Fréttablaðið - 24.11.2020, Page 38

Fréttablaðið - 24.11.2020, Page 38
150 g smjör 2 dl hrásykur 2 egg ½ dl safi úr appelsínu Rifinn börkur af einni appelsínu 2 dl fínmalað spelt 1 dl möndlumjöl 1 tsk. lyftiduft 1 tsk. vanilluduft Byrjið á því að hita ofninn í 175 °C. Smjör og hrásykur þeytt saman. Einu eggi í senn bætt út í. Þurr- efnunum bætt út í. Því næst er appelsínusafanum og berkinum bætt saman við. Að lokum er allt hrært saman í stutta stund og skal passa að hræra ekki of lengi svo kakan verði ekki seig. Deiginu hellt í meðalstórt, kringlótt form og sett inn í ofn. Bakið við 175 °C í um það bil 40 mínútur. Berið fram á ein- faldan hátt og hægt er að skreyta kökuna með grænum greinum að eigin vali. Við mæðgurnar njótum þess að verja aðventunni saman ásamt fjölskyldunni. Hver jól erum við með ákveðið jólaþema sem breytist ár frá ári. Núna í ár er þemað grænar greinar, náttúru- legir jólapakkar, þar sem litir og form er sótt í náttúruna.“ Ein af uppáhaldsgæðastundum þeirra mæðgna er að pakka inn jólapökkunum og skreyta. „Hefðir og siðir skipta okkur miklu máli. Við leggjum mikið upp úr því að pakkarnir séu fallegir og inni- haldið kærleiksríkt.“ Það er heilög stund hjá þeim mæðgum og ræður einfaldleikinn ríkjum þegar kemur að því að pakka inn. „Í ár er eru það bastbönd, hvítur pappír og brúnir pokar sem prýða jólapakkana og tóna vel við náttúrulitina,“ segja þær mæðgur og elska að nostra við hvert smáatriði. „Okkar gæða- stund er tebolli, innpökkun, kerta- ljós og smákökubakstur. Hátíðin fyrir okkur nær hámarki sínu í miðnæturmessu í Hallgrímskirkju á aðfangadagskvöld jóla.“ Greinarnar og jólatréð sótt í sveitina Einnig hafa þær Stella og Inga Bryn- dís gaman af því að setja saman jólakransa. „Jólakransarnir okkar í ár eru handofnir úr grófu ullartvídi og grófriffluðu bómullarflaueli. Síðan eru greinarnar og jólatréð sótt í sveitina og skreytingarnar eru einfaldar þar sem greinarnar fá að njóta sín,“ segja þær mæðgur. Jólin eru hið eðlilega ástand mannsins „Við höldum mikið upp á aðvent- una og aðdraganda jóla. Þessi einstaklega góða appelsínukaka með jólaívafi, sem okkur langar að deila með lesendum, gleður okkur alltaf jafn mikið og tendrar jóla- stemninguna í hjarta okkar. Kakan á uppruna sinn að rekja til Frakk- lands og Frakkar kunna að baka einfaldar, gómsætar kökur sem bragð er af. Það var góður maður sem eitt sinn sagði: „Jólin eru hið eðlilega ástand mannsins.“ Þannig ætti okkur öllum að líða.“ Skreytum hús með greinum grænum Bastbönd, hvítur pappír og brúnir pokar passa vel við hvít leirker og jólakúlurnar sem eru handofnar. Látlaus kakan laðar augað að, Sesarkaka með jólaívafi. Mæðgurnar Bryndís Stella Birgisdóttir innanhússhönnuður, sem ávallt er kölluð Stella, og Inga Bryndís Jónsdóttir stílisti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Stílhreint og fallegt heimili. Mæðgurnar Bryndís Stella Birgisdóttir innanhússhönnuð- ur, sem ávallt er kölluð Stella, og Inga Bryndís Jónsdóttir stílisti eru mjög samrýndar og njóta þess að undirbúa aðventuna og jólin saman. Þær eiga sínar gæðastundir saman og leggja mikið upp úr einfaldleikanum. Sjöfn Þórðardóttir Sesar-appelsínukaka með jólaívafi Fallegar gersemar Vefverslun og sölustaðir á oskabond.is í jólapakkann hennar 24. nóvember 2020 JÓL 2020 16 FRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.