Bændablaðið - 17.12.2020, Side 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 20208
Sigurður Eyþórsson hættir sem
framkvæmdastjóri Bænda sam
taka Íslands um næstu áramót.
Tekur hann þá við starfi hjá
atvinnuvega og nýsköpunar
ráðuneytinu.
Sigurður er fæddur í Flóanum í
Árnessýslu og hefur starfað fyrir
samtök bænda frá 2007. Hann var
framkvæmdastjóri Landssamtaka
sauðfjárbænda um átta ára skeið
en hefur verið framkvæmdastjóri
Bændasamtakanna frá 2015.
Sigurður er kvæntur Sigríði
Zoëga, sérfræðingi í hjúkrun og
dósent við heilbrigðisvísindasvið
Háskóla Íslands.
Ekki hefur verið ákveðið hver
tekur við starfi Sigurðar. /VH
FRÉTTIR
Hjónin Sæbjörg Gísladóttir
og Eyvindur Atli Ásvaldsson
á Flateyri tóku við starfsemi
Kalksalts ehf. sumarið 2019, sem
er eina fyrirtækið á Íslandi sem
framleiðir saltbætiefnafötur fyrir
búfénað. Saltið í bætiefnafötunum
kemur frá fiskverkunum á
Vestfjörðum og hafa þau ekki
undan að framleiða fyrir bændur
landsins.
„Við byrjuðum með þetta sumarið
2019 en áður var ég blaðamaður á
Bæjarins besta á Ísafirði en missti
vinnuna rétt fyrir jólin 2018. Þá kom
til mín maður, Úlfar Önundarson
á Flateyri, sem stofnaði Kalksalt
árið 2016 og bjó til uppskriftina í
samstarfi við fleiri aðila. Hann var
byrjaður að þróa vöruna og seldi
bændum á Vestfjörðum og í nokkrar
verslanir á öðrum stöðum. Hann
sagðist vera með frábæra hugmynd
fyrir mig og ég hélt auðvitað að hann
væri með hugmynd að blaðaútgáfu
til að byrja með en nei, nei, annað
kom á daginn,“ segir Sæbjörg.
Einföld og frumstæð verksmiðja
Bændur þekkja vel gæðin sem felast
í salti sem hefur komist í návígi við
fisk, því saltið dregur í sig prótein,
vítamín og snefilefni frá fisknum
sem hefur góð áhrif á kýr, kindur
og hesta.
„Við fórum að skoða hvort þetta
borgaði sig, skoðuðum lánamál
og annað og eignuðumst síðan
reksturinn i júní árið 2019. Maðurinn
minn er kokkur á Hótel Ísafirði og
hann hefur liðlega yfirmenn svo
hann hjálpar mér þegar ég þarf á
aðstoð að halda. Það er búið að vera
brjálað að gera síðan við byrjuðum,“
útskýrir Sæbjörg, en þau hjónin
keyptu beitningaskúr síðasta sumar
og eyddu sumrinu í að gera húsið
upp og laga að starfseminni.
Hjónin hafa fengið ýmsa
styrki fyrir vöruþróun, meðal
annars frá Atvinnumálum kvenna
og Uppbyggingarsjóði, ásamt
Íslandsbanka og frumkvöðlastyrk
frá Ísafjarðarbæ.
„Þetta er mjög einföld verksmiðja
og líklega frumstæðasta verksmiðjan
á landinu. Við fáum salt frá
Patreksfirði og víðar. Í byrjun
ferilsins er saltið malað, síðan sett í
síló og þaðan í steypuhrærivél. Þar
blöndum við öðrum innihaldsefnum
saman við svo sem melassa og
vítamínum. Hrærunni er svo hellt í
hjólbörur og mokað með handafli í
föturnar.“ Til stendur að nýta jólafríið
í að tæknivæða verksmiðjuna örlítið
en ný og stærri hrærivél er á leiðinni
til landsins svo hjónin geti aukið
afköstin.
Hlúum að íslenskri framleiðslu
„Framleiðslan er á fljúgandi
siglingu núna, en við höfum sent
frá okkur fjögur bretti á viku
síðan í september. Við áttum
kindur og foreldrar Eyvindar eru
sauðfjárbændur, svo við vissum
að það vantaði minni saltsteina
heldur en bara þessa í 15 kílóa
fötum. Fyrir um ári síðan hófum
við tilraunaframleiðslu á 7,5 kg
steinum sem passa í uppskrúfaða
saltsteinahaldara og nú er svo
komið að við höfum ekki undan að
framleiða í þá. Eftir jólin munum
við svo byrja að markaðssetja enn
minni steina sem henta fyrir hesta.
COVID-19 hefur haft þau áhrif að
fleiri og fleiri sjá ágóðann í því að
kaupa innlenda vöru en við deilum
þeirri skoðun með mörgum bændum
að við eigum að hlúa að íslenskri
framleiðslu í stað þess að kaupa
innfluttar vörur. Og ótrúlegt en
satt þá rekum við eina fyrirtækið á
Íslandi sem framleiðir bætiefnafötur
fyrir skepnur, allt annað er erlent,“
segir Sæbjörg og bætir við:
„Kalkþörungarnir sem varan
dregur nafn sitt af koma frá
Kalkþörungaverksmiðjunni á
Bíldudal. Kalk hefur góð áhrif á
vöxt beina, tanna, ullar og felds.
Kúabændur sem nota kalksalt hafa
talað um að frumutala hafi lækkað
og fita hækkað hjá kúnum eftir að
þeir fóru að gefa kalksalt. Kalksaltið
er steypt í melassa sem gerir það afar
lystugt en þar að auki eru í því selen,
A-vítamín, E-vítamín og D3. Nú eru
vörurnar okkar seldar um allt land
og í langflestum búvöruverslunum
nema hjá Landstólpa. Og á þeim
svæðum þar sem ekki eru verslanir
þá selja bændur fyrir okkur. Við
erum ákaflega þakklát fyrir viðtökur
bænda við vörunum frá okkur en
þeir kunna vel að meta að geta
keypt íslenska kalksteina með litlu
kolefnisspori.“ /ehg
Hjónin Sæbjörg Gísladóttir og Eyvindur Atli Ásvaldsson á Flateyri:
Hafa ekki undan að framleiða íslenskt kalksalt
Hjónin Sæbjörg Gísladóttir og Eyvindur Atli Ásvaldsson á Flateyri tóku við starfsemi Kalksalts ehf. sumarið 2019
og hafa þau nú vart undan að framleiða saltbætiefni fyrir bændur landsins. Myndir / Úr einkasafni
Synir þeirra hjóna, Ívar Hrafn og
Andri Pétur, eru liðlegir að hjálpa
til í saltbætiefnaverksmiðjunni en
móðir þeirra segir þetta sennilega
frumstæðustu verksmiðju landsins.
Kalksaltið er steypt í melassa sem
gerir það afar lystugt en þar að auki
eru í því selen, A-vítamín, E-vítamín
og D3.
Sigurður Eyþórsson hættir
sem framkvæmdastjóri BÍ
Sigurður Eyþórsson. Mynd / HKr.
Stigahæsti lambhrútur landsins 2020
Þetta er lambhrúturinn Þórshamar frá Mýrum 2 í Vestur-Húnavatnssýslu.
Hann er hæststigaði lambhrútur landsins með alls 91,5 stig. Næstur
honum í heildarstigum er Þyrnir frá Miðdal í Gullbringu- og Kjósarsýslu
með samtals 91 stig. Nokkrir lambhrútar eru svo með 90,5 stig, en um
niðurstöður lambadóma 2020 má lesa nánar á bls. 66.