Fréttablaðið - 24.11.2020, Qupperneq 102
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@
frettabladid.is
Sigrún er margra barna móðir og
því ýmsu vön hvað heimilishald
varðar. „Ég er 35 ára gömul, búsett
á Egilsstöðum ásamt sambýlis-
manni og fjórum börnum. Börnin
mín eru 17, 7, 5 og 3 ára. Ég er fædd
á Akureyri og alin upp í sveit en er
búin að búa hérna fyrir austan í
um sex ár.“
Sigrún er virk á samfélagsmiðlum
ásamt því að halda úti áhugaverðu
hlaðvarpi þar sem hún fjallar um
allt milli himins og jarðar. „Fyrir
um fimm árum opnaði ég sam-
félagsmiðlana mína og ég er enn
að í dag, enda mjög skemmtilegur
vettvangur að mínu mati. Ég held
einnig úti hlaðvarpi sem heitir
Hvað er málið? þar sem ég tek fyrir
alls konar atburði, fólk eða staði.“
Hátíðlegra að hafa hreint
„Mér finnst mjög gaman að þrífa,
fólki finnst það mjög skrítið en
það sem mér finnst skemmtilegast
við þetta er hvað manni líður vel
eftir þrif og það er svo magnað
að sjá fyrir og eftir, sérstaklega
þegar maður er að þrífa eitthvað
sem virkilega þarf á þrifum að
halda. Og bara einmitt að prófa
nýjar aðferðir við alls konar þrif.
Ég er reyndar mjög græjusjúk og á
þrifgræjur fyrir nánast allt þannig
að já, ég hef lengi verið svona. Ég
myndi segja svona aðallega eftir að
ég fór að búa sjálf.“
Þegar Sigrún er spurð að því
hvers vegna það sé mikilvægt að
þrífa fyrir jólin er svarið einfalt.
„Mér líður einfaldlega betur og
finnst hátíðlegra að hafa heimilið
hreint. Gott kerti með jólailm
setur svo punktinn yfir i-ið. En það
er ekki þar með sagt að ég þrífi allt
í hólf og gólf fyrir jólin enda myndi
ég þurfa nokkrar auka klukku-
stundir í sólarhringinn til að ná
því, en ég er mjög dugleg að losa
mig við alls konar hluti fyrir jólin
og hreinsa til í skápum og skúffum.
Það kemur alls konar nýtt dót inn
á heimilið um jólin og að vera búin
að losa mig við það sem er aldrei
notað eða hentar ekki lengur
finnst mér ekki síður mikilvægt.“
Léttir yfir öllu
Áður fyrr var ítarleg jólahreingern-
ing órjúfanlegur hluti af undir-
búningi jólanna. Þegar Sigrún er
Það er svo góð tilfinning sem fylgir því að klára
Sigrún er að
eigin sögn
græjusjúk og
á þrifagræjur
fyrir allt. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/GETTY
Sigrún mælir með því að þrífa í 20 mínútna lotum, það sé einfalt og árangursríkt. MYND/AÐSEND
Sigrún Sigurpálsdóttir er mikill
viskubrunnur hvað hreingern-
ingu snertir. Hún segir jóla-
hreingerninguna ómissandi lið í
undirbúningi jólanna og lumar á
fjölmörgum ráðum sem ættu að
nýtast flestum vel í þessu mikil-
væga en oft krefjandi verkefni.
að hver hlutur eigi sinn stað því þá
er maður mikið fljótari að ganga
frá.“
Gott að gera gátlista
Þá er alltaf gagnlegt að útbúa gát-
lista. „Ég mæli svo með því fyrir
þá sem vilja taka einhvers konar
jólaþrif að fara yfir heimilið, búa
til lista yfir það sem manni finnst
nauðsynlegast að gera og forgangs-
raða svo þannig, svo maður lendi
ekki í spreng og sé svo uppgefin
þegar jólin loksins koma. Því þetta
snýst líka um jafnvægi og að gera
ekki óþarflega mikið,“ útskýrir
Sigrún.
„Ég er með lista sem ég er búin að
búa til á nokkrum árum eiginlega,
bæti á listann ef það er eitthvað
sem bætist við og eins þá fjarlægi
ég atriði sem eru óþarfi. Ég tek svo
listann og merki við það sem mér
finnst ég þurfa eða vilja gera fyrir
jólin, því það er aldrei þannig að ég
taki öll atriðin á listanum, enda er
hann langur,“ segir hún og hlær.
