Fréttablaðið - 24.11.2020, Síða 12

Fréttablaðið - 24.11.2020, Síða 12
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is Það er staðreynd að fjörutíu til fimmtíu prósent þeirra sem leggjast inn á geðdeild hér á landi eiga börn. Á næsta kjörtímabili verður ekkert yfirfall á ríkissjóði til að dæla út peningum. Í liðinni viku efndu Geðhjálp og Geðverndarfélag Íslands til málþings um börn foreldra með geð-rænan vanda undir yfirskriftinni: Taktu eftir mér – hlustaðu á mig.Þar tóku til máls innlendir og erlendir sér-fræðingar með það að markmiði að greina stöðu þessara barna og hvað gera megi til að bæta hana. Það er staðreynd að fjörutíu til fimmtíu prósent þeirra sem leggjast inn á geðdeild hér á landi eiga börn. Skortur er á hérlendum rannsóknum um afleiðingar þess fyrir börn að alast upp hjá foreldri sem þjáist af geðrænum veikindum, en samkvæmt erlendum rann- sóknum eru auknar líkur á að þessi sömu börn greinist sjálf með geðrænan vanda. Þessi börn eru jafnframt líklegri til að flosna upp úr námi. Þeim er hættara við að missa heilsu og starfsgetu og hlutfall þeirra sem hafa verið í umönnunarhlutverki sem börn er hærra meðal öryrkja. Stuðnings- og ráðgjafarsetrið Bergið tekur á móti ungu fólki sem þarf á aðstoð að halda en um 40 prósent þeirra sem þangað leita hafa alist upp hjá foreldrum með geðsjúkdóma eða fíkn. Áhrif þess að alast upp hjá einstaklingi sem er veikur á geði og þurfa að taka að sér umönnunarhlutverk sem er flestum fullorðnum ofviða, vara nefnilega út lífið. Börn í þessari stöðu þurfa oft að fullorðnast hratt, taka jafnvel ábyrgð á veiku foreldri sínu, yngri systkin- um, heimilinu og auðvitað sjálfu sér. Einmitt á mótandi árum þegar börnin þurfa sem mestan stuðning sjálf. Þau upplifa oft skert félagsleg tengsl og fyrir því geta verið margs konar ástæður; skortur á hvatningu og stuðningi, tímaleysi, ef börnin þurfa að taka að sér mörg önnur hlutverk og svo er það skömmin sem enn hefur ekki verið upprætt. Börn sem alast upp hjá geðrænt veiku foreldri bjóða oft ekki vinum heim því metnaðarfullur feluleikur á sér stað. Þau vilja ekki að vinirnir sjái ástandið heima fyrir og leggja sig þá fram um að enginn viti af stöðunni. Ef foreldrið hefur skert innsæi í eigin veikindi er ólíklegt að talað sé um þau á heimilinu. Barnið þarf þá að fylla í eyðurnar um hvað hrjáir mömmu eða pabba, hvernig sjúkdómurinn muni þróast og fær heldur ekki svar við stóru spurningunni: Mun ég veikjast líka? Rannsóknir sýna að umtalsverð ábyrgð í umönnun og stuðningi við foreldri getur haft skaðleg áhrif á til- finningalega, líkamlega og félagslega heilsu barna. En hver styður svo við bakið á þessum börnum? Þar liggur stóri vandinn. Börn sem alast upp hjá foreldrum með alvarlegan geðrænan vanda eru ekki mjög sýni- legur hópur hér á landi og skortur á úrlausnum og stuðningi við þau er aðkallandi. Sannað er að trúnaðarsamband við traustan fullorð- inn einstakling er mikilvægt börnum. Mörg umræddra barna upplifa ekkert slíkt samband og því verðum við að breyta. Til þess þarf skimun í skólum til að hægt sé að greina mögulegan vanda. Eins þarf heilbrigðis- og félagslega kerfið að bregðast við. Þegar manneskja greinist með geðsjúkdóm ætti það að vera ófrávíkjanleg regla að fjölskylda hennar fái raunverulegan stuðning. Þessi börn mega ekki upplifa sig ein í heiminum! Ein í heiminum Alþýðusambandið hefur áhyggjur af aukinni verðbólgu. Það leiddi hugann að þeirri þver-sögn að