Íþróttablaðið - 01.06.1993, Blaðsíða 40
ar leikmenn að prófa að dæma einn
leik í deildinni áður en þeir fara að
dæma dómarastéttina. Það er Ijóst að
þettaerekki auðveltstarf. Hraðinn er
orðinn miklu meiri en áður var og
auðvitað koma upp vafaatvik í leikj-
um eða atvik sem dómarinn einfald-
lega sér ekki — þeir eru jú einu sinni
mennskir. Hvað varðar dómgæsluna
þaðsemaferáþessu keppnistímabili
hef ég ekkert út á hana að setja.
Ég hafði líka kynnst annars konar
dómgæsluen hértíðkast þegarégvar
að spila á Englandi. Þar var leyft
miklu meira heldur en er gert hér á
landi. Að mínu mati eiga dómarar að
vera óhræddari við að láta leikinn
„fljóta" í stað þess að vera síflaut-
andi."
— Nú fóru tvíburarnir, Arnar og
Bjarki Gunnlaugssynir, í
atvinnumennsku í fyrra. Leituðu
þeir ráða hjá þér áður en þeir
skrifuðu undir?
„Þeir leituðu nú ekki beint ráða hjá
mér áður en þeir héldu utan en að
sjálfsögðu ræddu þeir þessi mál, m.a.
við mig.
Ég hefði ráðlagt þeim að taka eitt
„Muscle man."
skref í einu. Athuga alla þá valmögu-
leika sem fyrir hendi voru, aðstæður
hjá liðinu, hvernig fótbolta það leik-
ur, möguleika á að komast í liðiðo.fl.
þess háttar. Þeir voru staðráðnir í að
fara utan og að mínu mati voru þeir
tilbúnir til þess, knattspyrnulega séð.
Sjálfur hefði ég átt að athuga alla
möguleika. Ég græt það t.d. núna að
hafa ekki farið til Barcelona-liðsins
og skoðað mig þar um úr því mér stóð
það til boða. Á móti kemur síðan að
mig langaði virkilega að fara til Eng-
lands og spila þar fótbolta. Mistök
mín lágu kannski fyrst og fremst í því
aðégvaldi rangtliðtil aðbyrjameð."
— Gætirðu hugsað þér að fara
aftur í atvinnumennsku?
„Eins og málin standa núna tek ég
fyrir einn leik í einu. Ég hef mjög
gaman af því að spila fótbolta núna
og er búinn að finna leikgleðina að
nýju — en það var eitthvað sem ég
hafði misst. Ég hef því ekkert hugsað
um það hvað tekur við eftir þetta
sumar en ekkert er útilokað. Ég er
ekki nema tuttugu og sex ára gamall
og tel að ég eigi enn mikið eftir sem
knattspyrnumaður.
SUMAR '93
Teg. 7775. Disc System Terrain
Stærðir 6-12. Verð 9.990
Teg. 3918. Lady Liberate
Stærðir 3 1/2-6 1/2. Verð 3.990
Póstsendum
Teg. 2069. XC Speed
Stærðir 5-12. Verð 7.980
Teg. 2044. Lady Preval
Stærðir 4 1/2-8. Verð 5.490
Simi 75020