Fréttablaðið - 24.11.2020, Page 32

Fréttablaðið - 24.11.2020, Page 32
Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@ frettabladid.is Jóhanna Guðrún hefur komið sér vel fyrir í fallegu húsi í Hafnar- firði ásamt Davíð Sigurgeirssyni, eiginmanni sínum, og tveimur börnum, að ógleymdum hund- unum tveimur sem taka blaða- manni fagnandi þegar hann ber að garði. Þau eru byrjuð að undirbúa jólin í rólegheitum en jólatíminn hefur alltaf verið í miklu uppá- haldi hjá Jóhönnu. „Ég elska jólin. Ég kynntist fallegum jólahefðum strax í æsku og held að svo sé hjá mörgum sem eru mikil jólabörn í sér. Mamma mín, Margrét Stein- dórsdóttir, gaf sér alltaf tíma fyrir okkur systkinin á aðventunni, en ég á tvo eldri bræður. Við mamma bökuðum mikið saman, fórum í göngutúra í snjónum með hundana okkar og skreyttum heimilið. Mér fannst þetta alltaf rosalega gaman,“ segir Jóhanna, og ekki leynir sér að hún á góðar minningar frá æskujólunum. „Þegar ég varð eldri og fór að vinna meira, sem ég byrjaði reyndar mjög snemma að gera, hefur jólatörnin hjá mér byrjað strax í október og náð hápunkti með tónleikahaldi í desember. Október fer vanalega í æfingar, skipulagningu og upphitun fyrir tónleika en þá byrja ég að hlusta á jólalög og finnst það æðislegt. Þótt dagarnir geti oft verið langir og strembnir er þetta frábær tími, því þá hitti ég svo marga úr tón- listargeiranum en tónlistarfólk er það skemmtilegasta í heimi,“ segir Jóhanna með bros á vör. Verður afslappaðri með aldrinum Eftir að Jóhanna og Davíð rugluðu saman reytum sínum og stofnuðu heimili hafa þau skapað sínar eigin jólahefðir með börnunum sínum tveimur sem eru fimm ára og átján mánaða. „Við Davíð erum orðin mjög frjálsleg í þessum efnum en það mótast líka af því hvað við erum alltaf mjög upp- tekin í kringum jólin svo annað er óraunhæft. Stundum er ég með fimm gigg á dag í nóvember og desember og held vanalega tvenna tónleika á Þorláksmessu í Vídalíns- kirkju. Davíð er líka önnum kafinn og spilar oftast við messu á aðfangadag. Ég viðurkenni að inn við beinið er ég dálítið kassalaga varðandi jólahefðir, enda vön því frá barnæsku að hlusta á kirkju- klukkurnar hringja inn jólin í útvarpinu á mínútunni sex og þá knúsast allir og setjast síðan niður að borða. Við Davíð erum hins vegar oftast með allt niður um okkur á aðfangadag og ekkert tilbúið klukkan sex. Þá eigum við kannski eftir að klæða börnin í jólafötin, pakka inn nokkrum gjöfum og maturinn er enn í ofninum. Ég hef tekið þann pól í hæðina að það er allt í lagi þótt það sé ekki allt tilbúið klukkan sex. Þá seinkum við bara öllu, borðum seint og opnum pakkana seint, það er bara þannig. Eiginlega er það bara notalegt. Maður getur ekki gert allt og ég skil ekki fólk sem er með allt á hreinu, búið að gera allt í október eða nóvember, eldar allan mat frá grunni og börnin alltaf í hreinum fötum,“ segir Jóhanna kankvíslega. „Ljósi punkturinn við kórónuveirufaraldurinn er að okkur gefst meiri tími til að vera með börnunum okkar og við fáum Jólabarnið Jóhanna „Ég elska jólin. Ég kynntist fal- legum jólahefð- um strax í æsku og held að svo sé hjá mörgum sem eru mikil jólabörn í sér.