Fréttablaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 80
Á Filippseyjum eru
jólin afar mikilvæg
hátíð og það er mikið
skreytt. Strax í lok sept-
ember eða byrjun októ-
ber er byrjað að undir-
búa jólin.
Donna Cruz
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@
frettabladid.is
Donna Cruz er mörgum að góðu
kunn en hún fór með eitt aðalhlut
verkið í kvikmyndinni Agnes Joy,
sem sópaði að sér Edduverðlaun
um í haust. Hún stundar nú nám í
félagsfræði við Háskóla Íslands og
er í hlutastarfi hjá Nova, en myndi
ekki slá hendinni á móti góðu hlut
verki ef það gæfist. Jólaprófin eru
á næsta leiti og Donna hefur því í
nógu að snúast en hún lætur jóla
stressið ekki trufla sig.
„Ég hef satt að segja aldrei
verið mikil jólamann eskja. Ég
var í söfnuði votta Jehóva, líkt og
mamma mín og amma, þangað
til ég var fimmtán ára. Vott
arnir halda ekki jól en hins vegar
héldum við matarboð á þessum
tíma og hittum stórfjölskylduna.
Ég er ekki alin upp við að gefa eða
fá jólagjafir, nema ég fékk pakka
frá afa mínum, sem mér þótti vænt
um. Ég var ekkert að pæla í þessu
þegar ég var barn en man þó að
mér fannst dálítið leiðinlegt að fá
ekki í skóinn,“ segir Donna.
Annað hvert ár fór fjöl skyld an til
Filippseyja yfir jólin og þar kynnt
ist Donna kaþólsku jólahaldi.
„Þarlendis á ég stóra fjölskyldu
sem er kaþólskrar trúar, eins og
Samveran dýrmætust
Donna er ekki
alin upp við
að gefa eða fá
jólagjafir. Hún
fékk pakka frá
afa sínum, sem
henni þótti
vænt um.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
Í gegnum tíðina hefur jólahaldið
hjá Donnu Cruz verið fremur
óhefðbundið. Hún var vottur
Jehóva fram á unglingsárin og
hélt ekki jól en kynntist kaþ-
ólskum jólum á Filippseyjum.
Hún heldur jól með tengdafjöl-
skyldunni sinni í ár.
pabbi minn. Þar er hefð fyrir því að
fara í messu þann 23. desember og
á jóladag, sem pabbi sótti, en ég var
heima á meðan. Á Filippseyjum
eru jólin afar mikilvæg hátíð og
það er mikið skreytt. Strax í lok
september eða byrjun október er
byrjað að undirbúa jólin. Ég man
að á Filippseyjum fékk ég jóla
gjafir. Ég bjóst ekki við að fá gjafir
en var alltaf þakklát fyrir það sem
ég fékk,“ rifjar Donna upp.
„Það var ekki fyrr en ég kynntist
kærastanum mínum, Ara Steini
Skarp héðinssyni, að ég kynntist
hefðbundnu, íslensku jólahaldi.
Hann er mikið jólabarn og alinn
upp við sterkar jólahefðir. Ég er
ekki mikið fyrir að skreyta en Ara
Steini finnst það mjög gaman, svo
hann sér að mestu um að skreyta
heimilið. Við verðum hjá foreldr
um hans á aðfanga dag og jóladag
og fáum lambahrygg í matinn
og reykta gæs og graflax, sem er í
miklu uppáhaldi hjá mér. Núna er
ég í raun að upplifa jól í fyrsta sinn
með jólagjöfum,“ segir Donna og
bætir við að eftir að hún eignaðist
lítinn frænda, sem er orðinn sex
ára, fái hún meiri jólafiðring en
áður.
Afi hennar lést árið 2011 og
Donna hefur fyrir sið að fara að
leiðinu hans á aðfangadag og
kveikja á kerti til að minnast hans.
„Hann gerði þetta fyrir afa sinn
og mig langar að gera þetta fyrir
hann,“ greinir Donna frá.
Hún segir að þegar hún líti til
baka og beri saman þessi ólíku jól
sem hún hefur upp lifað sé eitt sem
standi upp úr. „Það er þessi nota
lega samvera með fjölskyldunni.
Hún er mikilvægust af öllu.“
Hallveigarstíg 10a, • 101 Reykjavík • s. 551 2112 • www.ungfruingoda.is
Kr. 15.900
* Ef verslað er fyrir að lágmarki 13.000 kr .
Kr. 16.900
Kr. 6.900
Kr. 6.900
Kr. 8.900 100% ull
Ull/kasmír
Kr. 18.900
Kr. 14.900
Kr. 7.900
Kr. 7.300
Kr. 39.900
Kr. 19.900
Kr. 9.500
Kr. 14.900
Kr. 13.900
Glæsilegt úrval
af k jólum og
öðrum fatnaði
Ungfrúin góða er einstök verslun
þar sem ýmsar gersemar leynast
Leðurtöskur, hanskar og treflar,
skart, k jólar, peysur og annar
kvenfatnaður ásamt lömpum
og öðru fallegu stofustássi
Einfalt og fljótlegt að versla inná
www.ungfruingoda.is
- Frí heimsending fram að jólum*
24. nóvember 2020 JÓL 2020 58 FRÉTTABLAÐIÐ