Íþróttablaðið - 01.06.1993, Blaðsíða 36
með. Aftur á móti eru alltaf einstaka
leikmenn sem fara í leiki með því
hugarfari að meiða andstæðinga
sína. í því sambandi má t.d. benda á
menn eins og Vinny Jones, leikmann
Wimbledon, en hann er einn þeirra
sem finnst það beinlínis karlmann-
legt og flott að meiða andstæðinga
sfna, enda einsetur hann sér það fyrir
leiki."
— Nú kemurðu heim frá Englandi
hálf meiddur. Varstu óánægður
með sjálfan þig?
„Nei, ég held ekki. Ég var búinn að
ákveða að hvíla mig aðeins á fótbolt-
anum en tók þó fljótlega ákvörðun
um að leika með ÍA sfðastliðið sum-
ar. Ég meiddist fljótlega á ökkla, spil-
aði hálf-meiddur allt sumarið og mér
fannst ég aldrei ná að sína mitt rétta
andlit."
— Varstu ósáttur við að vera ekki í
landsliðshópnum í leiknum gegn
Rússum?
„Nei, ég get ekki sagt það. Það er
landsliðsþjálfarans að velja liðið
hverju sinni og ég hefekkert um það
að segja. Mitt markmið núna er að
standa mig eins vel og ég get með IA
Sigurður Jónsson í Arsenal búning-
num á sínum yngri árum — alls óviss
um draumurinn ætti eftir að rætast.
og reyna að bæta upp vonbrigði mín
frá því í fyrra.
Ég var búinn að vera slæmur í háls-
inum síðasta vetur og lét loksins
verða af því að láta taka úr mér háls-
kirtlana en þeir hafa verið sýktir í þó
nokkurn tíma. Ég held að það sé
besta viðgerð sem ég hef fengið um
ævina. Vegna þessa spilaði ég lítið
síðastliðið vor. Éghefði verið tilbúinn
til að spila bæði gegn Lúxemborgur-
um og Rússum en það má kannski
segja að landsliðsþjálfarinn hefði séð
það lítið til mín um vorið að það hafi
verið vel réttlætanlegt að velja mig
ekki."
— Hver eru eftirminnilegustu árin
þín með landsliðinu hingað til?
„Ætli það sé ekki sá tími þegar ég
var í hve bestu formi og var orðinn
fastamaður í liði Sheffield Wednes-
day. Á þeim tíma lékum við marga
góða landsleiki og ég fann mig mjög
vel. Jafnteflisleikurinn gegn Rússum í
Moskvu, 1-1, vartil dæmis mjög eftir-
minnilegur."
— Nú hefur nokkuð verið deilt á
það hvernig þeim Atla Eðvaldssyni
og Sævari Jónssyni var kippt út úr
landsliðinu. Telurðu að rétt hafi
verið staðið að málum með þá?
„Það er Ijóst að nýjum herrum
fylgja nýir siðir og það er í sjálfu sér
ekkert hægt að deila á landsliðsþjálf-
arann þótt hann telji sig ekki lengur
hafa not fyrir krafta Atla og Sævars í
landsliðinu. Aftur á móti mádeila um
það hvort rétt hafi verið staðið að
málum með því að láta þá bara heyra
ankans
„STJÖRNUBÓKIN
HITTIR BEINT
í MARK!“
Eyjólfur Sverrisson, knattspymumaður
Með spariáskrift að Stjörnubók er unnt
að losa alla innstœðuna á sama tíma.
Verðtrygging og háir raunvextir.
Vextir bókfærðir tvisvar á ári. Lausir til útborgunar eftir það.
Hver innborgun bundin í 30 mánuði.*
Eftir það er hún alltaf laus til útborgunar.
Spariáskrift - allar innborganir lausar á sama tíma.
Lántökuréttur til húsnæðiskaupa. Lánsupphæð hámark 2,5 milljónir
til alltað lOára.
* Ef nauðsyn ber til getur reikningseigandi sótt um heimild til
úttektar á bundinni fjárhæð gegn innlausnargjaldi.
BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki