Fréttablaðið - 24.11.2020, Síða 104
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@
frettabladid.isJón Helgason, eða Nonni, segist
vera mikið tækninörd og tölvu-
karl. Það eru engar ýkjur, enda er
hann með fullkomna veðurstöð á
þakinu á húsinu sínu í Dofrakór,
bara svona til gamans. Hann nýtir
þessa miklu ástríðu líka í jóla-
skreytingarnar sínar og skreytir
meira á hverju ári. Nonni segir að
þetta snúist um að njóta jóla-
hátíðarinnar sem mest og gera það
sem hægt er til að gleðjast á þessu
dimma tímabili.
„Ég er mikið jólabarn og hef allt-
af haft rosalega gaman af ljósum,“
segir Nonni. „En ef ég er spurður
hvort ég hlakki til jólanna get ég
eiginlega sagt nei. Ég hlakka meira
til aðdragandans, hann er svo
skemmtilegur. Ég byrja jólaundir-
búninginn um miðjan október til
að lengja þetta tímabil. Á jóladegi
finnur maður stundum fyrir smá
tómleika af því að þetta er að verða
búið og það er mikilvægt að njóta
tímabilsins fyrir jól þegar farið er
að dimma, því myrkrið verður svo
þreytandi.
Aðfangadagskvöld er svo bara
uppskerukvöldið og það ætti
ekkert að einblína of mikið á það.
Það er um að gera að dunda sér
bara við að skreyta og njóta tímans
í mesta myrkrinu. Það er hægt að
kveikja á kertum og gera gott úr
þessu,“ segir Nonni. „Þetta verða
örugglega skrítnustu jól í manna
minnum út af COVID, en það er
samt hægt að gera margt skemmti-
legt.“
Útpældar litasamsetningar
Nonni hefur sett upp jólaljós frá
því hann man eftir sér en segir
að fyrirmyndin sín sé Sigtryggur
Helgason heitinn, sem skreytti
húsið sitt við Bústaðaveg alltaf
Ljósin lýsa upp hjörtu fólks
Nonni heyrði
af barni sem
glímir við erfið-
leika en líður
alltaf betur við
að skoða húsið
hans. Eftir að
hann heyrði
það segist hann
ekki geta hætt.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Nonni segist
hlakka meira
til aðdraganda
jólanna en
jólanna sjálfra
og byrjar jóla-
undirbúninginn
í október til að
lengja þetta
tímabil. Hann
segir mikilvægt
að njóta dimma
tímabilsins
fyrir jól og
hvetur alla til
að skreyta til að
sýna jólaanda
og gera þennan
tíma sem
ánægjulegast-
an. FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Nonni veltir fyrir sér litasamsetningum og finnst upplifunin skipta máli. Í ár er litaþemað hvítur
og bleikfjólublár og fánastöngin skiptir rólega um lit. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Nonni segir að konan hans dæsi þegar hann fer af stað í skreytingunum
en að krakkarnir hafi gaman af jólaveseninu í pabba sínum. Eldri sonurinn
hefur líka smitast af jólaskreytingabakteríunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Jón Helgason byrjar jólaundir-
búninginn í október og skreytir
af miklum krafti fyrir hver jól.
Hann segir þetta snúast um að
njóta dimma tímabilsins fyrir
jól sem mest og hvetur alla til að
skreyta eitthvað.
rosalega duglega og var svo hrifinn
af skreytingum að hann var meira
að segja jarðaður með jólakrans
um hásumar.
„Ég held iðninni áfram og hef
gefið í með hverju ári og þróað
þetta,“ segir Nonni. „Það er alltaf
vel útpælt hvað ég set út, ég velti
fyrir mér litasamsetningum og
mér finnst upplifunin skipta máli.
Fjölskyldumeðlimirnir hafa líka
ákveðnar skoðanir og við reynum
að láta allt litaþemað passa saman.
Núna er litaþemað hvítur og bleik-
fjólublár og fánastöngin skiptir
rólega um lit. Það er gaman að
eltast við seríur sem eru ekki í týp-
ískum litum. Það er líka eitt jólatré
komið upp núna inni í stofu, en ég
er venjulega með tvö. Það er mjög
notalegt, maður nýtur þess að hafa
tréð allt til jóla.
