Íþróttablaðið - 01.06.1993, Blaðsíða 37
þetta í fjölmiðlum. Þessir menn hafa
spilað fjölda landsleikja og ávallt lagt
sig alla fram og það hefði því verið
eðlileg leið að sýna þeim þá virðingu
að tilkynna þeim um þessa ákvörðun
áður en þeir heyrðu þetta í fjölmiðl-
um."
— Telurðu að velja eigi leikmenn
eftir aldri eða eftir getu þeirra
hverju sinni?
„Mér finnst að aldur leikmanna
eigi ekki .að hafa neitt að segja um
það hvort þeir eru valdir í landslið
eða ekki. Mér finnst eðlilegt að leik-
menn fái tækifæri til að komast í
landsliðshópinn standi þeir sig fram-
úrskarandi vel. Það hefði t.d. verið
eðlilegt að taka Arnar Gunnlaugsson
inn í hópinn í fyrra. Þá var hann að
leika hér heima og stóð sig frábær-
lega vel. Það er síðan ekki fyrr en
hann kemurtil Feyenoord að hann er
valinn í liðið en þar hefur hann ekki
náð að festa sig í aðalliðinu og hefur
verið að leika mikið með varaliðinu
sem er vafalítið slakara heldur en
aðallið okkar Skagamanna.
Ég tel eðlilegt að litið sé til þess
hvernig menn eru að leika hverju
sinni, hvort leikreynda menn þurfi í
viðkomandi landsleiki og hvort leika
eigi sóknar- eða varnarbolta í leikj-
unum. En aldur er eitthvað sem að
mínu mati á ekki að skipta máli og
mér fannst t.d. eðlilegt að Sveinbjörn
Hákonarson skyldi vera valinn í
landsliðið ífyrra þótt hann sé kominn
vel á fertugsaldurinn. Hann hafði
einfaldlega verið að spila vel og átti
skilið að vera valinn."
— Eru einhverjir leikmenn, sem
hafa verið að leika landsleiki, sem
hefðu í rauninni ekki átt að spila
með landsliðinu?
„Án þess að ég fari að nefna nokk-
ur nöfn tel ég að menn hafi stundum
komist í landslið án þess að vera að
leika sérstaklega vel. Ég get þó tekið
dæmi með sjálfan mig. Siegfried
Held valdi mig í landsliðið þegar
hann var að byrja sem landsliðsþjálf-
ari en ég held að á þeim tíma hafi
ekki verið réttlætanlegt — allavega
hefði égekki valið mig hefði ég verið
landsliðsþjálfari. Á þeim tímapunkti
var ég nýstiginn upp úr meiðslum,
var í lítilli leikæfingu og Held valdi
mig í bakvarðarstöðu sem ég hafði
aldrei leikið áður.
Kannski má að vissu leyti kenna
hf^íSkauaúrmur.
Símsvari Reykjavík — sími 91-16420
Afgreiðslan Reykjavík — sími 91 -16050
Afgreiðslan Akranesi — sími 93-12275
Skrifstofa Akranesi — sími 93-11095
ÁÆTLUN
AKRABORGAR
Frá Akranesi Frá Reykjavík
Kl. 8,oo* Kl. 9,30*
— 11,00 — 12,30
— 14,oo — 15,30
— 17,00 — 18,30
Kvöldferðir
20,oo 21,30
Á sunnudögum I apríl, maf og september.
Á föstudögum og sunnudögum í júnf, júlí
og ágúst.
* Þessar ferðir falla niður á sunnudögum mánuðina
október, nóvember, desember, janúar, fébrúar og mars.