Bændablaðið - 17.12.2020, Side 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202012
ASÍ hefur skilað skýrslu til
atvinnu vega- og nýsköpunar-
ráðu neytisins (ANR) um verð-
könnun á innlendum og innflutt-
um landbúnaðarvörum á tímabil-
inu frá desember 2019 til ágúst
2020. Skýrslan sýnir að í flestum
tilvikum hafa innfluttar búvör-
ur hækkað mun meira í verði en
innlendar, mestur er munurinn á
innfluttu og innlendu grænmeti.
Skýrslan er unnin samkvæmt
þjónustusamningi sem ASÍ og ANR
gerðu í lok árs 2019. Markmiðið
með samningnum var að fylgja
þannig eftir þeim breytingum sem
gerðar voru á lögum um úthlutun
tollkvóta í desember 2019, sem
væntingar stóðu til að myndu skila
sér í lægri kostnaði fyrir innflytj-
endur og lægra verði til neytenda.
Í skýrslunni kemur fram að
framboð eða úrval á þeim land-
búnaðarvörum sem könnunin náði
hafi aukist töluvert á tímabilinu,
bæði er varðar innfluttar og inn-
lendar vörur.
Kannað var verð á nautakjöti,
svínakjöti, fuglakjöti, unnum kjöt-
vörum, ostum og á nokkrum tegund-
um grænmetis. Verðupplýsingum
var safnað frá Bónus, Krónunni,
Hagkaup, Nettó og Kjörbúðinni.
Framboð á innfluttum vörum
jókst verulega í mörgum vöruflokk-
um, mest á innfluttu svínakjöti og
fuglakjöti, en framboð af nauta-
kjöti og ostum jókst einnig mikið.
Framboð innlendra vara virðist í
flestum tilvikum hafa aukist á sama
tíma.
Verðhækkanir á innfluttu svína-
kjöti og innfluttum ostum voru
samkvæmt skýrslunni töluvert
meiri en á innlendum vörum í sömu
flokkum. Minni munur var á verð-
hækkunum á innfluttu og innlendu
nautakjöti. Innfluttar unnar kjötvör-
ur (reykt kjöt, álegg, pylsur o.þ.h.)
hækkuðu minna í verði en þær inn-
lendu. Innflutt alifuglakjöt lækkaði
í verði á meðan innlent alifuglakjöt
hækkaði í verði. Mestar verðhækk-
anir voru á ostum í könnuninni,
en innfluttir ostar hækkuðu um 9
prósent samanborið við 6,5 prósent
hækkun á innlendum ostum.
Almennt virðist innflutt græn-
meti hafa hækkað umtalsvert meira
á tímabilinu en innlendar vörur.
Framboð reyndist hins vegar nokk-
uð óstöðugt og liggja ekki eins góð
verðgögn fyrir um grænmeti, líkt
og fyrir kjöt og osta.
Tekið er fram að veiking krón-
unnar geti haft tilhneigingu til að
fara nokkuð hratt út í verðlag á
innfluttum vörum, en aðrir áhrifa-
þættir vegi mögulega upp á móti.
Á tímabilinu sem verðkannanirnar
fóru fram veiktist íslenska krónan
um 16,7 prósent.
/smh
FRÉTTIR
A L H L I Ð A B Ó K U N A R K E R F I
R E K S T R A R Þ J Ó N U S T U R
S Í M A O G P Ó S T Þ J Ó N U S T A
T E K J U - O G V E R Ð S T Ý R I N G
W W W . G O D O . I S
HÖFÐABAKKI 9A - 1 10 REYKJAV ÍK
S ÍMI : 555 4636
NETFANG : INFO@GODO . I S
ERT ÞÚ Í GISTIREKSTRI ?
GODO BÝÐUR UPP Á FRÁBÆRAR TÆKNI - OG
REKSTRARLAUSNIR FYR IR E INSTAKL INGA OG
FYRIRTÆKI Í FERÐAÞJÓNUSTU
Matís þróar kerfi til að greina uppruna nautakjöts:
Gagnast til að koma í veg
fyrir matvælasvindl
Sæmundur Sveinsson, fag-
stjóri hjá Matís og fyrrverandi
rektor Landbúnaðarháskóla
Íslands, stýrir um þessar mund-
ir evrópsku rannsóknaverkefni,
sem snýst um að þróa kerfi
með sameindaerfðafræði til
að rekja uppruna nautakjöts.
