Bændablaðið - 17.12.2020, Síða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 20202
Umhverfis- og auðlindaráðherra
hefur mælt fyrir frumvarpi um
hálendisþjóðgarð. Í frumvarpinu
er gert ráð fyrir að þjóðlendur
í sameign þjóðarinnar innan
mið hálendislínu verði gerðar
að þjóðgarði. Á miðhálendinu
eru ein stærstu óbyggðu víðerni
Evrópu og ómetanlegar náttúru-
og menningarminjar. Frumvarpið
er til meðferðar hjá umhverfis- og
samgöngunefnd Alþingis.
Talsverð umræða hefur orðið um
stofnun þjóðgarðsins og ekki allir
sammála um ágæti hans og óttast
að stofnun hans muni setja skorður
á nýtingu lands á hálendinu. Stjórn
margra sveitarfélaga sem liggja að
væntanlegum þjóðgarði hafa lýst
áhyggjum yfir að þjóðgarðurinn
hefti rétt sveitarfélaganna til
sjálfsstjórnar. Aðrir segja að með
stofnun þjóðgarðsins skapist ótal ný
tækifæri í ferðaþjónustu.
Á Facebook eru tvær fylkingar
áberandi um málið. Önnur
fylkingin merkir mynd af sér
„HÁLENDISÞJÓÐGARÐUR? JÁ
TAKK“ en þeir sem er andsnúnir eða
í efa um tillöguna eins og hún er lögð
fram með orðum sem Steingrímur J.
Sigfússon, forseti Alþingis, lét falla
á þingi um þá sem eru mótfallnir og
kallaði „ÖRLÍTINN GRENJANDI
MINNIHLUTA“.
Samkvæmt frumvarpi er gert
er ráð fyrir að hálendisþjóðgarður
nái yfir um 30% af Íslandi. Um
helmingur svæðisins nýtur nú
þegar verndar og má þar nefna
Vatnajökulsþjóðgarð, Hofsjökul
og Þjórsárver, Kerlingarfjöll,
Land mannalaugar og Hveravelli.
Kveðið er á um hálendisþjóðgarð í
stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.
Samtal um sátt hefur mistekist
Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu-
og sveitastjórnarráðherra segir að
samtal um sátt hafi mistekist við
það fólk sem býr næst þjóðgarðinum
og hefur sinnt afréttinum sínum,
hvort sem er í gegnum sveitarstjórn
eða sinnt verkefnum, til að mynda
landgræðslu, endurbyggingu menn-
ingar verðmæta, náttúruvernd,
veiðifélögum, smalamennsku eða
öðrum nytjum. Samtalið hefur einnig
mistekist um að tryggja frjálsa för
þannig að gangandi, hjólandi, ríðandi
og akandi geti ferðast eins og nú
um miðhálendið án takmarkana.
Mikilvægt er að takmarka ekki
umferð hjá einum hópi frekar en
öðrum.
Hálendisþjóðgarður er stór og
metnaðarfull hugmynd
Bændablaðið sendi fyrirspurn á
Guðmund Inga Guðbrandsson
umhverfis- og auðlindaráðherra
um viðbrögðin við frumvarpinu
og hvort hann teldi að það færi
óbreytt í gegnum þingið. Í svari
Guðmundar segir að það séu gerðar
einhverjar breytingar á langflestum
stjórnarfrumvörpum í meðförum
þingsins og að hann eigi von á að
svo verði líka með þetta frumvarp.
Hvað varðar viðbrögð sveitar-
félaga sem eiga land að mið-
há lendinu segir Guðmundur að
hann hafi átt mjög gott samtal við
fulltrúa sveitarfélaga. „Haustið 2019
heimsótti ég allar sveitarstjórnir sem
land eiga að miðhálendinu, ég kynnti
síðan frumvarpið á átta stöðum á
landinu í byrjun árs, og síðar áttum
við í ráðuneytinu líklega yfir tíu fundi
með fulltrúum sveitarfélaga til að ná
sátt um skipulagsvaldið. Viðbrögð
sveitarfélaganna við tillögum mínum
varðandi skipulagsvaldið voru í
langflestum tilvikum mjög góð
og ég tel okkur hafa fundið góða
lendingu þar. Það eru samt sem
áður uppi skiptar skoðanir í þessu
máli. Hér er líka um að ræða afar
umfangsmikið mál og mikil verðmæti
í húfi. Ég hvet sveitarfélögin til
að líta til tækifæranna sem felast
í stofnun hálendisþjóðgarðs, fyrir
vernd náttúrunnar, uppbyggingu
atvinnutækifæra, ekki síst á láglendi
og aukin störf heima í héraði.
