Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1993, Side 48

Íþróttablaðið - 01.06.1993, Side 48
FRJALSAR Ný kynslóð að taka við f stuttu spretthlaup- unum en útlitið ekki gott í 400 m hlaupi 100 m og 200 m hlaup karla Á áttunda áratugnum voru Bjarni Stefánsson, Vilmundur Vilhjálmsson og Sigurður Sigurðsson allsráðandi í spetthlaupunum hér á landi. Þeir voru miklum hæfileikum gæddir og hefðu eflaust náð enn betri árangri ef meiðsli hefðu ekki oft sett strik í reikninginn, sérstaklega hjá Vil- mundi og Sigurði. Árangur í 100 m hlaupi var hins vegar frekar slakur allan níunda áratuginn. Eigi að síður komu fram nokkrir efnilegir sprett- hlauparar en enginn þeirra náði að hlaupa undir 11,00 sek. Það var ekki fyrr en árið 1991 er Einar Þór Einars- son hljóp á 10,57 sek. og jafnaði ís- landsmet Vilmundar (rafmagnstíma- taka) að árangurinn fór að batna. Efnilegir 18-19 ára strákar, Haukur Sigurðsson, Jóhannes Marteinsson og Atli Örn Guðmundsson hafa allir verið að hlaupa nýlega á um 11,00 sek. og eru líklegir til að veita Einari Þór verðuga keppni á næstu árum. Jón Arnar Magnússon getur einnig náð góðum árangri í greininni á ís- lenskan mælikvarða ef hann leggur áherslu á það. Útlitið í 200 m hlaupi er ekki eins Geirlaug Geirlaugsdóttir á best 12,24 sek í 100 m hlaupi en Einar Þ. Einarsson er íslandsmethafi og bætir það líklega á næstu mánuðum. bjart. í rauninni hafa 400 m hlaupar- ar skipað landsliðssætið í 200 m hlaupi undanfarinn áratug. Einar Þór bætti sig verulega með því að hlaupa á 21,87 sek. í vor en á langt í land með að geta ógnað meti Vilmundar. Búast má við því að a.m.k. 2-3 ár líði þar til að hylli undir að einhver hlaupi á um 21,50 sek. Með dugnaði við æfingar og aukinni reynslu ætti einhverjum af ungu strákunum að takast það. Texti: Sigurður P. Sigmundsson 100 m hlaup karla sek. 10,3 Hilmar Þorbjörnsson, Á '57 10,3 Vilmundur Vilhjálmsson, KR '77 10,57 Einar þór Einarsson, Á '91 10,72 Sigurður Sigurðsson, Á '80 10,72 Jón Arnar Magnússon, HSK '88 10,5 Finnbjörn Þorvaldsson, ÍR '49 10,5 Ásmundur Bjarnason, KR '52 10,5 Bjarni Stefánsson, KR '70 10,77 Oddur Sigurðsson, KR '81 10,6 Haukur Clausen, ÍR '48 200 m hlaup karla sek. 21,23 Vilmundur Vilhjálmsson, KR '77 21,39 Oddur Sigurðsson, KR '84 21,3 Haukur Clausen, ÍR '50 21,3 Hilmar Þorbjörnsson, Á '56 21,58 Sigurður Sigurðsson, Á '80 21,4 Bjarni Stefánsson, KR '73 21,4 Aðalsteinn Bernharðsson, UMSE '85 21,5 Hörður Haraldsson, Á '50 21,83 Þorvaldur Þórsson, ÍR '84 21,6 Ásmundur Bjarnason, KR '54 Til skýringar skal tekið fram að á afrekaskrá í 100 m og 200 m hlaupi er reiknaður munur á handtímatöku og rafmagnstímatöku 0,24 sek. en 0,14 sek. í 400 m hlaupi. 10,3 sek. jafn- 48

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.