Sæmundur segir verkefnið eiga
rætur að rekja til kjötsvika-
mála sem skóku Evrópu á árinu
2013, þegar hrossakjöt var selt
sem nautakjöt í miklu magni í
evrópskum stórmörkuðum.
„Við erum að vinna með
breskum kjötframleiðanda, sem
vildi tryggja uppruna kjötsins.
Hrossakjöts-skandallinn hafði
mikil áhrif á kjötframleiðendur
í Evrópu. Það væri hægt að nota
sömu tækni við að skera úr um
hvort nautakjöt sé íslenskt eða
erlent,“ segir Sæmundur um ver-
kefnið.
Vörusvik mikið vandamál
í sölu matvæla
Sæmundur segir að bæði neytendur
og nautakjötsframleiðendur hafi
vaknað við vondan draum þegar
upp komst um svindlið. „Vörusvik í
sölu matvæla eru gríðarlegt vanda-
mál um allan heim, en slík viðskipti
má flokka til glæpastarfsemi þar
sem gróðavonin er mikil, en áhætta
og viðurlög lítil fyrir þá einstak-
linga sem iðjuna stunda.
Þetta hneyksli olli mikilli vit-
undarvakningu meðal neytenda og
framleiðenda nautakjöts í Evrópu.
Málið opnaði jafnframt augu neyt-
enda fyrir því hve flókin og við-
kvæm virðiskeðja kjötframleiðslu
er í raun og veru. Mörg fyrirtæki
sem vinna í þessari verðmætu
grein matvælaframleiðslu áttuðu
sig einnig á þeirri nauðsyn að
koma upp hraðvirkum, öflugum
og hagkvæmum aðferðum til að
sannreyna uppruna afurða á mat-
vælamarkaði.“
Sýnum safnað við slátrun
Matís hefur unnið að þessu verk-
efni undanfarið ár, en það er alþjóð-
legt rannsóknaverkefni, fjármagnað
að fullu af evrópska samkeppnis-
sjóðnum EIT Food. „Verkefnið
nefnist BLINK, en markmið þess er
að þróa nýtt rekjanleikakerfi fyrir
nautakjöt. Aðferðin byggir á þeim
miklu framförum sem orðið hafa
undanfarinn áratug í erfðagrein-
ingartækni og er sambærileg við
aðferðir sem nýttar verða í erfða-
mengjaúrvali í íslenska kúakyninu
sem stefnt er á að innleiða hér á
landi á næstu árum.
Hugmyndin bak við aðferða-
fræðina felst í því, að við slátrun
nautgrips verði lífsýni, til dæmis
hársýni eða vefjasýni, tekið af
gripnum. Sýnið er síðan sent til
rannsóknastofu þar sem erfðaefni
er einangrað og þúsundir erfða-
marka greind í hverjum einasta
grip. Þessar erfðaupplýsingar eru
í framhaldinu nýttar til að útbúa
einstakt „strikamerki“ fyrir hvern
einasta nautgrip sem fer í gegnum
tiltekið sláturhús. Erfðafræðilegt
strikamerki hefur þá kosti umfram
hefðbundin strikamerki, sem allir
kannast við úr matvörubúðinni, að
það fylgir kjötinu hvert sem það
fer og ekki er hægt að breyta því
á neinn hátt. Fyrrgreindum erfða-
upplýsingum, ásamt fylgigögnum,
er að lokum komið fyrir í gagna-
grunni. Ef grunur vaknar um að
svik séu til staðar einhvers staðar
í keðjunni frá nautgrip á fæti til
kjötbita á diski, er hægt senda sýni
af kjötinu í erfðagreiningu og fá
úr því skorið hvort uppruni nauta-
kjötsins sé sá sami og umbúðir
matvælanna segja til um.
Þetta próf er talsvert frábrugð-
ið hefðbundnum erfðafræðilegum
tegundagreiningum. Til að afhjúpa
kjötsvindlið í Evrópu var hefð-
bundinni tegundagreiningu beitt,
erfðaefni eingangrað úr kjöti og
það greint til tegunda, hvort þetta
er hross eða naut.“
Íslenskt kjöt greint frá erlendu
„Aðferðafræðin, sem við vinnum
að, væri auðveldlega hægt að beita
til að sannreyna uppruna íslensks
nautakjöts úr matvörubúðum eða
veitingastöðum. Nýlegar rann-
sóknir hafa staðfest að hinn ís-
lenski kúastofn er erfðafræðilega
mjög ólíkur öðrum nautgripum.
