Fjölrit RALA - 10.01.1979, Page 49

Fjölrit RALA - 10.01.1979, Page 49
-47- Lega ræktunarstaða miklu vatni og er þétt og þung, enda eru eiginleikar samloðunar og viðloðunar ríkjandi. Rakur leir loðir því við allt, sem hann kemur í snertingu við. Þéttur jarðvegur er vatnsheldinn og kaldur og reynist oft of loftsnauður. Auk þess hamlar hann, að rætur nái eðlilegri dreifingu. Á yfirborði hættir leirjörð til að mynda harða skorpu eftir miklar úr- komur, sem síðan springur þegar hún þornar. Sá kostur fylgir þó leirjörð að vera fremur fastheldin á næringarefni og geyma þau vel. Að auki er hún stein- efnarík. 1 leirjarðvegi verður vinna við upptöku erfið og kostnaðarsöm, auk þess sem hnýði geta verið misvaxin, bragðvond og jafnvel lin við suðu. Hnýðin eru oftast þakin mikilli mold við upptöku, sem torveldar og seinkar mjög flokkunar- störfum. Nú er leirjörð sjaldan með öllu eindregin. Oftar er hún blönduð efnum, sem bæta kornagerð hennar og draga þar með um leið úr þeim alvarlegu ókostum, sem nefndir hafa verið. Þannig getur leirjörð verið ýmist sandblendin eða mold- blendin, eftir því hvort í henni gætir sands eöa lífrænna efna. Eins getur verið um hvoru tveggja að reeða. Reynast hlutföll þessara efna umtalsverð, verður leirjörð að öllu leyti þjálli í allri meðferð og því hæfari til ræktunar. En í mörgum tilvikum hefur þannig jarðvegur reynst sérstaklega vel til kartöflurækt- unar, hafi hlutföll sands og moldefna verið í því viðunandi ástandi að geta stuðlað að hæfilegri samkomun. 5. Leirmóajörð. Hún er mikið notuö til kartöfluræktunar. Leirmóajörð getur verið mjög breytileg að gerö. Eðliskostir hennar fara eftir því, hversu mikið hún er blönduð fínum leir eða sandi, en um hvort tveggja getur verið að ræða. Leir- móajörð hitnar yfirleitt frekar seint á vorin, nema hún sé því sandblendnari, en heldur jafnari hita en mýrarjörð yfir sprettuskeiðið. Af þessum ástðBðum getur hún líka reynst seinleg til undirbúnings niðursetningar, auk þess sem vinna við upptöku verður ávallt erfiðari en á sandjörð, sé leir mjög áberandi. Við þannig aðstæður reynist og loftrás jarðvegsins fremur treg. Leirmóajarðvegur heldur mjög vel í sér raka og áburðarefnum og á það yfirleitt til að skila jafnari uppskeru en vænta má úr öðrum jarðvegi í þurrum sumrum. Sé fínn leir og sandur áberandi í leirmóajörð, verða kartöflur oft harla óhreinar við upptöku í vætusamri uppskerutíð, en það getur aukið mjög á vinnukostnað vegna nauðsynlegrar hreinsunar við rögun.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.