Íþróttablaðið - 01.06.1993, Síða 22
Texti: Þorgrímur Þráinsson
Myndir: Gunnar Gunnarsson
vandræðagemsi, að margra mati, en
hún veit hvað hún er, getur og vill.
Og hún þorir. Þótt hún hafi lagt tugi
þúsunda kílómetra að baki í lauginni
— hljóðlaust — er annað uppi á ten-
ingnum á bakkanum. Hreinskilni er
einn af hennar helstu kostum — líka
löstum, að mati sumra, en sú stað-
reynd er óhagganleg að Bryndís
Ólafsdóttir er afrekskona í íþróttum,
ein sú fremsta á íslandi og hún hefur
ekki sagt sitt síðasta orð. Hún hefur
sett 68 íslandsmet á köflóttum ferli og
10 þeirra standa enn.
Hvers vegna skyldi Bryndís
skyndilega rjúka upp með látum eftir
að hafa verið í lægð í tæp fjögur ár,
einmitt þegar maður bjóst allt eins
við að sjá hana svamla um í heitu
pottunum ásamt öðrum uppgjafa
íþróttamönnum? Er það kannski ástin
sem hefur teiknað á hana sigur-
vængi? Eða er það Iffið sjálft sem hef-
ur þessi áhrif á hana? Hún kom heim
frá Smáþjóðaleikunum á Möltu með
sjö gullpeninga — minnti óneitan-
lega á Mark Spitz, var kjörin „Drottn-
ing leikanna" af þarlendum fjölmið-
lum og segist kannast við tilfinning-
una.
Eftir köfióttan sundferil er BRYNDÍS
ÓLAFSDÓTTIR komin á fullan skrið.
Hún hefur gefið hefðbundnum sundæfingum
langt nef og fleytt sér á toppinn eftir eigin
hugmyndum
Þótt Bryndís Ólafsdóttir sé aðeins
23 ára telst hún „gömul" í sundinu
því flestar íslenskar sundstelpur
hengja keppnisbolinn til þerris 17-18
ára. Hún hefur gefið öllum hefðum
langt nef — sagt skilið við úreltar
æfingar og er farin að synda eftir
eigin höfði. Það hefur þó ekki tekist
áreynslulaust því sumir hafa orðið
sárir, aðrir bálreiðir — en hún er
komin þangað sem hún ætlaði sér —
ÁTOPPINN.
Bryndís hefur verið nokkurs konar
„enfant terrible" í sundinu, dálítill
„Þetta er gömul tilfinnig því ég var
best í sex ár," segir Bryndís brosmild.
„Svona á þetta að vera. Fyrsta sætið
er það eina sem ég sætti mig við —
eini staðurinn sem mér líður vel á."
— Hvað gerðist eftir að þú varst
búin að vera best í sex ár?
„Ég æíði ágætlega, þyngdist tölu-
vert á þeim tíma sem ég dvaldi í Kan-
ada, samhliða mjög ströngum æfing-
um en ekkert gerðist. Ég var í þjálfun
sem átti að skiia sér í toppárárangri
en þaðgerðist ekki hvað mig varðaði.
Þegar ég gekk í Ægi sagðist ég gera
22