Íþróttablaðið - 01.06.1993, Síða 11

Íþróttablaðið - 01.06.1993, Síða 11
 ráðleggja mönnum, sem koma til hans í einkaþjálfun, með mataræðið. „Þeir eiga að skrá samviskusamlega niðurallt, sem þeirborða, svo éggeti t'ylgst nákvæmlega með mataræð- inu," segir hann. „Á þriggja til t'jög- urra daga fresti t'er ég í saumana á því hvað þeir hat'a borðað dagana á und- an og ef mér t'innst þörf á því ret'sa ég þeim með hrikalegri þolæfingu!" ÁRANGURINN LÆTUR EKKI Á SÉR STANDA Kjartan fullyrðir að maður, sem er fimmtán kíióum yt'ír kjörþyngd þegar hann byrjar æfingar hjá honum, eigi að losna við þau öll á tveimur til þrernur mánuðum jafnframt því að byggja upp vöðvana. Enginn hefur veriðenn svo lengi undir handleiðslu Kjartansen byrjunin lofarsvo sannar- lega góðu. Menn hafa misst allt aðtíu kílóum á einum mánuði! En það kostar líka blóð, svita og tár. „Sumir vilja láta reka sig áfrani en aðrir vilja ráða ferðinni sjálfir," segir Kjartan. „Ég get ekki alltaf leikið harðstjóra og maður verður að vera svolítill mannþekkjari. Sumir þurfa stöðugt aðhald en aðrir vilja afla sér sem þestrar þekkingar til að geta haldið át'ram sjálfir. Þeim sfðar- nefndu dugar að vera hjá mér í einn til tvo mánuði. Þeir læra meira hjá mér á tveimur mánuðum en á tveim- ur árum í gauíi úti í bæ. Menn týnast ot't í líkamsræktarstöðvum og gefast upp því enginn fylgist með þeim. Og ot't eru þeir að gera æfingarnar vit- laust og hjakka stöðugt í sama farinu. Ég er hins vegar alltat' til staðar og fylgist nákvæmlega með öllu." Kjartan segir að stít'ogerfið þjálfun styrki ekki aðeins líkamann. „Menn breytast líka andlega. Það eflir vilj- ann að stunda svona stífar æfingar og ef þeir ná varanlegum tökum á mat- aræðinu sýna þeir mikinn karakter. Þegar ég dró þá, sem eru hjá mér, með mér á Esjuna einn laugardaginn trúðu þeir ekki að þeir myndu hafa það upp á topp-og þeir voru því stoltir þegar upp var komið. Þegar menn taka sjált'a sig taki og ná árangri veitir það rnikla andlega vellíðan. Þeir tala líka sjálfir um hvað þeir eru miklu hressari á morgnana og frískari í vinnunni." MENN VERÐA AÐ VITA HVAÐ ÞEIR ERU AÐ GERA Þeir, sem taka að sér einkaþjálfun, verða að búa yfir umtalsverðri þekk- ingu og reynslu. Annars er alvegóvíst um árangurinn og hættunni getur verið boðið heim. „Það kemur mér svo sannarlegatil góða íþessari þjálf- un að hat'a stundað vaxtarrækt og lyftingar árum saman og náð ár- angri," segir Kjartan „Mér finnst ég geta gefið meira af mér vegna þess en bóklega þekkingin verður auðvitað líka að vera i' lagi." Kjartan stundaði nám á íþróttabraut við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti og hefur sjálfur viðað að sér mikilli þekkingu úr er- lendum t'ræðiritum. „Það eru svo miklar framfarir, sérstaklega í nær- ingarfræði, og maður verður að fylgj- ast vel með hvað er að gerast." í haust stet'nir hann að því að fara á námskeið í einum virtasta einkaþjálf- araskóla heims, National Academy of Sports and Medicine í Flórída. „Til að komast þar inn þarftu bæði að búa yfir þekkingu og reynslu auk þess að hafa meðmæli. Síðan verður maður að standast próf til að fá viðurkenn- ingu sem einkaþjálfari." En sér Kjartan fyrir sér að einkar þjálfun eigi eftir að ryðja sér til rúms að einhverju marki hér á landi? 11

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.