Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1993, Blaðsíða 15

Íþróttablaðið - 01.06.1993, Blaðsíða 15
Kristín Arnþórsdóttir sló á létta strengi fyrir nokkrum árum með þessum hætti. RAGNALÓA STEFÁNSDÓTTIR Ragna Lóa er 27 ára Akurnesingur en býr í Árbænum í Reykjavík ásamt sambýlismanni sínum, Birni Bjart- marz „súpersöb" úr Víkingi, og syni sínum, Stefáni Kára. Ragna Lóaerein EFTIR BOLTA KEMUR BARN! besta knattspyrnukona landsins og hefur á knattspyrnuferlinum unnið til 7 íslands- og bikarmeistaratitla með liðum sínum ÍA og Stjörnunni. Hún hefur einnig leikið 8 A-landsleiki og verið í kvennalandsliðinu síðan 1985. Ragna Lóa var í „liði ársins" 1992 og hefur um margra ára skeið hrellt sóknarmenn með hraða sínum ogkrafti. Ragnaereinnigmjög góður knattspyrnuþjálfari en konum, sem þjálfa knattspyrnu, fer stöðugt fjölg- andi. Hún þjálfaði m.fl.kv. hjá IA 1990, 3.fl.kvenna hjá Stjörnunni '91 og '92 og þjálfar nú í knattspyrnu- skóla Stjörnunnar drengi 8 ára og yngri. Við þjálfunina nýtir Ragna sér menntun sína en hún er nýútskrifuð fóstra frá Fósturskóla íslands og hefur auk þess sótt flest þjálfaranámskeið sem Knattspyrnusamband íslands hefur staðið fyrir. Haustið '92 hóf Ragna Lóa undir- búningstímabilið með Stjörnunni af miklum krafti. Hún var ákveðin í að æfa á fullu og taka komandi tímabil meðtrompi... En sumtferöðruvísi en ætlað er og í desember vissi Ragna að hún væri ófrísk. Hún hélt þó áfram að æfa og17.janúar sl. varð hún Islands- meistari innanhúss með Stjörnunni, þá komin þrjá og hálfan mánuð á leið. Eftir það hætti hún að æfa og fylgist nú með frá hliðarlínunni. Hvernig er fyrir keppnismann- eskju eins og þig að fylgjast með frá hliðarlínunni? — „Rosalega erfitt en ég hugsa alltaf með mér að þegar ég verð búin að eiga og komin aftur á fullt eigi þær þetta allt eftir." — Nú æfðir þú og spilaðir komin þrjá og hálfan mánuð á leið. Var það óhætt? „Ekkert er alveg óhætt, alveg sama hvað þú ert að gera. Er óhætt að ganga yfir götu? Þú getur dottið og orðið fyrir bíl. í fótboltanum er ég að gera hluti sem ég er vön að gera og sem ég kann. Ég held að fólk telji hættuna meiri en hún er, t.d. á að fá boltann í magann eða lenda í sam- stuði. Þú spilar öðruvísi þegar þú ert ófrísk, tekur ekki áhættur og spilar af öryggi. Þeir, sem þekkja mig, sáu aðá íslandsmótinu spilaði ég ekki eins og ég er vön. Ég var yfirvegaðri, snið- gekk samstuð og tók engar áhættur." — Hvernig var að spila ófrísk? „Ég fann fyrir því að jafnvægið raskaðist. Eftir gabbhreyfingu varð ég að taka aðra tiI baka tiI að koma mér í jafnvægi aftur. Það hlýtur að hafa verið sprenghlægilegt að sjá mig vagga svona fram og aftur." — Hvernig fannst hinum stelpun- um í liðinu að hafa þig ófríska með á æfingum? „Þeim fannst það alveg sjálfsagt. Þær pössuðu sig þó og fóru ekki í mig af sama krafti og áður." — En andstæðingunum? „Ég fann ekki fyrir að neinn tæki 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.