Fjölrit RALA - 10.01.1979, Page 115

Fjölrit RALA - 10.01.1979, Page 115
-113- Næringargildi Auk þess sem afbrigðin ráða miklu um C-vítamíninnihald kartaflna, skipta umhverfisþættir þar samt höfuðmáli. Kartöflur ræktaðar í sendnum jarðvegi eru mun C-vítamín auðugri en þær, sem ræktaðar eru í moldarjarðvegi, eins hefur aukin notkun köfnunarefnisáburðar þau áhrif að C-vítamínmagnið minnkar töluvert mikið (J. Augustin 1975, J. Augustin o.fl. 1975). Uppskerutíminn hefur einnig mikil áhrif. Kartöflur, sem teknar eru snemma upp, innihalda mun meira C-vítamín en þær, sem teknar eru síðar upp (J. Augustin o.fl. 1975) Við geymslu rýrnar C-vítamínmagnið ört (J. Augustin 1975, J. Augustin o.fl. 1975, Júlíus Sigurjónsson, 1957). Niðurstöður Júlíusar sýna, að fyrstu tvo mánuðina í geymslu minnkar C-vítamínmagnið um 50%, en eftir það hægar. Næstu 6 mánuðina gerist þetta síðan það hægt, að öll lækkunin á þeim tínanemur ekki nema 30-35%. Eftir að búið er að geyma kartöflurnar í 2-3 mánuði er lítill munur á C-vítamínmagni milli einstakra afbrigða (J. Augustin 1957, Júlíus Sigurjönsson 1957). Tilraunir á Russet Burbank afbrigðinu sýna, að línulegt samband er á milli rýrnunar á C-vítamíni og logarithmans af geymslutímanum (J. Augustin o.fl. 1975). Slíkt samband mætti eflaust finna fyrir fleiri afbrigði. Matreiðsla eyðileggur alltaf stóran hluta C-vítamínsins. Rannsókn, sem gerð var í Finnlandi á 1200 matarskömmtum, sýndi að 34% af því C-vítamíni, sem er í ómatreiddri fæðu eyðileggst við matreiðslu (P. Roine o.fl.). Iækkunþessi er mjög misjöfn eða frá 17-96% eftir því við hvaða fæðutegund var átt. Niðurstöður Júlíusar Sigurjónssonar sýna, að við venjulega suðu á flysjuð- um kartöflum lækkar C-vítamíninnihaldið um 20%. Rannsóknir A.A.M.B. Domah o.fl. (1974) sýndu að aukinn saltstyrkur (NaCl) í vatninu, sem kartöflurnar eru soðnar í, veldur því, að C-vítamínmagnið lækkar ennþá meira. Við brúnun kartaflna eftir suðu getur allt að 70% af C-vítamíninu eyði- lagst (0. Pelletier o.fl. 1977). 9. Steinefni. Ekki er vitað um neinar innlendar rannsóknir, sem fram hafa farið á stein- efnainnihaldi kartaflna. 10. Aukefni. Komið hefur í ljós við rannsóknir á nítrat og nítríti í grænmeti á Rann- sóknastofnun landbúnaðarins, að töluvert magn af nítrati getur verið í kartöflum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.