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona setti sig í jólagírinn strax í sumar þegar hún hóf undirbúning að nýrri jólaplötu sem kom út í síðustu viku. Hún er mikið jólabarn og finnst þessi tími ársins alltaf jafnskemmti­ legur. Ljósi punkturinn við kórónuveiru­ faraldurinn er að okkur gefst meiri tími til að vera með börnunum okkar og við fáum tækifæri til að njóta aðventunnar tækifæri til að njóta aðventunnar,“ bætir hún við og nefnir að sér finnist jólabaksturinn stór hluti af jólaundirbúningnum og er þegar búin að baka sörur með vinkonu sinni. „Svo baka ég lakkrístoppa nokkrum sinnum, því þeir eru fljótir að hverfa.“ Heitt kakó hjá afa og ömmu Foreldrar Jóhönnu ætla að vera hjá þeim á aðfangadag og samninga- viðræður um jólamatinn eru þegar hafnar, að hennar sögn. „Ég er vön því að fá graflax í forrétt, en pabbi, Jón Sverrir Sverrisson, bæði veiðir laxinn og grefur hann. Í aðalrétt er vanalega hamborgarhryggur og svo er heimalagaður ís í eftirrétt, sem mamma býr til. Við pabbi getum vart hugsað okkur jólin án þess að fá graflax en ætlum að gefa eftir aðalréttinn í þetta sinn og við verðum með franskar andabringur og tilheyrandi. Davíð og pabbi sjá að mestu um matinn, en þeir eru báðir afbragðskokkar og gott teymi.“ Þegar Jóhanna var yngri var hefð fyrir því að heilsa upp á afa hennar og ömmu eftir að búið var að borða og opna jólagjafirnar. „Þá fóru pabbi og systkini hans með sínar fjölskyldur til afa og ömmu og við fengum öll heitt kakó. Við stöldruðum ekki lengi við en þetta eru ljúfar minningar. Mér finnst þetta svo skemmtileg og góð hefð, sem væri gaman að endurvekja í einhverri mynd.“ Jólaplatan tekin upp í sumar Í ár verður jólatörnin með öðru sniði en vanalega því Jóhanna var að senda frá sér nýja jólaplötu, Jól með Jóhönnu. Hún segist ætla að einbeita sér að sínu efni næstu vikurnar, en kórónuveirufar- aldurinn setur vissulega strik í allt jólatónleikahald. „Ég er að skoða hvernig hægt er að leysa það, hvort sem ég held marga en fámenna tónleika eða streymi tónleikum,“ segir Jóhanna bjartsýn. Á jólaplötunni eru tíu lög, fimm frumsamin lög og fimm lög sem margir þekkja og þykir vænt um. „Ég fékk góða tónlistarmenn til liðs við mig en ég kastaði út fullt af línum og fékk góð viðbrögð úr ólíkum áttum, sem ég er rosa- lega þakklát fyrir. Á plötunni eru ný lög eftir Bubba Morthens, Jón Jónsson, Sverri Bergmann, Gunnar Þórðarson og Davíð, manninn minn. Davíð útsetti alla plötuna en það er miklu meiri vinna en margir halda. Ég valdi fimm jólalög sem mér finnst gaman að syngja, en mér finnst skemmtilegt að hafa þetta í bland. Á plötunni er til dæmis rólegt jólalag, sem ég get ímyndað mér að dóttir mín myndi vilja hlusta á fyrir svefninn. Platan verður aldrei sterkari en lögin sem eru á henni,“ segir Jóhanna en fyrsta lagið, Löngu liðnir dagar, er komið í spilun og fer vel af stað. Platan kemur út á geisladiski, vínylplötu og á Spotify og er hægt að kaupa hana hjá Heimkaup.is og Aldamusic.is. „Við hjónin vorum því komin í jólaskap snemma í sumar en það er eiginlega ótrúlegt að það var ekk- ert skrítið,“ segir Jóhanna Guðrún að lokum. 24. nóvember 2020 JÓL 2020 10 FRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.