Fjölrit RALA - 10.01.1979, Síða 34
Ræktun útsæðis
-32-
s j úkdónium.
1 10. gr. laga um verslun með kartöflur o.fl. nr. 31 frá 1943 segir:"
Grænmetisverslun ríkisins skal sjá um, eftir því sem unnt er, að árlega sé
völ á heilbrigðu, völdu, innlendu útsæði. Skal hún þess vegna koma á fót
stofnræktun úrvalskartöflutegunda (eliteræktun) og semja við einstaka kartöflu-
framleiðendur um framleiðslu útsæðis af þessum tegundum og sé þessi ræktun
háð ströngu heilbrigðiseftirliti.”
Ekki varð þó þessari grein laganna framfylgt fyrr en 1948, en þá gerðu
Grænmetisverslun ríkisins og Tilraunaráð jarðræktar með sér samning um fram-
kvæmd á og eftirlit með þessari stofnrækt. Er þar gert ráð fyrir, að tilrauna-
stöðvarnar í jarðrækt sjái um fyrsta lið stofnræktarinnar og útvegi þannig með
úrvali hreinkynja og heilbrigt útsæði af Gullauga, ölafsrauð, Alpha, Ben Lomond
og Skán. Grænmetisverslunin semji síðan við kartöfluframleiðendur um framhalds-
ræktun á því útsæði, er tilraunastöðvarnar framleiða. Ötsæði það er tilrauna-
stöðvarnar framleiddu skyldi merkt með A og framhalds-stofnræktað útsæði með
B (Arni Jónsson 1954).
Tilraunastöðvarnar á Akureyri, Sámsstöðum og Skriðuklaustri hófu árið 1948
stofnræktun, Akureyri með Rauðar íslenskar og Skán, Sámsstaðir með Ben Lomónd
og Gullauga og Skriðuklaustur með Gullauga. Á* Sámsstöðum voru um 1,3 ha undir
stofnrækt fyrstu árin, en 1953 mistókst ræktunin vegna sjúkdóma, aðallega
stöngulsýki og fékk stöðin útsæði frá Akureyri 1954, sem gafst vel það árið.
Ekki heyrist meir um stofnrækt á Sámsstöðum eftir það. Á Skriðuklaustri var
Gullauga stofnræktað 1948, 49 og 50, en þá var stofninn kominn með slæma
"dílaveiki", sem mun vera vírussjúkdómur (tíglaveiki) og ákveðið að fá nýjan
stofn. Var fenginn stofn frá Mjóafirði 1951, en eftir 1952 er ekki minnst
aftur á stofnrækt á Skriðuklaustri. Svo virðist sem Sámsstaðir og Skriðuklaust-
ur hafi aldrei látið frá sér stofnútsæði til framhaldsræktunar. Öðru máli
gegnir um tilraunastöðina á Akureyri. Árið 1951 seldi stöðin til framhalds-
ræktunar 35,0 hkg af Rauðum íslenskum og 17,0 hkg af Skán. Hætt var við Skán
um 1954, Ben Lomond var með í nokkur ár, en hætt við það um 1956. Byrjað var
með Gullauga í stofnrækt 1953, Bintje 1958 og Helgu um 1966. Tvö önnur afbrigði
voru með í stofnrækt í nokkur ár, voru það Eva og Rya (Skýrslur tilraunastöðv-
anna 1947-1956).
1 landi tilraunastöðvarinnar á Akureyri féllu kartöflugrös oft snemma af
völdum frosta. Uppskera A-stofnsins var af þessum sökum oft lítil og smágerð
og var því ákveðið að flytja A-ræktina á öruggari stað. Var það gert vorið
1968 og tók þá við A-ræktuninni Jóhann Bergvinsson, bóndi á Áshóli, Grýtubakka-