Íþróttablaðið - 01.06.1993, Blaðsíða 25
í þá gömlu góðu daga... Bryndís og
Hugrún, systir hennar, á verðlauna-
palli.
stóð auðvitað í þeirri trú að ég væri
að gera rétt. Þjálfari Ægis, Petteri La-
ine, kom með smá ábendingu sem
breytti heilmiklu hjá mér. Fremra
sundtakið varð miklu sterkara fyrir
vikið."
— Hver þeirra níu þjálfara, sem
hafa þjálfað þig, hafa haft mesta
þekkingu á sundinu — kennt þér
mest?
„Mamma. Og hún er ólærð. Til
þess að geta orðið góður þjálfari þarf
viðkomandi að vera mikill mann-
þekkjari og í raun mannvinur. Þeim
þjálfurum, sem ég hef verið hvað
óánægðust með, sagði ég aldrei neitt
af þvíég treysti þeimekki. Éggatekki
deilt mínum vandamálum með þeim
og þeir hrósuðu mér aldrei. Ég man
þó eftir því að Mummi hrósaði mér
einu sinni. Þeir lögðu sig ekki alla
fram í þjálfuninni og stundum fannst
mér það stafa af öfund."
— Nú hefur maður heyrt því fleygt
að þið systkinin frá Þorlákshöfn
hafið ekki alltaf átt upp á
pallborðið hjá Sundsambandinu,
hreinlega verið í ónáð. Er það rétt?
„Já, okkur hefur verið mismunað.
Þegar ég var að ná ágætis tímum í
Kanada, komst á verðlaunapall og
sendi upplýsingar um það til Sund-
sambandsins var því aldrei komið
áleiðis til fjölmiðla. Seinna var verið
að tíunda það þegar Ragga Run
meiddi sig í Bandaríkjunum. Magnús
Már var settur út úr landsliðinu af því
hann mætti í skræpóttum buxum f
matsalinn í einni keppnisferð. Þegar
ekkert var sagt við Röggu, þegar hún
mætti í skræpóttum fötum, varð
Magnús mjög ósamvinnuþýður við
þjálfarann og þess vegna var hann
rekinn. Staðreyndin er sú að við
systkinin erum skapstór og við látum
ekki vaða yfir okkur. Landsliðsþjálf-
ari, sem Magnús lenti í útistöðum
við, var gjörsamlega réttindalaus.
Hann laug til um menntun og fyrri
störf og var ráðinn sem þjálfari án
þess að bakgrunnur hans væri kann-
aður. Hann var óhæfur og var vikið
úr starfi þegar upp komst um svik
hans."
— Blaktir friðarfáni núna milli
ykkar og landsliðsins eftir fyrri
árekstra?
DIADORA, líka fyrir þig
Umboðsaðili Diadora, Ástund hf.
Háaleitisbraut 68, Rvk., s. 91-684240
ÚTSÖLUSTAÐIR DIADORA
• Á fætur
• Boltamaðurinn
• Ástund, sportvöruv.
• Sportmaðurinn
• KB, Borgarnesi
• KÞ, Húsavík
REYKJAVÍK
LANDIÐ, frh.
• KEA, Akureyri 1
• Við lækinn, Neskaupsstaö '
• Sportv. Hákon Sófusson,
Eskifirði
• K. Sport, Keflavík
• Baldvin & Þorvaldur, Selfossi
• KVH, Hvammstanga
LANDIÐ
. ■ ■ þeir bestu nota PIADORA