Bændablaðið - 17.12.2020, Síða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202020
Alcoa og Rio Tinto hafa verið leið-
andi á heimsvísu í þróun óvirkra
rafskauta sem svo eru nefnd,
og eru án kolefnis. Ef sú þróun
gengur eftir þá mun rafgreining
áls leysa úr læðingi súrefni en
ekki CO2 samkvæmt upplýsingum
frá Samtökum álframleiðenda á
Íslandi, SAMÁL.
Stefnt er að því að hleypa af
stokkunum þessari nýju tækni árið
2024 og miðar hún að því að hægt
sé að innleiða hana í álverum sem
þegar eru starfandi.
Rafskaut án kola
Aðferðin byggir á notkun rafskauta
úr málmblöndum og keramiki í stað
kolefnisskauta við rafgreiningu á
málmgrýtisdufti. Hráefnið báxsíð
(bauxite) eða súrál, eins og það
heitir á íslensku, er efnasamband áls
og súrefnis sem jafnframt nefnist
áloxíð. Það samanstendur af tveim
álfrumeindum (Al) og þrem súrefn
isfrumeindum (O). Súrál er hvítt,
púðurkennt efni og aðalhráefnið í
lokaframleiðlu á áli í álverum líkt
og í Straumsvík.
Við rafgreiningu brenna kolefnis
skautin og súrefnið í hefðbundunum
álverum og mynda mikla losun á
koltvísýringi út í andrúsmloftið.
Með nýju tækninni skilst súrefnið
frá álinu og engin kolefnisskaut eru
til staðar sem geta brunnið.
Helsti kosturinn við þessa nýju
framleiðsluaðferð er því sá að
enginn koltvísýringur myndast í
framleiðsluferlinu, eingöngu ál og
súrefni.
Sem kunnugt er rekur Rio Tinto,
álverið í Straumsvík og Alcoa á
og rekur álver Alcoa Fjarðaáls á
Reyðarfirði og þessi nýja tækni mun
því væntanlega snerta beint stóriðju
rekstur fyrirtækjanna á Íslandi.
Stofnuðu Elysis 2018
Um þetta rafskautaverkefni var fyr
irtækið ELYSIS stofnað af Alcoa og
Rio Tinto í samstarfi við kanadísk
stjórnvöld og Apple árið 2018.
Stefnt er að því að hleypa þessari
nýju tækni af stokkunum árið 2024
og miðar hún að því að hægt sé að
innleiða hana í álverum sem þegar
eru starfandi. Hafa fyrirtækin þegar
lagt í þetta verkefni 188 milljónir
Kanadadollara sem samsvarar
rúmum 18,6 milljörðum íslenskra
króna.
Apple og kanadísk yfirvöld
áhugasöm um þróunarvinnu
Alcoa og Rio Tinto
Apple hefur þegar fengið afhent
sýnishorn af áli frá Elysis þar sem
engin losun var við rafgreininguna. Í
umhverfisskýrslu Apple sem kom út
í sumar, segir að nýja MacBook Pro
verði fyrsta tækið í heiminum, þar
sem eingöngu verður notað ál sem
framleitt er hjá Elysis. Lagði Apple
13 milljónir Kanadadollara (CAD)
í þetta verkefni. Þá stefnir Apple að
því að öll framleiðslukeðja fyrirtæk
isins verði orðin 100% kolefnishlut
laus árið 2030.
Stjórnvöld í Kanada og yfirvöld
í Quebec fylki hafa í gegnum sam
starfsverkefnið „Investissement
Quebec“ samþykkt að styðja við
Elysis með fjárfestingu upp á 60
milljónir CAD. Kanadamenn sjá
í þessu mikil tækifæri til að draga
úr losun álvera þar í landi, en þau
losa árlega um 7 milljónir tonna af
gróðurhúsalofttegundum. Það jafn
ast á við útblástur frá 1,8 milljónum
bifreiða.
Nauðsynlegt að draga
úr kolefnislosun
Vincent Christ, forstjóri Elysis, sagði
í viðtali í þættinum Place Publique
á úrvarpsstöðinni ICI RadioCanada
Première í september að það muni
verða nauðsynlegt að draga úr kolefn
islosun frá framleiðslu keðjunni.
