Fréttablaðið - 24.11.2020, Síða 126
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@
frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
GILDIR Í VIKU OG
VIÐ SENDUM
FRÍTT
20% afsláttur af öllum vörum*
Black
Friday
* Gildir ekki ofan á önnur tilboð og ekki af Simba vörum.
Upplýsingar um afgreiðslutíma
verslana og vefverslun á
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
512 6800
Smáratorgi, Kópavogi
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
Skeiði 1, Ísafirði
456 4566
Lalli Töframaður, Lárus Blöndal Guðjónsson, býður upp á jólatónleika og stuð á Facebook í dag. Streymið er opið öllum og kemur í staðinn fyrir
útgáfutónleika fyrir jólaplötuna
Gleðilega hátíð í bili.
„Síðustu misseri hafa mikið
farið í vinnu í kringum jólaplöt-
una. Það að halda jólatónleika og
plana svoleiðis sem er heljarinnar
mikið dæmi. Svo verður það enn
þá snúnara þegar maður veit ekki
hvort tónleikarnir megi vera eða
ekki. Allir þurfa að vera tilbúnir að
stökkva til ef það kemur grænt ljós
þannig að það má ekkert slaka á. En
út af svolitlu þurfti að fresta útgáfu-
jólatónleikunum um eitt ár. Það var
það eina í stöðunni, nema kannski
að fresta þeim um hálft ár og halda
jólatónleika næsta sumar. En ég
held að það sé ekki alveg málið,“
segir Lalli hlæjandi.
Ætlar að jóla yfir sig
Jólastund Lalla 2020 verður í beinni
útsendingu í kvöld frá stofunni
heima hjá Lalla.
„Þar mun ég gjörsamlega jóla yfir
mig. Það er öllum í heiminum boðið
á þessa dásamlegu jólastund, bæði
ungum sem öldnum. Það er þétt
og f lott á dagskrá og leynigestirnir
verða ekkert minna en dásamlegir.
Ég mun þurfa að halda rosalega vel
á spöðunum því planið er að þetta
verði ekki lengra en 45 mínútur,“
segir hann.
Lalli er heldur betur ánægður
með viðtökurnar á plötunni. Hún
er núna komin í allar helstu plötu-
búðir á vínylformi.
„Pælingin með plötuna var svolít-
ið sú að þetta væri sú jólavínyl plata
á heimilinu sem allir í fjölskyldunni
gætu hlustað á saman á meðan að
piparkökurnar eru gerðar. Fólk þarf
samt ekkert að stressa sig ef það á
ekki plötuspilara, því hún er líka
komin á Spotify.“
Knús í útvarpinu
Fyrsta smáskífa plötunnar er lagið
Knús.
„Vonandi mun það heyrast eitt-
hvað á útvarpsstöðvunum um
jólin sem og önnur lög af plötunni.
Þó svo við megum ekki knúsa alla
eins og staðan er akkúrat núna að
þá er ágætt að fá eitt knús-jólalag til
að minna okkur á að knúsa þá alla-
vegana okkar nánasta fólk,“ segir
Lalli.
Hann segir það ef laust vera
háleitt markmið að stefna á róleg og
kósí jól, verandi með fjögur börn á
heimilinu.
„Þannig að ég stefni bara á ógeðs-
lega hress og skemmtileg jól með
fjölskyldunni og vonandi helling af
ferðum á snjóþotu og svo krossa ég
putta og vonast til að komast í jóla-
sund líka.“
Lalli hefur alltaf verið mikið jóla-
barn og segist alltaf vera í jólaskapi.
„Ég er alltaf í jólaskapi hvort sem
það eru jól eða ekki. Hjá mér eru
alltaf jól og jólagleði allt árið,“ segir
hann.
Jólalög í júlí
Ert þú og fjölskylda þín með ein-
hverja skemmtilega siði um jólin?
„Þeir siðir sem við höldum hvað
mest í á jólunum eru aðallega tveir
og báðir á aðfangadag. Annar þeirra
er að baka piparkökur hjá ættfólki
konunnar á Akranesi. Síðan fer ég
alltaf á Barnaspítala Hringsins sem
Lalli töframaður á aðfangadag og
eyði tíma með krökkunum þar, sýni
þeim töfrabrögð og sprella.“
Hvað finnst þér skemmtilegast við
jólin?
„Nú, auðvitað samveran með
fjölskyldu og vinum. Það er alltaf
númer eitt. En svona þegar ég hugsa
aðeins út fyrir kassann þá er eitt það
skemmtilegasta við jólin að geta
hlustað á jólalög á fullu blasti án
þess að fólk öskri á mig: Slökktu á
þessu, það er júlí!“
Jólastund Lalla 2020 verður í
beinni útsendingu á Facebook í
kvöld klukkan 19.30.
steingerdur@frettabladid.is
Hjá mér eru alltaf jól
Lalli Töframaður er í jólaskapi allt árið en hann gaf nýverið út
jólaplötuna Gleðilega hátíð. Vegna heimsfaraldursins gat hann ekki
haldið hefðbundna útgáfutónleika og býður því öllum í heiminum,
eins og hann orðar það, á Jólastund Lalla á streymi í kvöld.
Lalli töframaður fer og skemmtir á Barnaspítala Hringsins hvern aðfangadag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Platan fæst í helstu plötubúðum.
SÍÐAN FER ÉG ALLTAF
Á BARNASPÍTALA
HRINGSINS SEM LALLI TÖFRA-
MAÐUR Á AÐFANGADAG OG EYÐI
TÍMA MEÐ KRÖKKUNUM ÞAR,
SÝNI ÞEIM TÖFRABRÖGÐ OG
SPRELLA.
EITT ÞAÐ SKEMMTI-
LEGASTA VIÐ JÓLIN ER
AÐ GETA HLUSTAÐ Á JÓLALÖG Á
FULLU BLASTI ÁN ÞESS AÐ FÓLK
ÖSKRI Á MIG: SLÖKKTU Á ÞESSU,
ÞAÐ ER JÚLÍ!
2 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð