Fréttablaðið - 24.11.2020, Qupperneq 124
Kynleg samfélög
Þrjár frumsamdar myndasögur
voru til sýnis í Galleríi Fold í júlí í
tengslum við Reykjavík Fringe-
hátíðina undir yfirskriftinni
Furðuleg samfélög, eða Strange
Communities. Þetta voru sög-
urnar Dracula Eats People, eftir
Árna Jón Gunnarsson og Einar
V. Másson, Outcast, eftir Eddu
Katrínu Malmquist, og F.R.E.A.K.
eftir Karítas Gunnarsdóttur. Allar
styðjast við þekktar þjóð- eða
furðusögur og var með óvæntri
sýn á þessi gömlu minni reynt
að varpa nýju ljósi á ákveðna siði
eða venjur í samtímanum.
Sögurnar birtast í Mynda-
sagnabálki ÍMS 2020 og
eru þar annar burðarás
ritsins.
Síða 2 úr
Dracula Eats
People, síða 2 úr
F.R.E.A.K. og síða
3 úr Outcast.
Myndasögufólkið s e m s t o f n a ð i Í s l e n s k a m y n d a s ö g u s a m f é l a g i ð (ÍMS) fyrir rétt
rúmu ári kemur saman á Facebook
á morgun þar sem það ætlar að slá
saman eins árs afmæli félagsins
og útgáfuteiti fyrstu bókar þess
á þriggja klukkutíma stafrænni
uppákomu sem er öllum opin.
Atla Hrafney, Védís Huldudóttir
og Einar Valur Másson eru öll fag
fólk í myndasögugeiranum og
stofnuðu ÍMS haustið 2019 með
það fyrir augum að renna styrk
ari stoðum undir myndasöguna í
íslensku menningarlífi og virkja
um leið myndasöguhöfunda og
lesendur.
„Það er alveg greinilega einhver
gerjun í gangi og margir höfundar
sem vilja stíga fram en vantar
kannski helst vettvanginn,“ segir
Atla Hrafney, formaður Íslenska
myndasögusamfélagsins. „Og þess
vegna erum við að reyna að keyra
á þetta og búa til kúltúr,“ segir Atla
og bendir á að félagið er skipað
bæði áhuga og fagfólki í mynda
sögugeiranum.
Erfitt í kófinu
Þegar Atla er spurð út í stöðu mynda
sögunnar á Íslandi tekur hún undir
að myndasagan hafi einhvern veg
inn ekki náð jafn traustri menning
arlegri fótfestu á Íslandi og til dæmis
í næstu nágrannalöndum. Þessu vill
félagið meðal annars bæta úr með
alls konar hópefli og myndasögu
viðburðum.
Myndasögufólk með rafrænt hópefli
Íslenska myndasögusamfélagið var stofnað til þess að hefja myndasöguna til vegs og virðingar og þá ekki síst
með því að þjappa myndasögufólki, höfundum og lesendum, saman með útgáfu og ýmsum öðrum viðburðum.
Í bókinni eru sjö stuttar sögur, fjórar örmyndasögur og sex ör-örsögur.
Álfarnir á flugvellinum, Miila Westin, Nika Kiiskilä, Elísabet Rún, Edda K.
Malmquist, Netta Lehtola, Einar V. Másson, Védís Huldudóttir og fremri
röð Apila Pepita, Broci og Atla Hrafney. MYNDIR/ AÐSENDAR
Snúningshjól með bremsum
Ryðfrír stálvaskur með snertilausri virkni
Sápuskammtari
Handþurrkuskammtari
Hurð með lás
Fótstig fyrir vatn
20 lítra tankur fyrir hreint vatn
20 lítra tankur fyrir aallsvatn
Staðalbúnaður:
Hafið samband fyrir frekari upplýsingar
vaska@vaska.is | sími 843-9333 | þú finnur VASKA líka á Facebook
Nánari lýsing:
Hæð: 150 cm
Breidd: 79 cm
Dýpt: 49 cm
Hæð vasks: 90 cm
Þyngd: 36 kg (einungis stöðin)
Litur: Svartur | RAL 9005
Black Friday
40%
afsláur
þea vikuna
Er fyrirtækið þi með at á hreinu?
VASKA er með lausnina fyrir fyrirtæki sem vilja hafa heilbrigða umgengni og snyrtimesku í fyrirrúmi.
ÞAÐ ER ALVEG
GREINILEGA EINHVER
GERJUN Í GANGI OG MARGIR
HÖFUNDAR SEM VILJA STÍGA
FRAM EN VANTAR KANNSKI
HELST VETTVANGINN.
„Við horfum mikið til Finna í
þessu en þeir eru mjög virkir í félags
lega þættinum og viðburðum,“ segir
Atla og bendir á að vissulega sé við
ramman reip að draga í kófinu. „Við
höfum samt náð á þessu fyrsta ári að
vinna með til dæmis Barnamenning
arhátíðinni, Listasafni Reykjavíkur
og komið myndasöguhöfundum í
sumarstörf hjá Reykjavíkurborg.
Þannig að við höfum náð alveg
ágætlega miklum árangri yfir þetta
ár miðað við hversu erfitt þetta er.“
Útgáfa og afmæli
ÍMS lætur þannig COVID19 ekki
kýla alla myndasögugleðina niður
og verður með heilmikil hátíðarhöld
á Facebooksíðu sinni annað kvöld
milli klukkan 1720.
Atla segir að fyrst og fremst ætli
þau að fagna fyrstu útgáfu félags
ins á myndasagnabálki sem leyfir
nýjum og spennandi röddum í heimi
íslenskra myndasagna að heyrast.
Bókin heitir ÍMS 2020 Comic
Antho logy, eða Myndasagnabálkur
ÍMS 2020, og er 68 blaðsíður en tveir
burðarásar hennar eru annars vegar
sýning finnskíslenska hópsins Elves
at the Airport í Listasafni Reykja
víkur í nóvember 2019 og hins vegar
Strange Communities á Reykjavik
Fringelistahátíðinni í júlí 2020.
Atla segir þau síðan nota þetta
tækifæri til þess að halda einnig upp
á eins árs afmæli félagsins og áréttar
að allir séu velkomnir og að á vefnum
sé vitaskuld einnig öllum óhætt.
„Þetta verður þriggja klukkutíma
viðburður þar sem fólk getur bara
komið inn og út eins og það vill.“
Slóðin á hófið er facebook.com/
islenskamyndasogusamfelagid og
það stendur milli 1720 miðviku
daginn 25. nóvember.
toti@frettabladid.is
2 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