Fréttablaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 74
Skáldsagan A Christmas Carol,
eftir Charles Dickens, kom út
þann 19. desember 1843. Sögu
þessa hafa eflaust f lestir heyrt eða
séð að minnsta kosti einu sinni
um ævina, enda hefur hún verið
útfærð ótal sinnum undanfarin
177 ár.
Sagan hefur margsinnis verið
sviðsett sem leikrit, söngleikur,
óperur og ballettar að ógleymdum
öllum þeim kvikmyndum og sjón-
varpsþáttum sem byggja á eða eru
unnin upp úr sögunni um hinn
níska og bitra Ebenezer Skrögg.
Sagan er sígild af þeirri einföldu
ástæðu að kjarni hennar er sam-
mannlegur auk þess sem hún er
vitaskuld mjög viðeigandi á hverju
einasta ári þegar við getum öll
tengt við boðskap hennar.
Jólasaga Dickens, A Christmas
Carol, er í hugum margra órjúfan-
legur hluti jólanna á meðan aðrir
kunna að hafa fengið sig fullsadda
af því sem fyrir þeim er lítið annað
en gömul tugga um hundleiðin-
legan fýlukall.
Jólasagan er þó til í slíkum
fjölda ólíkra útgáfa að það hlýtur
að vera nánast ómögulegt að geta
ekki fundið í það minnsta eina
sem hægt er að láta sér líka við.
Þótt hér sé aðeins brotabrot af
úrvalinu eru hér nokkrar góðar
útgáfur þessarar klassísku jóla-
sögu sem er tilvalið að kíkja á yfir
hátíðarnar.
Jólasagan endalausa
Jólasaga Dickens, A Christmas Carol, sem kom út árið 1843 er í huga
margra órjúfanlegur hluti jólanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Hvort sem maður elskar Jóla-
sögu Dickens eða er kominn með
algjört ógeð á henni er eiginlega
óhjákvæmilegt að sjá Skröggi
gamla bregða fyrir í einhverri
mynd í kringum jólin. Kvik-
myndaútgáfur sögunnar eru að
vísu svo margar og fjölbreyti-
legar að eflaust ættu allir að geta
fundið í það minnsta eina við sitt
hæfi.
Edda Karítas Baldursdóttir
Scrooged (1988)
Jólasaga í nútímabúningi.
Myndin fjallar um Frank Cross
(Bill Murray), forstjóra sjón-
varpsstöðvar, sem hyggst
sýna Jólasögu Dickens í beinni
útsendingu um jólin.
Frank er, eins og Skröggur,
sjálfselskur leiðindapúki sem
hikar ekki við að reka fólk
og svívirða þrátt fyrir jóla-
hátíðina. Eins og í Jólasögu er
Frank heimsóttur af þremur
draugum sem sýna honum
villu síns vegar og minna hann
á hinn sanna anda jólanna. Kar-
en Allen, sem er þekktust sem
Marion úr Indiana Jones-mynd-
unum, fer með eitt aðalhlut-
verkanna.
Scrooge, or, Marley's Ghost
(1901)
Elsta kvikmyndaða útgáfa
Jólasögu sem varðveist hefur
er aðeins um það bil sex
mínútur að lengd. Þessi þögla
og svarthvíta stuttmynd
hefst þegar Bob Cratchit vísar
manneskju út af skrifstofu
Skröggs að kvöldi aðfanga-
dags og henni lýkur þegar
Skröggur fær að sjá sína eigin
gröf.
Draugar liðinna, núverandi
og komandi jóla birtast ekki í
myndinni heldur kemur það
í hlut draugs Marley, félaga
Skröggs, að vitja hans í þeirra
stað. Þessa 119 ára gömlu
útgáfu er að finna á YouTube
og um að gera að kíkja á hana
um jólin.
Carry on Christmas (1969)
Bresku Áfram-grínmyndirnar,
Carry On, lifa líklega enn í
minningum einhverra en þær
voru framleiddar á árunum
1958–1978. Fjögur ár í röð
voru gefnir út sérstakir Carry
On-jólaþættir og var sá fyrsti
grínútgáfa af Jólasögu Dick-
ens. Myndin skartaði fastaliði
úr Carry On-hópnum með
hrukkudýrið Sidney James
fremstan í flokki sem Scrooge
en Barbara Windsor, Hattie
Jacques og Charles Hawtrey
eru ekki langt undan.