„Við sjáum að framleiðslu fyrir
tækin t.d. í framleiðslu á bílum og
símum, eru sífellt meira að ræða þau
markmið að verða kolefnishlutlaus.“
Þróunarvinnu Elysis er haldið
áfram í þróunarstöð fyrirtækisins
sem verið er að setja upp í Saguency
þrátt fyrir heimsfaraldur COVID19.
„Þrátt fyrir faraldurinn og hrun á
álmarkaði, er nauðsynlegt að hafa í
huga að okkar starfsemi hefur ekki
hægt á sér og við höldum fast við
okkar verkefnaplan,“ sagði Vincent
Christ.
Gera þurfti hlé á verkefni Elysis
við rafskautaþróun í framleiðslumið
stöð Rio Tinto í Jonquière í Quebec
fylki í Kanada 24. mars. Vinna hófst
samt aftur í byrjun maí. Þar er um
að ræða verkefni upp á 50 milljónir
dollara.
Unnið er að því að tryggja búnað
sem til þarf frá Kanada, Svíþjóð,
Frakklandi og Spáni. Áætlað er að
rannsóknarmiðstöðin geti hafið að
fullu starfsemi nú um áramótin. Er
það samkvæmt upphaflegri áætlun,
en fram undan er uppsetning á bún
aði og upphafsfasi tilrauna. Verið
er að ráða og þjálfa 25 starfsmenn
til verkefnisins. Vegna COVID19
faraldursins vinnur um helmingur
þeirra heima.
Samkvæmt orðum Vincent
Christ í samtali við vefsíðu Informe
affaires, þá er ráðgert að rafskautin
verði framleidd á Saguency – Lac
SaintJane svæðinu í Quebec þar
sem bæði Alcoa og Rio Tinto, sem
eru stærstu hluthafar í Elysis, eru
með álverksmiðjur.
Framleiðslan eykst samfara
lægri framleiðslukostnaði
Vincent Christ segir að þessi tækni
eigi að mæta alþjóðlegri eftir spurn
eftir vörum með minna kolefnisspor.
Það muni einnig draga úr fram
leiðslukostnaði álvera um leið og
framleiðslugetan eykst.
„Þegar tæknin verður markaðs
sett mun Elysis tryggja einkaleyfi
á þeim efnum sem nauðsynleg eru
til framleiðslu nýrrar kynslóðar
rafskauta og bakskauta. Þau munu
jafnframt hafa 30 sinnum lengri líf
tíma en þau skaut sem nú eru notuð,“
segir Vincent Christ.
Íslensk tilraun Nýsköpunar
miðstöðvar og Arctus metals ehf.
Stóriðja og rekstur álvera á Íslandi
hafa mætt talsverðri andspyrnu á
liðnum árum þrátt fyrir að tilvera
þeirra sé lykillinn að uppbyggingu
þess öfluga raforkukerfis sem
Íslendingar státa sig mjög af í dag.
Helsti ágreiningurinn lýtur að loft
mengun frá stóriðjunni og röskun
náttúru vegna byggingar orkuvera.
Það var því mjög áhugavert að
Nýsköpunarmiðstöð Íslands, sem
nú er reyndar verið að leggja niður,
og Arctus Metals ehf. kynntu til
raunir með framleiðslu áls án loft
mengunar á Íslandi með því sem
kallað er „óvirk skaut“. Guðni Th.
Jóhannesson, forseti Íslands, tók við
fyrstu álstönginni sem þróuð er með
þessari aðferð í sumar.
Þessi aðferð Nýsköpunarmiðstöð
og Arctus byggir á því að notuð
eru rafskaut úr málmblöndum og
keramiki í stað kolefnisskauta. Þar
sem forskautin taka ekki þátt í efna
hvarfinu eru þau sögð vera óvirk.
Enginn koltvísýringur myndast í
framleiðsluferlinu, eingöngu ál og
súrefni eins og í því ferli sem Alcoa,
Rio Tinto eru að þróa í samvinnu
við Apple.
Ál hefur þegar verið framleitt á
tilraunastofu Nýsköpunarmiðstöðvar
Íslands með þessari nýju aðferð og
þar með staðfest framleiðslu ferilinn.