„En það er svo gott að hafa eitt-
hvað svona til hliðsjónar því ég á
það til að afvegaleiðast ef ég hef
ekki lista til að fylgja. Ég merki við
þau atriði sem ég ætla að gera og
mér finnst ágætt að ákveða dag-
setningar, taka kannski tvo daga
þar sem ég fer í svona extra þrif og
þá er það bara niðurneglt því ann-
ars á maður það til að fresta þessum
hlutum, en tilfinningin sem fylgir
því að klára er svo góð.“
Tímakerfi skilvirkt
Sigrún segir erfitt að svara því
hvenær hún byrji á jólaþrifunum
og hvenær þau taki enda. „Ég er
með nokkur börn á heimilinu svo
ég þarf svolítið að spila þetta eftir
aðstæðum en ég er snemma í því
að fara í gegnum allt dót, til dæmis.
Er búin að taka alla fataskápa í
gegn hérna til dæmis og byrjaði
nóvember á því. Svo á ég eftir að
skipuleggja aðalþrifin en ég vil ekki
vera í þrifum fram á síðustu stundu
þannig að ég vil alltaf vera búin
með stærstu atriðin fyrir miðjan
desember, og svo eftir það er ég
náttúrlega bara að sinna þessum
daglegu/vikulegu þrifum sem
fylgja því að vera með stórt heimili
og ég skúra yfir gólfin eftir hádegi á
aðfangadag, eftir möndlugrautinn,
og það er svona það síðasta sem
ég geri fyrir jólin,“ segir Sigrún og
brosir.
„Ég mæli með því að taka upp
tímakerfi. Ég sjálf er til dæmis þann-
ig að ég er með rosalega mikinn
athyglisbrest. Og fyrir mig virkar
best að raða verkefnum á blað og
taka 20 mínútur í hverja „lotu“,
sumum hentar betur að taka 30, 40
eða 60 mínútur. Maður þarf bara
að finna sinn takt. Ef ég er að skrifa
hlaðvarpsþátt til að mynda þá er ég
svo oft að standa upp og byrja á ein-
hverju og það getur endað með því
að ég geri bara ótrúlega lítið annað
en að snúast í hringi.“
Sigrún segir að tímakerfi af
þessum toga sé afar viðráðan-
legt og ætti því að geta nýst sem
flestum. „Ég get alveg ímyndað
mér að tímakerfi gæti komið sér
vel fyrir þá sem finna það ekki
alveg hjá sér að byrja að þrífa. Þá
er hægt að byrja á 20 mínútum í
eldhúsi, þá tek ég til dæmis allt af
eldhúsbekkjum, geng frá öllu sem
þarf að ganga frá, og fer eins langt
og ég næ á þessum 20 mínútum. Ef
ég er í miðju verkefni þá klára ég
það náttúrlega, eins og að setja í
uppþvottavélina, þó að tíminn sé
búinn. Svo er hægt að nota næstu
20 mínútur í að setjast niður,
prjóna eða gera hvað sem maður
vill og taka svo aftur 20 mínútna
þrif á öðrum stað í húsinu. Ég hef
stundum útskýrt þetta á samfélags-
miðlunum mínum og þetta hefur
hjálpað mörgum. Virkar kannski
flókið í fyrstu en er svo einfalt og
þægilegt ef maður prófar.“
spurð að því hvort hún muni eftir
jólahreingerningu barnæskunnar
segir hún svo sannarlega vera. „Já,
það er nú sennilega þaðan sem
ég hef þessa þörf fyrir „jólahrein-
gerningu“. Mamma er alveg ótrú-
lega dugleg og drifin þegar kemur
að þrifum og ég man þegar hún
var byrjuð að taka þrifin fyrir jólin
þegar ég var að koma heim úr skól-
anum og það mætti manni bara
þrifefnailmur í forstofunni. Hún
tók alltaf eldhúsinnréttinguna í
gegn, veggi og loft að mig minnir,
og það létti einhvern veginn yfir
öllu og það var svo góð tilfinning
og kannski þess vegna sem ég sæki
svona sjálf í þrifin,“ segir Sigrún og
brosir.
Mörgum þykir jólahreingern-
ingin yfirþyrmandi tilhugsun en
Sigrún lumar þó á ýmsum ráðum.
„Ég mæli mjög mikið með því
að gera þetta sem þægilegast og
eins og hentar hverjum og einum.
Númer eitt, tvö og þrjú finnst mér
vera að létta á dótinu sem maður
á til að safna upp, því það er svo
miklu auðveldara að þrífa og halda
hreinu þegar maður er með minna
af dóti. Eins að flokka dót í plast-
kassa og merkja vel og passa upp á
jackandjones.is
Flottar jólagjafir
fyrir hann
24. nóvember 2020 JÓL 2020 80 FRÉTTABLAÐIÐ