og lang- tímaþjálfun afreksmanna okkar að þeir hafi ekki getað gefið sig óskipta að æfingum, t.d. fyrir Ólympíuleika og heimsmeistarakeppni, vegna bar- áttu fyrir daglegu brauði. Orðrétt seg- ir í greinargerðinni: „Ef við berum okkur saman við aðrar Norðurlanda- þjóðir geta alþingismenn ekki litið kinnroðalaustframan íæskufólksem leggur sig í líma við að hefja nafn íslands til vegs á erlendum vettvangi. Nú er og komið fordæmi fyrir því að afreksmenn njóti náðar Alþingis en með framlagningu stjórnarfrumvarps um launasjóð stórmeistara í skák er brautin rudd og ber að fagna því. Frumvarp þetta er af sömu rótum runnið en sniðið að þörfum íþrótta- hreyfingarinnar." Þar sem Ijóst var að málið fengi ekki afgreiðslu fyrir þingslit boðuðu tvímenningarnir að málið yrði flutt að nýju um haustið. Það gerðu þeir en málið fékk sama og enga umfjöll- un á þingi og var svæft í menntamála- nefnd. Flutningsmönnum var tíðrætt um gildi íþrótta og afreksmennirnir yrðu til þess að auka áhuga æskulýðsins á að stunda þær. Þeir sögðu að ekki dygði að halda frómar ræður þess 58
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.