Reynslan af öðrum þjóðgörðum
sýnir að þeim fylgir efnahagslegur
ávinningur.“
Talsvert er um almenna gagnrýni
á frumvarpið í samfélaginu og svo
sértækari gagnrýni um að þetta muni
stoppa veiðar, beit og jafnvel akstur
um hálendið?
„Hálendisþjóðgarður er stór
og metnaðarfull hugmynd. Hún
felur í sér stofnun þjóðgarðs á
30% landsins, á þjóðlendum sem
eru sameign þjóðarinnar. Ég tel að
með þjóðgarði náist heildaryfirsýn,
utanumhald og aukið fjármagn fyrir
svæðið sem muni styrkja það góða
starf sem víða er unnið á hálendinu
í dag í samvinnu ríkis, sveitarfélaga
og hagsmunaaðila.
Hálendisþjóðgarður mun ekki
koma í veg fyrir veiðar og beit á
hálendinu og er í frumvarpinu gert
ráð fyrir að hefðbundin nýting geti
haldið áfram. Hún þarf þó líkt og
annars staðar að vera sjálfbær og
í samræmi við önnur lög. Hvað
varðar akstur um hálendið, þá er
það í höndum sveitarfélaga í dag
að ákveða hvaða slóðar enda inni
á skipulagsáætlunum sveitarfélaga.
Með tilkomu hálendisþjóðgarðs
eykst formleg aðkoma útivistar-
félaga, nytjaréttarhafa og ferða-
þjónustu að stefnumótun svæðis-
ins. Þessir aðilar munu halda
atkvæðis rétti í umdæmisráðum
og einnig fá atkvæðisrétt í stjórn
hálendisþjóðgarðs, sem þau hafa ekki
í Vatnajökulsþjóðgarði. Þannig munu
þeir geta haft áhrif á stjórnunar- og
verndaráætlanir, þar sem er einmitt
fjallað um umferðarrétt, aðgengi,
nytjar og takmarkanir á einstökum
svæðum. Þeir sem mestar áhyggjur
hafa haft af því að hálendinu verði
lokað eða nytjar ekki heimilaðar með
tilkomu þjóðgarðs munu hafa meiri
áhrif á stefnumótun á svæðinu en nú
gildir í Vatnajökulsþjóðgarði.
Frumvarpið tekur skýrt fram
að almenningi er heimil för um
hálendisþjóðgarð og dvöl á svæðinu.
Kveðið er á um að akstur utan vega sé
bannaður, en heimilt að aka á jöklum
og snævi þakinni jörðu ef jörð er
frosin, líkt og gildir á öllu landinu í
dag. Ráðherra fær heimild til að setja
reglur um dvöl, umgengi og umferð
í þjóðgarðinum líkt og í lögum um
Vatnajökulsþjóðgarð. Ráðherra
er hins vegar ekki heimilt að loka
öllu hálendinu eins og skilja mætti
af umræðunni, enda eitt markmiða
þjóðgarðsins að auðvelda almenningi
að kynnast svæðinu. Ég hef auk þess
engan áhuga á að loka hálendinu fyrir
fólki. Ég deili ást og væntumþykju
þess fólks sem hefur skoðun á þessu
svæði og hvernig eigi að stýra því
og ég á mínar bestu stundir uppi á
hálendi Íslands. Ég myndi því aldrei
vilja svipta aðra möguleikum á
svipuðum upplifunum, en ég tel samt
að reglur þurfi að gilda sem einhver
takmörkun getur fylgt.“ /VH
Um áramót breytist verð-
skrá auglýsinga og áskrifta
hjá Bændablaðinu. Verð-
lags breyt ingar haldast í
hend ur við vísitölu breyt-
ingu á ársgrundvelli. Verð
á dálk sentimetra í hefð-
bundn um auglýsingum
hækkar úr 1.650 krónum í
1.700 krónur.
Áskriftarverð fyrir árgang
blaðsins, alls 24 tölublöð og
Tímarit Bændablaðsins,
verður 11.600 krónur með
virðisaukaskatti en gjalddagar
verða tveir á ári. Eldri borgarar
og öryrkjar fá afslátt af áskrift
en árgjaldið til þeirra verður
7.600 krónur m. vsk.
Verðskrá 2021
• Áskrift 11.600 kr. m. vsk.
• Áskrift, eldri borgarar og
öryrkjar 7.600 kr. m. vsk.
• Smáaugl. m. mynd 5.900
kr. m. vsk.
• Smáaugl. 2.500 kr. m. vsk.
• Smáaugl. á netinu 1.200
kr. m. vsk.
• Dálksentímetri 1.700 kr.
án vsk.
• Dálksentímetri, síða 3 og
baksíða,1.900 kr. án vsk.
• Dálksm. á fréttas. 2.650 kr.
án vsk.
• Dálksm. svarthvítt 1.400
kr. án vsk.