Scrooge (1970)
Scrooge er Jólasaga með
hefðbundnu sniði fyrir utan
að hún er færð í söngleikja-
búning. Þeir sem eru hrifnir
af söngleikjum en minna fyrir
Jólasögu gætu gefið þessari
séns. Stjörnustríðs-aðdá-
endur fá síðan smá bónus þar
sem enginn annar en sjálfur
Obi-Wan Kenobi, Sir Alec
Guinnes, fer með hlutverk Ja-
cobs Marley. Aðalhlutverkið
er svo í höndum ekki síðri
leikara, þar sem Albert Finney
bregður sér í gervi Skröggs.
Mister Magoo's Christmas
Carol (1962)
Eins og hér kemur fram eru
til allnokkrar sniðugar teikni-
myndaútgáfur af þessari
klassísku sögu.
Hinn staurblindi
Mister Maggoo
er þó kannski
ekki beint
karakterinn
sem maður
ímyndar sér
í Jólasögu-
búningnum
og hvað þá Mr.
Maggoo í söng-
leikjaformi.
Bugs Bunny's Christmas
Carol (1979)
Þessi mynd var hluti af um
það bil hálftíma löngum
þætti með nokkrum jóla-
stuttmyndum. Í Jólasögu-
hlutanum er það Kalli sjálfur,
en ekki draugar, sem hrellir
hinn fégráðuga gullgrafara
Yosemite Sam. Allir helstu
Looney Tunes-félagarnir eru
á sínum stað en Porky Pig fer
með hlutverk Bob Cratchit og
Tweety Bird er Tiny Tim.
A Sesame Street Christmas
Carol (2006)
Sesamstræti, eða Sesam,
opnist þú, eins og þættirnir
hétu á Stöð 2 í gamla daga,
kom með sína eigin útgáfu
af þessari klassísku sögu
árið 2006. Í þessari útfærslu
poppa þrír draugar út úr
hversdaglegum hlutum og
sýna ruslatunnubúanum fúla,
Oscar, sem hefur lítið gaman
af jólunum, ýmsar dæmi-
sögur. Þarna má sjá marga
þekktustu íbúa Sesamstrætis
bregða fyrir, svo sem Bert og
Ernie, Big Bird og Elmo.
The Smurfs: A Christmas
Carol (2011)
Allir Strumparnir í Strumpabæ
undirbúa jólin, auðvitað að
undanskildum fýlustrumpi
sem hatar jólin eins og flest
annað. Fýlustrumpur fær
heimsókn frá þremur drauga-
strumpum sem reyna að
vekja í honum jólaandann.
Í myndinni er blandað
saman tveimur tölvu-
gerðum teiknistílum,
þeim úr kvikmyndinni
um Strumpana sem
einnig kom út árið 2011
og stíl sem minnir á
gömlu Strumpateikni-
myndirnar sem við
könnumst flest við.
Every Day is Christmas
(2018)
Ólíkt öðrum útgáfum á þess-
um lista bregður kona sér hér
í gervi Skröggs. Alexis (Toni
Braxton) er athafnakona sem
lætur ekkert standa í vegi
sínum á framabrautinni. Það
er ekki fyrr en að látin móðir
hennar vitjar hennar á jólum
að hún fer að upplifa sannan
anda jólanna.
A Christmas Carol (2019)
Nýjasta tilbrigðið við söguna,
og örugglega ekki það
síðasta, heitir einfaldlega A
Christmas Carol. Þarna er á
ferðinni ör-sería (mini series)
frá BBC.
Guy Pearce fer með hlut-
verk Skröggs og Andy Serkis,
sem leikur gjarnan furðu-
verur eins og Gollri í Hringa-
dróttinssögu, er í essinu sínu
í hlutverki fortíðardraugsins.
Einnig skarta þættirnir
leikaranum unga Joe Alwyn
í hlutverki Bob Cratchit. Joe
þessi Alwyn er reyndar hvað
þekktastur fyrir að vera
kærasti stórsöngkonunnar
Taylor Swift.
Blackadder's Christmas
Carol (1988)
Grínþættirnir stórgóðu með
Rowan Atkinson í titilhlut-
verki komu með sína eigin
sniðugu og öðruvísi útgáfu af
sögunni þann 23. desember
árið 1988.
Ebenezer Blackadder er,
ólíkt nafna sínum Skröggi,
indælasti og gjafmildasti
maður Englands. Hann er
heimsóttur af draugunum
þremur sem sýna honum
uppátæki forfeðra hans og
afkomenda. Draugarnir segja
honum að ef hann verði illur
sjálfur muni allt fara á annan
veg fyrir Blackadder-ættina.
Auk Rowan Atkinson er
Tony Robinson á sínum stað
sem Baldrick og Miranda
Richardson, Stephen Fry
og Hugh Laurie, sem öll eru
fastagestir í Blackadder-þátt-
unum, birtast í kunnuglegum
rullum.
24. nóvember 2020 JÓL 2020 52 FRÉTTABLAÐIÐ