Ég hef alltaf haft gaman af
ljósum og það hefur bara ágerst.
Sérstaklega eftir að ég heyrði sögur
af börnum sem koma og skoða
húsið hjá mér, það varð hvatning
til að halda áfram af krafti. Nú get
ég ekki hætt,“ segir Nonni. „Það
eru líka margir í sóttkví núna og
það fólk má fara í gönguferðir og
ég held að það labbi oft extra hægt
framhjá húsinu okkar. Ég hef líka
séð fólk stoppa og taka myndir.
Það er gaman að gleðja fólk.“
Jólahúsið gleður börnin
„Vinur minn sem var að fara með
sendingu í hús í hverfinu kom við
hjá fjölskyldu sem átti ungt barn
sem glímdi við einhverja erfið-
leika, sem ég held að hafi tengst
einhverfu. Þau sögðu honum að
þegar barninu liði illa tækju þau til
þess ráðs að fara í göngutúr fram
hjá jólahúsinu. Það reyndist vera
húsið okkar. Þau gerðu þetta oft og
eftir það fór barnið alltaf brosandi
í bólið,“ segir Nonni. „Þegar ég
heyrði þessa sögu fékk ég nú korn
í augað og sagði „nú get ég ekki
hætt“. Við sjáum líka fólk oft koma
við og ég hef bæði séð og heyrt af
því að hingað koma oft krakkar
að skoða. Einhverjir fara í burtu
brosandi og það er bara mjög
ánægjulegt.
Það vill líka svo til að Kópavogs-
bær lagði þennan fína göngustíg
hérna framhjá húsinu, þannig að
það er auðvelt að taka gönguna
hérna framhjá og skoða. Það hefur
alltaf verið mikil umferð hér um
leið og þetta er komið upp og ef
fólk keyrir rólega eru allir vel-
komnir að koma og skoða,“ segir
Nonni. „Í þessu ástandi sem er
núna, þar sem lítið er hægt að
gera, er um að gera að fara með
fjölskylduna í bíltúr og skoða jóla-
ljósin. Það er nóg að skoða og ég
hvet fólk bara til að reyna að njóta
þessa tímabils.“
Hefur slegið út og kviknað í
„Konan mín dæsir bara þegar ég
fer af stað, en krakkarnir hafa
mjög gaman af þessu. Þau eru alin
upp við þetta jólavesen í pabba
sínum og þekkja ekkert annað.
Sá elsti, Elvar Helgi, er líka búinn
að smitast af bakteríunni. Hann
er farinn að tala um að þetta sé
ekki nóg og að við gerum alltaf
það sama,“ segir Nonni og hlær.
„Maður klúðrar samt auðvitað
fullt. Rafmagnið slær oft út og það
hefur kviknað í. Einu sinni var ég
að skrifa jólakort í rólegheitunum
þegar allt fór að blikka og svo
kviknaði í rafmagnstöflunni. Ég
fór líka einu sinni með 80 metra
seríu rjúkandi aftur í búðina til að
skila henni eftir að það sló út. Það
eru margar svona sögur, en þetta er
bara reynsla sem maður býr að.
Ég vil endilega hvetja alla til að
skreyta, því ljósin ná inn í hjörtu
fólks. En þetta er alls engin keppni.
Ég skreyti mikið en mér finnst líka
fallegt þegar fólk setur bara upp
eitt ljós. Það þurfa ekkert allir að
vera klikkaðir eins og ég,“ segir
Nonni léttur. „Það er bara gaman
að setja upp einhver ljós. Þau sem
lýsa leyfa okkur hinum að finna að
á þeirra heimili sé jólaandi og ég
held að þeim sem finnist október-
nóvember of snemmt fyrir jóla-
ljósin hafi samt gaman af þessu.
Mér finnst þetta vera ljósahátíð og
að við eigum að gleðjast og njóta
þess að halda upp á ljósið.“
Vandaðir
krossar á leiði
Íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar
Leiðiskrossar 12 volt,
24 volt og 32 volt.
Vönduð íslensk framleiðsla.
Skemmuvegi 34 - 200 Kóp.
Símar: 554 0661 - 699 2502 - 897 4996
24. nóvember 2020 JÓL 2020 82 FRÉTTABLAÐIÐ