Íþróttablaðið - 01.06.1993, Blaðsíða 12
Kjartani er margt til lista lagt enda ákaflega fjölhæfur íþróttamaður — en
hann hnýtir varla flugur í þessum hönskum!
„Ég er sannfærður um að það er
mikil framtíð í einkaþjált'un en mark-
aðurinn er samt ekki mjög stór. Það
eru ekki allir tilbúnir að leggja svona
mikið á sig til að byggja upp líkam-
ann og komast í gott form og svo
kostar þetta auðvitað sitt. Hættan er
líka sú að menn, sem hafa ekki nógu
mikla þekkingu, fari út í þetta. Helst
þyrfti að setja ákveðinn staðal þannig
að hver sem er geti ekki tekið menn í
einkaþjálfun. Menn verða að vita
hvað þeir eru að gera því annars næst
enginn árangur og í versta falli getur
illa farið."
SAMBLAND AF ÍÞRÓTT
OG LIST
Fyrr á þessu ári varð Kjartan Is-
landsmeistari í vaxtarrækt en jafn-
hliða stundar hann kraftlyftingar.
„Maður þarf að sameina kraftlyfting-
ar og vaxtarrækt til að líta vel út og
vera sterkur, eins og Jón Páll heitinn
gerði," segir hann.
í augum Kjartans er vaxtarræktin
sambland af íþrótt og list.
„Fyrir mér eru kraftlyftingar heljar
mikil íþrótt en ég held að menn
skynji það ekki fyrr en þeir prófa að
stunda þær. Til að ná árangri í kraft-
lyftingum er ekki nóg að vera sterkur
heldur þarftu líka að vera klár í koll-
inum. Uppbyggingin skiptir svo
miklu máli og þú verður að kunna á
líkamann og vita nákvæmlega hvað
þú ert að gera.
Undirbúningur fyrir vaxtarræktar-
keppni er heldur ekkert annað en
íþrótt en þegar komið er út í keppn-
ina sjálfa má líta á vaxtarræktina sem
listgrein. Það kostar mikla vinnu að
ná valdi yfir líkamanum og öllum
hreyfingum. Stöðurnar, eða pósurn-
ar, má kalla hreyfilist. Það er miklu
skemmtilegra að sjá vaxtarræktar-
mann sem getur sýnt góðar stöður."
HEIMIR KARLSSON:
„MIKLU VILJUGRI TIL
ALLRA HLUTA"
Heimir Karlsson íþróttafréttamað-
ur var farinn að hlaða á sig aukakíló-
allra hluta eftir að hann byrjaði að
æfa skipulega að nýju. Hann ætlar
t.d. að kvænast í október!!
um eftir að hann hætti í keppnis-
íþróttum. Hannákvað að takasigtaki
og leitaði til Kjartans.
Heimir mætir í Gym '80 klukkan
hálfníu 4-5 morgna í viku og spilar
auk þess fótbolta og körfubolta tvisv-
ar í viku. Árangurinn hefur ekki látið
á sér standa. „Ég hef misst 7 kíló á
einum mánuði af kannski 14-18 sem
ég þarf að missa til að ná minni kjör-
þyngd. Og þar sem ég hef bætt á mig
vöðvum hef ég losnað við meira en 7
kíló af fitu. Ég var 106 kíló þegar ég
byrjaði hjá Kjartani 10. maí og reikna
með að vera kominn niður í 90 kíló
um miðjan júlí sem er mín kjörþyngd
samkvæmt fitumælingu. Kjartan er
ákveðinn og vill að við náum árangri
enda væri það ekki gott til afspurnar
ef við stæðum okkur illa. En hann er
sanngjarn og hefur vit á því sem hann
er að segja."
Heimir er spurður að því hvers
vegna hann hafi valið það að fá sér
einkaþjálfara í stað þess að puða einn
með sjálfum sér í einhverri líkams-
ræktarstöðinni.
„Ég er vanur því úr íþróttunum að
hafa þjálfara og mér finnst gott að
hafa einhvern til að reka á eftir mér
og það gerir Kjartan svo sannarlega.
Ef ég hefði farið að æfa einn í ein-
hverri líkamsræktarstöð veitég að ég
hefði ekki lagt jafn mikið á mig.
Kjartan heldur líka utan um matar-
æðið. Ef ég stend mig ekki hvað það
varðar fer hann í fýlu sem bitnar á
mér. Aðalmálið er að forðast alla fitu
en að öðru leyti má ég borða allt. Ég
hef alltaf getað étið það sem að kjafti
kemur og mér finnst þetta því ekkert
mál."
Heimir segist finna mikinn mun á
sér eftir mánuðinn. „Ég er miklu vilj-
ugri til allra hluta. Éger að vísu dálítið
þreyttur því að æfingarnar eru erfiðar
en ég næ mér smátt og smátt upp úr
því."
GARÐAR
SIGURGEIRSSON:
„ALLUR MIKLU LÉTT-
ARI OG JÁKVÆÐARI"
Garðar í Herragarðinum byrjaði
að æfa undir leiðsögn Kjartans íbyrj-
un maí. Hálfum öðrum mánuði
seinna voru fokin 9 kíló. „Þetta er að
12