Bændablaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202018
Síðastliðinn þriðjudag streymdi
íslenskt lambakjöt þriðja
matreiðsluþættinum í seríunni
Náttúrulega hreint – beint á
Facebook-síðu sinni. Þættirnir
eru hluti af ímyndar- og
kynningarherferðum Icelandic
Lamb á innanlandsmarkaði
en landsliðskokkurinn Snædís
Jónsdóttir hefur umsjón með
þættinum sem sýndur er í beinni
útsendingu á hverjum þriðjudegi
klukkan 15.00.
Markmið þáttaraðarinnar
er að vekja athygli íslenskra
neytenda á fjölbreytileika íslensks
lambakjöts og kenna áhorfendum
að elda auðveldar uppskriftir sem
henta öllum, þeim sem eru að
stíga sín fyrstu skref í matargerð
eða atvinnumatreiðslumönnum.
Snædís tekur á móti góðum gesti í
hverjum þætti og tekur fyrir nýjan
lambakjötsbita til þess að elda úr, en
í fyrstu þrem þáttunum hafa verið
tekin fyrir lambabógur, gúllas og
nú síðast hangikjöt. Aðspurð segir
Snædís mikilvægt að sýna íslenskum
neytendum hversu auðvelt sé að elda
lambakjöt á framandi hátt.
„Ég vildi leggja áherslu á ferska
nálgun og nýta tækifærið til þess að
kynna minni þekkta bita eins og til
dæmis lambabóginn. Ég hef líka
lagt mig fram við að sýna hvernig sé
hægt að nota afganga á skemmtilegan
máta. Eftir að fyrsti þátturinn fór
í loftið fengum við skilaboð frá
áhorfendum sem vildu endilega
fá hugmyndir að uppskriftum af
réttum úr afgöngum sem gætu
komið í stað þess að setja kjötið
bara í pott með sósu og kartöflum.“
Aðspurð segist Snædís vilja gefa
áhorfendum tækifæri til þess að
upphefja hversdagsmatargerðina
og gera sælkeramatreiðslu
aðgengilegri. „Það er furðulega
auðvelt fyrir okkur Íslendinga að
nálgast hágæðahráefni, íslenskar
afurðir eru á heimsmælikvarða og
íslenska lambið er einstaklega meyrt
og auðvelt að elda. Við höfum nóg
af ferskum fiski, góðu grænmeti og
mörg tækifæri leynast í náttúrunni
í kringum okkur.“ Snædísi þykir
skemmtilegast að vinna með
íslensk hráefni þegar hún setur
saman rétti en hún hefur mikla
reynslu af því, enda hefur Snædís
náð eftirtektarverðum árangri með
íslenska kokkalandsliðinu.
4 ára reynsla af
matreiðslukeppnum
Snædís hóf feril sinn í matreiðslu
keppnum árið 2016 sem
aðstoðarmaður kokkalandsliðsins á
Ólympíuleikum matreiðslumanna
þar sem liðið lenti í 3. sæti í
flokknum eftirréttir. Hún var
meðlimur liðsins þegar það hneppti
gullverðlaun á heimsmeistaramóti
matreiðslumanna árið 2018 og
komst í úrslit keppninnar kokkur
ársins sama ár. Á Ólympíuleikum
matreiðslumanna í febrúar
síðastliðnum var Snædís í forsvari
fyrir kokkalandsliðið sem fyrirliði
þess en þar náði liðið sögulegum
árangri og endaði í 3. sæti. Er þetta
besti árangur Kokkalandsliðsins
á Ólympíuleikunum.. Liðið
vann til gullverðlauna í báðum
keppnisgreinum sínum á mótinu,
í „Chef´s table“ annars vegar og
„Heitum þriggja rétta“ kvöldverði
hins vegar.
Hörð samkeppni einkennir störf
kokkalandsliðsins og töluverðar
kröfur gerðar til meðlima liðsins.
Snædís segir störf sín fyrir
kokkalandsliðið hafa haft mótandi
áhrif á sig og hún lært mikið af
reynslunni. Keppnisumhverfið
einkennist af ströngu skipulagi
og gerðar eru miklar kröfur um
hreinlæti og framsetningu. „Reynsla
mín af matreiðslukeppnunum er
ómetanleg að mínu mati. Ég er mikið
skipulagðari í eldhúsinu núna og set
mikinn metnað í að halda mínu svæði
hreinu. Ég er öruggari og sjálfsaginn
og teymisvinnan sem er ómissandi
partur af starfi kokkalandsliðsins er
ekki hægt að kenna í skóla. Ég er
metnaðarfull og í kokkalandsliðinu
lærði ég að líta til baka, meta eigin
árangur og árangur liðsins og sjá
hvernig við getum bætt okkur. Ég
reyni að temja mér það í öllu sem ég
geri og er þakklát fyrir þau tækifæri
sem ég hef fengið hjá landsliðinu.“
Óvænt útrás fyrir
sköpunarkraftinn
Snædís ólst upp á Dalvík en á
yngri árum stefndi hún á nám í
fatahönnun. Hún vann meðfram
fatatæknináminu á veitingastaðnum
Sushi Samba í miðbæ Reykjavíkur
og vann sig hratt upp í eldhúsinu.
Eigandi staðarins hvatti Snædísi
reglulega til þess að skrá sig í
matreiðslunám, að lokum sló hún til
og fór á námssamning í matreiðslu
og í Hótel og matvælaskólann.
