Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1993, Page 47

Íþróttablaðið - 01.06.1993, Page 47
AHEIMAVELLI LYFIN GERÐU ÚT UM ÞÝSKU DEILDINA Það er kunnara en frá þurfi að segja að notkun ólöglegra lyfja meðal íþrótta- manna hefur færst mjög í vöxt á síðustu árum. Hver man t.d. ekki eftir mesta lyfjahneyksli íþróttasögunnar þegar Kanadamaðurinn Ben Johnson féll á lyfjaprófi á Ólympíuleikunum í Seoul og því fjaðrafoki sem varð í kringum þýsku hlaupadrottninguna Katarinu Krabbe? En nú virðist sem svo að notkun ólög- legra lyfja sé ekki lengur bundin við þá sem leggja stund á einstaklingsíþróttir. Haustið 1990 féllu Angelo Peruzzi (nú markvörður Juventus) og Andrea Carn- evale, leikmenn Roma, á lyfjaprófi ít- alska knattspyrnusambandsins en þeir höfðu notað tyf sem þeir sögðu koma í veg fyrir að aukakíló hleddust á þá. Frægustu lyfjahneykslin innan knatt- spyrnunnar eru þó án nokkurs vafa mál Argentínumannanna Claudio Caniggia og Diego Maradona sem báðir féllu á lyfjaprófi og reyndust hafa neytt kóka- ’íns. Maradona var ómyrkur í máli eftir að Caniggia féll á lyfjaprófinu — sagði þetta vera hefnd ítalskra knattspyrnuyf- irt'alda á þeim Caniggia vegna ófara ít- alska Iandsliðsins í HM 1990 en í þeirri keppni var Maradona fyrirliði argen- tínska landsliðsins og Caniggia skoraði mark í leik gegn ftölum en það hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir framvindu keppninnar þar sem Argentínumenn slógu ítali út í undanúrslitum. Þjálfari Stuttgart, Cristoph Daum, hélt því fram í fyrra að leikmenn liðs síns hefðu neytt ólöglegra lyfja til þess að ná sér fyrr og betur af meiðslum. í kjölfar þess voru lyfjareglur innan þýska bolt- ans hertar mjög — í raun svo mikið að þær skiptu sköpurn um úrslit síðastlið- ins keppnistímabils í Þýskalandi. I leik ársins í Þýskalandi áttust við Werder Bremen og Bayern Milnchen. Markvörður Bæjara og fyrirliði liðsins, Raimond Aumann, hafði verið með mikla tannpínu og þurfti að taka kvalast- illandi lyf vegna þess. Þau lyf reyndust vera á bannlista hjá þýska knattspyrnu- sambandinu þannig að Aumann gat ekki leikið þennan mikilvæga leik. Ungur strákur stóð því í markinu og fékk á sig fjögur ódýr mörk — mörk sem reyndust hafa úrslitaþýðingu þegar upp var stað- ið í þýsku deildarkeppninni — no pain no gain! NOKKRAR STAÐREYNDIR ÚR ENSKU ÚRVALSDEILDINNI * Brian Deane skoraði fyrsta markið í úrvalsdeildinni þegar hann gerði fyrra mark Sheffield United gegn Manchester United í 2-1 sigri liðs síns á fjórðu mínútu leiksins. * Mesti áhorfendafjöldi á einum leik var þegar Liverpool vann Everton 1-0, 44.619. * 7-1 sigur Blackburn á Norwich var stærsti sigur liðsins í 30 ár. * í 4-1 sigri Liverpool á Middlesboro skoraði Ian Rush 200. markið á ferlinum. * Sektin, sem Vinny Jones fékk fyrir ráðgjöf myndbandsins „Soccer’s Hard Men“, er sú þyngsta sem enskur fótboltamaður hefur fengið — eða tæpar tvær milljónir króna. * Fyrstu þrennu síðasta tímabils gerði Frakkinn Eric Cantona í 5-0 sigri Leeds gegn Tottenham. * Norwich endaði í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar og tryggði sér þátttökurétt í Evrópu- keppni félagsliða, þrátt fyrir að vera með markatölu í mínus, 61-65. * Andy Turner, framherji Tottenham, er yngsti leikmaðurinn sem hefur gert mark í úrvalsdeildinni. Hann skoraði gegn Everton, 5. september sl., þá 17 ára og 166 daga gamall. * Úrvalsdeildarlið ársins í ensku knattspyrnunni erskipað eftirtöldum leikmönnum: Peter Schmeichel (Man. Utd.), David Bardsley (QPR), Tony Dorigo (Leeds), Gary Pallister (Man. Utd.), Paul McGrath (A. Villa), Roy Keane (Nott. Forest), Paul Ince (Man. Utd.), Gary Speed (Leeds), Alan Shearer (Blackburn), Ian Wright (Arsenal) og Ryan Giggs (Man. Utd.). UREVFILl 68 55 22 Opið allan sólarhringinn, staðsettir á 24 stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Höfuðborgarsvæöið, Flugstöð Leifs Eiríkssonar Fjögurra farþega bílar: 3.900 kr. Fjögurra - átta farþega bílar: 4.700 kr. 4—5—6—8 farþega 47

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.