Fréttablaðið - 24.11.2020, Side 90
Nanna miðar uppskriftina við
fjóra og notar 80–100 g af tví
reyktu hangikjöti. Hún var með
sauðahangikjöt úr Mývatnssveit,
5–6 þurrk aðar apríkósur (mjúkar,
ekki harðþurrkaðar), 4–5 grá
fíkjur (líka mjúkar), væna lúku af
klettasalati og 1/2 granatepli. „Ég
skar hangikjötið í þunnar, litlar
sneiðar (best að það sé hálffrosið,
þá gengur betur að skera það
þunnt) og apríkós urnar og gráfíkj
urnar í bita eða þunnar sneiðar og
blandaði saman við klettasalatið
á disk unum. Svo skóf ég fræin úr
granateplinu og stráði þeim yfir,“
segir hún.
„Síðan hrærði ég saman 2 msk. af
góðri olíu, 2 tsk. af góðu balsam
ediki, nokkra dropa af hlynsírópi
og ögn af pipar og salti og dreypti
yfir. Ég notaði blöndu af hnetu og
truffluolíu, 40 ára gamalt balsam
edik og ekta, kanadískt hlynsíróp.
Hangikjötssalat með
ávöxtum og granateplum
80–100 g tvíreykt hangikjöt
5–6 þurrkaðar apríkósur
4–5 gráfíkjur
Lófafylli af klettasalati
½ granatepli
2 msk. góð olía
2 tsk. gott balsamedik
Nokkrir dropar af hlynsírópi
Salt og Pipar
Öðruvísi hangikjötssalat
Hangikjöts-
salat með
ávöxtum og
granat eplum.
Mjög ljúffengt
og ekki síður
fallegt.
Nanna Rögnvaldardóttir hefur gaman af því að prófa nýjungar í matargerð-
inni. Hér gefur hún skemmtilega og öðruvísi uppskrift. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það er ýmislegt hægt að gera með
hangikjötið. Tvíreykt hangikjöt
er hægt að borða hrátt og setja
í jólalegt salat. Nanna Rögn-
valdardóttir heldur úti blogginu
Konan sem kyndir ofninn sinn.
Þar má finna margar frábærar
uppskriftir, meðal annars þetta
salat sem Nanna gaf okkur leyfi
til að birta til að gefa hugmyndir
um hangikjöt á annan veg en við
eigum að venjast.
Ég skar hangi-
kjötið í þunnar,
litlar sneiðar, best að
það sé hálffrosið, þá
gengur betur að skera
það.
Nanna Rögnvaldardóttir
24. nóvember 2020 JÓL 2020 68 FRÉTTABLAÐIÐ