Verkefnið hefur frá 2016 notið rann
sóknarstyrks frá Tækniþróunarsjóði.
Í því skyni að skala upp verkefnið
svo það henti fyrir framleiðsluker
í fullri stærð undirrituðu Arctus
og Nýsköpunarmiðstöð samstarfs
samning við eitt af stærstu álfyrir
tækjum Evrópu, Trimet Aluminium.
Lýtur samningurinn að því að
Trimnet keyri tilraunaker í fullri
stærð í einu af álverum fyrirtækisins
í Þýskalandi.
Til mikils að vinna við
að draga úr losun á 1,6 milljón
um tonna af CO2
Til mikils er að vinna, því sem dæmi
þá gefa íslensk álver frá sér um 1,6
milljónir tonna af koltvísýringi á ári,
þrátt fyrir að raforkan sem notuð er
til rafgreiningar á súráli sé endur
nýjanleg og ekki framleidd með
brennslu kola. Ef öll álverin okkar
tækju upp þessa nýju tækni myndi
það minnka losun koltvísýrings á
Íslandi um 30%. Álver á stærð við
Ísal í Straumsvík myndi með nýrri
aðferð Arctus framleiða súrefni á
borð við 500 ferkílómetra skóg, sam
kvæmt upplýsingum á vefsíðunni
alklasinn.is.
Ísland með einstakt tækifæri
Ef það tekst að breyta álverum
á Íslandi fyrir þessa nýju raf
greiningartækni, þá eru ekki mörg
lönd, ef nokkurt, annað en Ísland
sem gætu boðið upp á nær algjör
lega græna álframleiðslu. Ekki
einu sinni Norðmenn, þar sem þeir
eru nú beintengdir við raforkunet
Evrópu. Stærsti hluti af raforku
fyrir málbræðslur í Evrópu er t.d.
framleidd með kolum, olíu, gasi og
kjarnorku.
Trimnet vaxandi fyrirtæki
í ál og bílaiðnaði
Trimnet Aluminuum SE, sem Arctus
og Nýsköpunar miðstöð sömdu
við, er stórt, en samt kallað milli
stærðarfyrirtæki á þýska vísu með
um 3.000 starfsmenn á átta starfs
stöðvum og 6.000 manns í tengdum
fyrirtækjum. Starfsemin fer fram í
Essen, Gelsenkirchen, Hamburg,
Harzgerode, Sömmerda, Voerde,
Essen og í Berlín.
Trimnet er með höfuðstöðvar í
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Væntanlega verður byrjað að umbylta framleiðslu á áli með innleiðingu nýrrar tækni 2024:
Ný tækni í þróun fyrir álver sem losar engan
koltvísýring út í andrúmsloftið, bara súrefni
– Tvö slík þróunarverkefni í gangi hjá Elysis í Kanada og verkefni Arctus, Nýsköpunarmiðstöðvar og Trimnet í Þýskalandi
Álver Alcoa á Reyðarfirði hóf starfsemi árið 2007. Það er stærsta álver landsins og með framleiðslugetu upp á 360
þúsund tonn af áli á ári. Mynd / HKr.
Álver Rio Tinto í Staumsvík var upphaflega í eigu svissneska félagsins
Alusuisse. Verksmiðjan var formlega vígð í maí 1970 með framleiðslugetu í
120 kerum upp á 33.000 tonn á ári. Nú er framleiðslugetan um 211.000 tonn.
Mynd / Rio Tinto
Álver Trimnet Aluminum í Essen í Þýskalandi. Arctus og Nýsköpunarmiðstöð
gerðu samstarfs samning við Trimnet Aluminum, eitt af stærstu álfyrirtækjum
Evrópu. Lýtur samningurinn að því að Trimnet keyri tilraunaker í fullri stærð
í einu af álverum fyrirtækisins í Þýskalandi með tækni sem þróuð var á
Íslandi. Mynd / Trimnet
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfis- og auðlindaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta-
og menningarmálaráðherra, og forstjórar/fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur,
Elkem, Fjarðaáls, Rio Tinto á Íslandi og Norðuráls undirrituðu í sumar
viljayfirlýsingu um kolefnishreinsun og -bindingu.