Fréttablaðið - 24.11.2020, Page 36
Elín
Albertsdóttir
elin
@frettabladid.is
Listin er Rósu í blóð borin því hún
hefur alltaf haft gaman af alls kyns
föndri og að gera fínt í kringum
sig. Meðal þess sem hún býr til eru
kartöflustimplar sem hún notar
síðan til að útbúa sinn eigin gjafa-
pappír og gera hann persónulegan.
Rósa segir einnig skemmtilegt
að skreyta pakkana með ýmsum
greinum eða lifandi blómum. „Það
er hægt að gera jólapakkana mjög
fallega án þess að kosta miklu til.
Ég nota til dæmis Fréttablaðið
sem gjafapappír og vel þá fallegar
myndir og texta úr blaðinu. Um að
gera að nýta blöð og tímarit til að
pakka inn. Síðan er hægt að tína
köngla eða þurrka appelsínur sem
skraut ásamt fallegum borðum,
bara nota hugmyndaflugið.“
Rósa segist ekki vera neitt sér-
staklega mikið jólabarn og sé
hrifnust af náttúrulegum litum.
„Ég er hrifin af greni og könglum
ásamt því sem finna má í nátt-
úrunni. Glimmer og glys höfðar
ekki til mín á sama hátt,“ segir
hún. „Hjá mér eru jólin til að njóta
án streitu. Ég geri ekkert af skyldu-
rækni heldur frekar ef ég er í stuði
til þess,“ segir Rósa og bætir við að
hún búist við að það verði mikið
að gera í blómabúðinni fyrir jólin.
„Verslunin var opnuð í Suður-
veri í september og við erum að
undirbúa skreytingar fyrir jólin.
Aðventan verður skemmtileg í
búðinni með aðventukrönsum og
skreytingum fyrir leiði ástvina.“
Notar Fréttablaðið sem gjafapappír
Glæsilegir pakkar sem Rósa Björg útbjó til að gefa lesendum hugmyndir.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Rósa Björg er einkar listræn og hefur gott auga fyrir að endurnýta hluti.
Síða úr Frétta-
blaðinu hefur
hér fengið nýtt
hlutverk sem
gjafaumbúðir.
Teikningin
hans Halldórs
skreytir pakk-
ann.
Rósa notar brúnan umbúðapappír og stimplar á hann með kartöflustimpl-
um til að gera hann persónulegan.
Önnur síða úr Fréttablaðinu sem
fékk nýtt hlutverk. Ekki er verra
þegar lifandi blóm fær að vera með.
Þurrkaðar appelsínur, könglar og
dagblaðapappír.
Pakkarnir eru
hver öðrum
glæsilegri.
Jólatré og könglar setja svip á
þennan pakka.
Pappírinn sem Rósa býr til er mjög
fjölbreyttur og skemmtilegur.
Rósa Björg Óladóttir, versl-
unarstjóri hjá Blóm og fiðrildi, er
mikill fagurkeri og hefur einstak-
lega næmt auga fyrir fallegum
hlutum. Hún notar óhefðbundn-
ar skreytingar til innpökkunar,
til dæmis Fréttablaðið.
24. nóvember 2020 JÓL 2020 14 FRÉTTABLAÐIÐ