Ísland er eina landið í Evrópu um þessar mundir sem glímir samtímis við kreppu og verðbólgu. Í öðrum löndum stæðu öll spjót á stjórnendum seðlabanka ef svo öfugsnúin staða kæmi upp í þjóðar- búskap þeirra. En við getum ekki tekið Ásgeir Jónsson á beinið því þetta verður ekki skrifað á hans reikning. Verðbólgan er ekki að aukast vegna kreppunnar, sem sóttvarnaráðstafanir okkar og annarra þjóða hafa leitt til. Við fáum á okkur meiri skell en aðrar þjóðir vegna krónunnar og þeirra miklu galla sem henni fylgja. Þessi þversögn um verðbólgu í kreppu sýnir einfaldlega grundvallarveikleika í kerfinu. Við sjáum reyndar þversagnirnar víða. Á sama tíma og ríkis- stjórnarflokkarnir samþykkja tug milljarða árlegan kostnað við krónuna setja þeir á þessum tímum milljarða niðurskurðarkröfu á Landspítalann. Við megum ekki loka augunum fyrir þeirri brotalöm og það væri ábyrgðarleysi að benda ekki á þessa van- kanta. Gjaldmiðillinn er of smár til þess að unnt sé að tryggja nægjanlegan stöðugleika á alþjóðlegum, opnum og frjálsum fjármagnsmarkaði. Og án stöðug- leika fær atvinnulífið ekki nauðsynlega viðspyrnu til þess að hlaupa hraðar. Og án stöðugleika bætum við ekki lífskjör heimilanna á ný. Og án stöðugleika verjum við ekki velferðarkerfið. Frá mínum bæjardyrum séð sýnir þessi þversögn að við megum ekki láta íhaldssemi og fordóma verða að hindrunum á vegi okkar Íslendinga. Viðspyrna efna- hagslífsins byggist ekki á nauðsynlegum skammtíma- ráðstöfunum einum saman. Eftir veiruna þurfum við að horfa til lengri tíma og þora að takast á við kerfis- uppfærslur, sem geta hjálpað okkur í því sameiginlega verkefni að sækja fram á ný og skapa meiri verðmæti í stöðugu efnahagsumhverfi. Á næsta kjörtímabili verður ekkert svigrúm til að dæla út peningum. Við þurfum að segja fólkinu í landinu hvernig við ætlum að bregðast við til þess að geta staðið vörð um velferðarkerfið. Það er ný staða, sem kallar á nýjar lausnir. Þversögn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar Meiri hárraunir Þeir hverfa nú einn af öðrum kóvíd-kollarnir sem hafa verið um allt þann tíma sem hársnyrtistofur voru lokaðar. Flestir sem á annað borð þurfa að fara í klippingu af og til voru komnir með hár sem minnti á forsætisráðherra Breta og þeir sem verst urðu úti á þessu tíma- bili virtust hafa tekið Trump sér til fyrirmyndar. Verri var þó staða þeirra sem ofan á klipp- ingu láta lita hár sitt reglulega og hafa þurft að lita sjálfir við vaskinn. Í síðustu viku bar fyrir augu dæmi um hvernig það getur leikið menn grátt þegar mönnum hitnar í hamsi undir suðandi myndavélum og hárið missir skyndilega lit. Borgarlæknir Það er læknismenntun Dags Bjé að þakka að Íslendingar eru að að fara svona svakalega vel út úr kóvíd, sagði Michael Bloomberg, fyrrverandi borgarstjóri New York-borgar. Þetta sáu fáir fyrir. Menntun lækna, bæði manna og dýra, er nefnilega vanmetin og læknisþekking þeirra aug- ljóslega skiptir miklu. Nefna má samgöngur undir stjórn dýralæknanna Sigurðar Inga ráðherra og Bergþóru Þorkels- dóttur í Vegagerðinni. Svo var dýralæknirinn Árni Mathiesen líka ráðherra einu sinni. En úr því að læknismenntunin skilar þessu, hvernig ætli hefði farið væri borgarstjóri skipu- lagsfræðingur? LÆGSTA VERÐIÐ Í ÖLLUM LANDSHLUTUM OG ÓDÝRASTA ELDS- NEYTI LANDSINS Á DALVEGI, REYKJAVÍKUR- VEGI OG Á MÝRARVEGI, AKUREYRI SKILYRÐISLAUST Orkan – Ódýrt fyrir alla 2 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.