Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1993, Blaðsíða 16

Íþróttablaðið - 01.06.1993, Blaðsíða 16
Ragna Lóa Stefánsdóttir. „ÞAÐ HLÝTUR AÐ HAFA VERIÐ SPRENGHLÆGILEGT AÐ SJÁ MIG VAGGA SVONA FRAM OG AFTUR" tillittil mín, enda væri það fáránlegt. Ef svo væri myndu öll lið landsins tefla fram óf- rískum leikmönnum og varnirnar opn- ast.... Við megum heldur ekki gleyma því að grófasti og grimmasti leikmaður deildarinnar er með mér í liði (Auður mín, ekki verða vond), þannig að ég var aldrei í raunverulegri hættu!!!" — Hvað sagði læknirinn þinn um að þú héldir áfram að æfa og spila? „Hann sagði að það væri alveg óhætt fyrir mig að halda áfram eins lengi og heilsan leyfði — og það gerði ég. í dag er allt að breytast hvað varðar meðgöngu. Konur eru í líkams- rækt fram á síðasta mánuð eða þar til líkaminn segir stopp og það gerir hann ef maðurferyfirstrikið." — Hvernig tók Bjössi þessu? „Það fyrsta, sem hann bað mig um, var að segja Auði frá því að ég ætti von á barni svo að ég myndi ekki lenda í hennar margfrægu rennitækl- ingum. Hann var alveg sáttur við ákvörðun mína um að halda áfram en ekki get ég neitað því að hann var orðinn ansi fölur þegar íslandsmótið stóð sem hæst." — Hvað verður erfiðast við að byrja aftur? „Að hafa ekki Vöndu til að reka mig áfram eins og fyrir 7 árum þegar ég eignaðist Stefán Kára." — Á hvað stefnir þú í boltanum? „Að verða betri knattspyrnukona en ég var. Á maður ekki alltaf að reyna að bæta sig? Ég vil í þessu sam- bandi sérstaklega benda á Ástu B. Gunnlaugsdóttur Breiðabliki sem verður betri og betri með hverju ár- inu sem líður." — Er eitthvað til í því, sem sumir halda fram, að konur verði betri eftir að hafa eignast barn? „Mér finnst mikið til í því. Mitt besta sumar var 1987, árið eftir að ég eignaðist Stefán Kára." — Af hverju betri? „Stærsti hlutinn er sá að það er svo gaman að koma aftur. Auk þess spila inn þættireinsog þroski ogyfirvegun sem fylgja því að eignast barn. Ekki má heldur gleyma því að tíminn er dýrmætur. Því eru hlutirnir gerðir af fullum krafti en ekki með hangandi hendi því annars væri alveg eins gott að vera heima og sinna barninu." — Nú fórst þú á æfingu sumarið '86, aðeins 10 dögum eftir fæðingu. Hvernig gekk það? „Ég varð fyrir smá áfalli þegar ég uppgötvaði að ég var seinust í sprett- unum en úr því rættist fljótt." — Hvernig brást líkaminn við? Það hefur t.d. verið sagt að konur missi mjólkina ef þær fara af stað of snemma. Kom það fyrir þig? „Nei, allsekki. Ég hefði getað verið með þrjú börn á brjósti ef þess hefði þurft. Ég tel að fordómar gagnvart brjóstagjöf og íþrótta- iðkun séu bölvuð þvæla! Það er mitt álit að það geri konunni gott að hreyfa sig því þá líður henni betur — bæði andlega og líkamlega. Þetta er þó að sjálfsögðu pers- ónubundið og konur geta lent í því að geta ekki byrjað strax að æfa út af hinum ýmsu ástæðum. Aðalatriðið er að fara eftir því sem líkaminn leyfir." — Að lokum: Hvað ráðleggur þú ungum íþróttakonum í dag í sambandi við barneignir og íþrótta- iðkun? „Það, að eignast barn, er ekki endir á íþróttaferlinum. Þú tekur þér aðeins smá hvíld (nýtur þess að horfa á hvað hinareru lélegar !) og kemur svo aftur enn betri og þroskaðri. Auk þess átt þú lítið og yndis- legt barn sem er auð- vitað mesta krafta- verkið af öllu !!!" KRISTÍN ANNA ARNÞÓRSDÓTTIR Kristín Anna Arnþórsdóttir er 27 ára Reykvíkingur. Hún er búsett í Kópavogi ásamt eiginmanni sínum, Árna Esra Einarssyni, og syni þeirra, Esra Þór, sem fæddist í janúar 1991. Kristín hefur um árabil verið ein fremsta íþróttakona landsins. Hún er jafnvíg á knattspyrnu og handknatt- leik. Hefur verið í landsliði íslands í báðum greinum og leikið fjöldann allan af landsleikjum. Með félagslið- um sínum, Val í knattspyrnu og ÍR og Val í handknattleik, hefur hún átta sinnum orðið bikarmeistari og þrisv- ar íslandsmeistari. Kristín var valin Knattspyrnukona ársins 1986 og varð hún fyrst ís- lenskra knattspyrnukvenna til að hljóta þann titil. Kristín er íþrótta- kennari að mennt. Hún útskrifaðist frá íþróttakennaraskólanum á Laug- 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.