Með einföldu erðfaprófi væri því
hægt að staðfesta uppruna íslensks
nautakjöts.
Verkefninu lýkur í janúar á næsta
ári. Að því loknu munu erlendir
samstarfsaðilar Matís vekja athygli
á aðferðafræðinni meðal evrópskra
kjötframleiðenda. Vonir standa til
að unnt verði að taka tæknina í
almenna notkun í hinum vestræna
heimi á næstu árum og að hana
megi einnig nýta til rekjanleika
á kjötafurðum annarra búfjár-
tegunda,“ segir Sæmundur.
/smh
Sæmundur Sveinsson, fagstjóri hjá
Matís.
Skýrsla ASÍ um verðþróun á dagvörumarkaði:
Innfluttar vörur í flestum tilvikum
hækkað mun meira en innlendar
Verðbreyting frá desember 2019
til september 2020
Vöruflokkur í könnun Innflutt Innlent
Nautakjöt 2,20% 1,60%
Svínakjöt 7,90% 3,70%
Alifuglakjöt -1,30% 3,30%
Unnar kjötvörur 4,80% 5,10%
Ostar 9,00% 6,50%
Tómatar 15% -1%
Gulrætur 26% 5%
Sveppir 10% 1%
Paprikur 19% -3%
Ísl. rófur - -11%
Íslenskar búvörur. Samkvæmt könnuninni hækkuðu þær almennt nokkuð
minna í verði frá því í desember á síðasta ári en innfluttar búvörur. Mynd /OS
Parísarsáttmálinn fimm ára:
Ný markmið í loftslagsmálum kynnt á leiðtogafundi
Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra kynnti ný markmið í
loftslagsmálum fyrir Ísland á
leiðtogafundi þann 12. desem-
ber sem haldinn var í tilefni fimm
ára afmælis Parísarsáttmálans.
Samkvæmt nýju markmiðunum
er stefnt að meiri samdrætti í
losun gróðurhúsalofttegunda.
Er þannig horfið frá markmiði
um 40 prósenta samdrátt frá árinu
1990 til 2030 og þess í stað verð-
ur markið sett á 55 prósent á sama
tíma.
Samkvæmt Parísarsáttmálanum
skulu ríki heims uppfæra lands-
markmið sín í loftslagsmálum á
fimm ára fresti, í fyrsta sinn árið
2020. Íslensk stjórnvöld kynntu
uppfærða aðgerðaráætlun sína
í loftslagsmálum síðasta sumar.
Áætlunin gerir ráð fyrir að hægt
verði að ná meiri samdrætti í losun
en krafa er gerð um í núverandi
samkomulagi Íslands og Noregs
við ESB vegna Parísarsáttmálans.
Í nýju markmiðunum fyrir Ísland
eru einnig aðgerðir til að ná markmiði
Íslands um kolefnishlutleysi
árið 2040 og áfangamarkmiði
um kolefnishlutleysi losunar
á beinni ábyrgð íslenskra
stjórnvalda í kringum árið 2030.
Þá er aukin áhersla á loftslagstengd
þróunarsamvinnuverkefni í
markmiðunum, einkum á sviði
sjálbærrar orku með tilliti til
íslenskrar sérþekkingar.
Vettvangur fyrir nýja sókn
Eins og áður er Ísland í samfloti
með Evrópusambandinu og
Noregi með sín loftslagsmarkmið.
Það voru Sameinuðu þjóðirnar
sem stóðu að fundinum en ásamt
Íslandi voru Chile, Ítalía, Bretland
og Frakkland þátttakendur. Á
fundinum voru leiðtogar þeirra ríkja
sem voru reiðubúin að kynna ný og
metnaðarfull markmið um samdrátt
í losun gróðurhúsalofttegunda,
kolefnishlutleysi og framlög til
loftslagsmála í þróunarlöndunum.
Tilgangurinn með fundinum var
að vekja athygli á loftslagsvánni og
skapa vettvang fyrir nýja sókn til
að ná markmiðum samningsins, um
að halda hnattrænni hlýnun innan
tveggja gráða og leita leiða til að
takmarka hlýnun við eina og hálfa
gráðu. /smh
Katrín Jakobsdóttir.