• Tímagjald fyrir upp setn-
ingu augl. 9.000 kr. án vsk.
• Niðurfellingargjald 15%
af brúttóverði auglýsingar.
/TB
Beate Stormo, járn- og eldsmiður
og bóndi í Kristnesi, hefur
lokið við að gera módel af nýju
kennileiti fyrir Eyjafjarðarsveit,
þriggja metra hárri kú og fimm
metra langri. Hún er að að sanka
að sér efnivið og hyggst hefjast
handa við að setja risakúna saman
heima á hlaði þegar aðeins fer að
vora. Hugmyndir eru uppi um að
koma risakúnni fyrir við Sólgarð
og að það verði gert í tengslum
við Handverkshátíð sem haldin er
árlega á Hrafnagili í ágústmánuði.
Ferðamálafélag Eyjafjarðar hefur
forgöngu um þetta verkefni. Kýrin
á að minna gesti sveitarfélagsins
á mikilvægi mjólkurframleiðslu í
sveitarfélaginu og hversu stór hluti
þeirrar mjólkur sem framleiddur
er á Íslandi á uppruna sinn í
sveitarfélaginu.
„Það verður virkilega gaman
og spennandi að takast á við þetta
verkefni,“ segir Beate, sem ekki
hefur áður unnið við verkefni af
þessari stærðargráðu. Hún segist
því með sanni hoppa vel út fyrir
þægindarammann við smíði á
risakusunni. Hún hafi einkum
einbeitt sér að fínni vinnu, gert smáa
hluti á borð við teskeiðar, ostahnífa
og snaga, svo dæmi séu tekin.
Aðstaða úti á hlaði
Beate hyggst nýta tímann yfir
hörðustu vetrarmánuðina til að
sanka að sér efnivið og koma sér upp
aðstöðu heima á hlaði í Kristnesi.
„Ég ætla svo að byrja að setja
verkið saman þegar fer að vora og
aðeins að hlýna. Þetta er svo stórt
verk að ég verð að vera úti við
smíðina,“ segir hún. „Ég renni í raun
blint í sjóinn með hversu mikinn
tíma tekur að vinna þetta verkefni.
Ég hef aldrei áður unnið við verk
af þessari stærð en er að reyna að
gera mér grein fyrir umfanginu í
huganum.“
Beate fær aðstoð næsta sumar
við að setja verkið saman, eldsmiðir,
bæði íslenskir og erlendir, hafa
boðið fram
aðstoð. Einn kemur frá Sviss og þá
dvelur stúlka frá Eistlandi, lærður
eldsmiður, á Kristnesi í vetur.
„Og svo kemur fólk úr greininni
héðan frá Íslandi til mín í júní og ég
heyri að menn eru spenntir að taka
þátt í þessu með mér,“ segir hún.
Sótt í sagnabrunn um kýr
Beate segir að hún hafi sótt í
sagnabrunn um kýr við hönnun
verksins, m.a. sögur úr norrænni
goðafræði og fleiri þekktar fornsögur
norrænar þar sem kýr koma við sögu.
Þá nefnir hún að Davíð Stefánsson
hafi ort lofkvæði um kýr sem hún
nýti í verkið. Valgerður Bjarnadóttir
sagnakona er henni innan handar í
leit að heppilegum tilvitnunum sem
verða letraðar á verkið, og verða þær
13 talsins. /MÞÞ
Kýrin verður engin smásmíði, þrír metrar á hæð og fimm metrar á lengd.
FRÉTTIR
Sleipnir hestaflutningar ehf
• Fyrirtæki með góð viðskiptasambönd og dygga
viðskiptavini.
• Bíll og 10 hesta vel innréttaður flutningsvagn með myndavélum.
• Flott atvinnutækifæri fyrir öflugan einstakling eða par.
TIL SÖLU - FYRIRTÆKI Í FULLUM REKSTRI
Upplýsingar í s. 847-5800 eða netfanginu slhestaflutningar@gmail.com
Risavaxin kýr verður nýtt kennileiti í Eyjafjarðarsveit:
Gaman að takast á við verkefni
af þessari stærðargráðu
– segir Beate Stormo, eld- og járnsmiður og bóndi á Kristnesi
Beate Stormo, eld- og járnsmiður og bóndi á Kristnesi, með módelið af
risakusunni. Stefnt er að því að þetta nýja kennileiti Eyjafjarðarsveitar verði
tilbúið næsta sumar og vígt í tengslum við Handverkshátíð sem þar er haldin
árlega. Myndir / MÞÞ
Bændablaðið:
Verðbreytingar
um áramót
Frumvarp um hálendisþjóðgarð:
Hálendisþjóðgarður 30% af Íslandi og stærsti þjóðgarður Evrópu