Segist hún strax hafa fundið að hún
væri á réttum stað. „Ég ætlaði mér
alltaf að verða fatahönnuður en ég
endaði sem matarhönnuður,“ segir
Snædís og hlær. „Ég fæ útrás fyrir
sköpunarkraftinn í matreiðslunni, að
hanna eigin rétti og diska er listform.
Það tekur til dæmis kokkalandsliðið
marga mánuði að undirbúa
keppnir, þróa rétti og finna réttu
samsetninguna.“ Snædís, sem hefur
fjölbreytta reynslu af kokkastarfinu
og unnið meðal annars á Apótekinu
og Mími á Hótel Sögu, segir að
uppáhaldsvinnustaðurinn verði
þó alltaf veiðihúsin. „Veiðihúsin
standa alltaf upp úr. Þar er oftast
bara einn eða tveir kokkar og
fáum við fullt frelsi til þess að
setja saman matseðla, upp að vissu
marki auðvitað. Ég hef gaman af
því að elda fyrir ferðamenn og
kynna fyrir þeim íslensk hráefni á
einstakan hátt og þá eru veiðihús
að mínu mati besti vettvangurinn.
Þar eiga matreiðslumenn og
viðskiptavinir í samskiptum og við
fáum tækifæri til þess að ræða við
gestina.“ Segist hún hafa lagt sig
alla fram við matargerðina og fann
sig fá útrás fyrir sköpunarkraftinn
og setti áherslu á listina sem býr
í matargerðinni. „Ég fór reglulega
út og tíndi ferskar jurtir og önnur
íslensk hráefni. Það óx til dæmis villt
skessujurt bak við eitt veiðihúsið og
notaði ég það óspart. Ég set mikinn
metnað í réttina mína og það var
ánægjulegt að fá viðbrögð frá
gestunum þegar ég taldi upp hvaða
hráefni ég hefði tínt þann daginn.
Að sjá svipinn á kröfuhörðum
matargestum þegar þeir smakka
matinn sem ég hef lagt mig alla fram
við, það er ógleymanlegt.“
Snædís vinnur nú hörðum
höndum að því að undirbúa næsta
matreiðsluþátt en honum verður
streymt á Facebooksíðum Íslenskt
lambakjöt, Icelandic Lamb,
Bændablaðsins og Veitingageirans.
Þar verður jólasteikin í forgrunni
en Snædís ætlar að sýna hvernig
má töfra fram jólamáltíð fyrir
mismunandi fjölskyldustærðir. „Í
dag getur matreiðslan á aðfangadag
verið flókin. Á sumum heimilum
búa til dæmis saman kjötætur
og grænmetisætur og í ár setja
samkomutakmarkanir strik í
hátíðarhöldin. Þess vegna vildi
ég taka sömu uppskrift en nota
mismunandi bita, fyrir fjóra til
fimm annars vegar og tvo til þrjá
hins vegar. Þessar aðstæður kalla
svo sannarlega á nýjar lausnir.“
Hægt er að fá áminningu um beinu
útsendinguna með því að fylgja
Íslensku lambakjöti, Bændablaðinu
eða öðrum streymissíðum á
Facebook en allar uppskriftir
eru aðgengilegar á heimasíðunni
íslensktlambakjöt.is.
/Una Halldórsdóttir
MATVÆLI&MARKAÐSMÁL
ÍSLENSKT LAMBAKJÖT
sælkeramatargerð
Landsliðskokkurinn Snædís Jónsdóttir segir mikilvægt að sýna íslenskum neytendum hversu auðvelt sé að elda lambakjöt á framandi hátt. – „Ég vildi leggja
áherslu á ferska nálgun og nýta tækifærið til þess að kynna minni þekkta bita, eins og til dæmis lambabóginn.“
SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA
Vorviður:
Stuðningur við kolefnisbindingu – Kostnaður við plöntukaup endurgreiddur
Skógræktin auglýsir eftir
umsóknum um styrki til
kolefnisbindingar með skógrækt
á vegum félaga og félagasamtaka.
Verkefnið kallast Vorviður
og er hluti aðgerðaráætlunar
stjórnvalda í loftslagsmálum.
Sem hluti af aðgerðaráætlun
ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum
er Skógræktinni falið að efla tengsl
við og styðja félagasamtök með
sérstöku verkefni. Verkefnið
Vorviður er hluti bættrar
landnýtingar í þágu loftslags í
aðgerðaráætluninni
Markmið verkefnisins er að
efla samstarf Skógræktarinnar
og ýmissa félaga um allt land í
því augnamiði að gefa félögum
kost á að binda kolefni með
eigin skógrækt. Félög sem nota
land sem þegar er á skipulögðu
skógræktarlandi njóta forgangs.
Plönturnar skulu vera ræktaðar
í ræktunarstöð og það telst vera
kostur ef hún er í heimahéraði.
Ekki er um að ræða styrk vegna
eigin plöntuframleiðslu.
Stuðningurinn felst í endur
greiðslu kostnaðar við plöntukaup
eingöngu. Félög sækja um styrkinn
til Skógræktarinnar sem annast
umsýslu þessa verkefnis. Sækja
þarf um fyrir hvert ár eins og
vinnureglur kveða á um. Um hvert
verkefni er gerður samningur við
Skógræktina. Umsóknarfrestur
fyrir verkefni árið 2021 er til 15.
janúar 2021 og nánari upplýsingar
um verkefnið er að finna á vef þess,
skogur.is/vorvidur. /VH