Íþróttablaðið - 01.06.1993, Síða 21

Íþróttablaðið - 01.06.1993, Síða 21
Verslunin Á FÆTUR er í Kringlunni. — íþróttaskór í fjölbreyttu úrvali á einum stað Verslunin Á FÆTUR í Kringlunni er fyrsta og eina verslunin, svo vitað sé, sem selur eingöngu íþróttaskó. Reyndar fást líka sokkar og húfur í versluninni en skórnir eru í öndvegi. Úrvalið í Á FÆTUR er fjölbreytt og segir Garðar Kjartansson, eigandi verslunarinnar, að boðið sé upp á um 140 gerðir af skóm í tíu vörumerkj- um. Þær tegundir, sem eru til sölu í versluninni, eru Adidas, Puma, Reebok, Diadora, Nike, Avia, Miz- uno, Converse, Brooks og Patrick. íþróttamenn jafnt, sem almennir borgarar, ættu að fá skó við sitt hæfi í Á FÆTUR því þar fást skór fyrir allar boltaíþróttir, hlaupaskór, þolfimi- skór, skór á börn og svo framvegis. Að sögn Garðars eru íþróttaskór með loftpúðum hvað vinsælastir um þessar mundir og hann segir kaup- endur fyrst og fremst sækjast eftir vönduðum íþróttaskóm. „Vissulega vill fólk fallega skó en notagildi þeirra verður að vera mikið. Fólk er farið að kaupa íþróttaskó samkvæmt læknissráði því vandaðir íþróttaskór hlífa bakinu vel. Fólk um og yfir sjö- tugt er jafnvel að kaupa íþróttaskó í fyrsta skipti og segist finna mikinn mun á líkamlegu ástandi eftir að hafa gengið í góðum íþróttaskóm. Úrvalið hjá okkur er við allra hæfi og hér fást skór frá 1.000 krónum upp í 15.000 þannig að það er úr nógu að velja." Garðar Kjartansson eigandi verslunarinnar Á FÆTUR. A LINUNNI Sigurður Grétarsson, knattspyrnumaður Ertu á heimleið, Siggi? (Sigurður Grétarsson hefur átt við þrálát meiðsli að stríða og spilaði lítið með liði sínu Gras- hoppers í Sviss á þessu ári.) „Nei, ég er ekki á heimleið og er nú ekkert farinn að spá í það ennþá hvort ég lýk ferlinum heima. Mitt markmið er að ná mér upp úr meiðslunum í sumar. Það er fjór- um sinnum búið að skera mig upp í vinstra hn'énu, það er orðið slitið og búið að taka töluvert úr liðþófanum. Það er þreytandi að vera sífellt að vinna sig upp úr meiðslum og það fer eftir því hvernig þessi meiðsli þróast hvað ég verð lengi í Sviss, Samning- urinn, sem ég hafði við Grashoppers, er útrunninn en ég verð úti að minnsta kosti fram á næsta sumar. Það kemur til greina að ég gangi til liðs við annað félag en ég reikna þó alveg eins með því að vera áfram hjá Grashoppers. Þrátt fyrir meiðslin hafaþeirekki lokaðá mig. Þetta kem- ur annars al It í Ijós seinna í sumar eða haust." 21

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.