Fjölrit RALA - 10.01.1979, Qupperneq 17
-15-
Afbrigði
eru nú í prófunum um 90 afbrigöi.
Hér fer á eftir stutt lýsing á þeim afbrigðum, sem nú eru mest í ræktun
og einnig á nokkrum afbrigðum, sem virðast efnileg, samkvæmt nýjustu tilrauna-
niðurstöðum.
Afbrigðin Rauðar íslenskar, Gullauga, Helga og Bintje eru öll algeng
í ræktun og ættu því flestir að kannast við þau.
Rauðar íslenskar eru hnöttóttar, en þó fremur óreglulegar í lögun. Nafli
og augu djúp. Hýðið dökkrautt en þó misdökkt. Kjötlitur gulur, stundum með
rauðleitu lagi nokkuð innan við hýðið. Grasið er hátt og þátt. Kartöflurnar
liggja dreift í moldinni og uppskera ekki serlega mikil. Þolir vel vélupptöku.
Bragð er ágætt.
Gullauga er svo til hnöttótt, augun rauð og hýðislitur gulur. Nafli og
augu eru meðaldjúp. Kjötlitur gulur. Agætar til matar. Uppskerumikil, en
þolir illa vélupptöku. Gras fremur hátt og gróskumikið.
Helga er lík Gullauga að lögun, en bleikrauð með rauðari dílum kringum
augun. Kjötlitur gulur. Bragðgóð og uppskera mikil. Gras svipaö og á Gullauga.
Stöngulhnýðin liggja þétt í kringum stöngulinn hjá Gullauga, en nokkuð dreift
hjá Helgu.
Bintje er ljósgulmóleit með agnar litlum brúnum doppum. Nafli mjög grunn-
ur og augu lítið áberandi. Lítið eitt aflangar og viðflatar. Bragðgóðar og
uppskera góð. Gras í meöallagi.
Afbrigðið 58-4-11 er sennilega afkomandi Gullauga. Það er hnöttótt, lítið
eitt óreglulegt, hnýðið sterkgult með rauðbleikum dílum í augnaholum. Auga
og nafli greinileg, en ekki djúp. Kjötið er gult. Margar kartöflur undir grasi,
jafnar og fremur smáar. Þéttar og ágætar til átu. Uppskera góð. Gras í
meðallagi.
Afbrigðið T-67-42-89 er norskt. Hnýðið er hnöttótt. Nafli og augu í
meðallagi djúp. Hýðiö er rautt með lítið eitt bláleitum blæ. Kjötið er ljós-
gult. Lítið um smælki. Bragðgóð og uppskera góð. Gras meðalmikið og blóm blá.
Afbrigðið Spartaan er nær hnöttótt eða lítið eitt aflangt. Hýðið na=r
hvítt. Nafli er grunnur, augu meðaldjúp. Kjöt fremur ljósgult. Hnýðin eru
nokkuð jöfn að stærð og smá. Bragðið gott og uppskera allgóð.
Sequoia er allbreytileg að lögun. Sumar eru ílangar, aðrar flatar. Hýðið
er ljósgulbleikt. Nafli og augu meðaldjúp og talsvert áberandi. Kjötið bein-
gult. Uppskera getur orðið mjög mikil og eru hnýðin oft mjög stór og lítið um
smælki. Bragð ekki sérlega gott og lítið, en vegna stærðarinnar gætu þær verið
góðar til steikingar og baksturs. Gras er stórt og þroskamikið.