Bændablaðið - 17.12.2020, Síða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2020 29
Í byrjun næsta árs mun verk efnið
Ratsjáin fara af stað, sem er hugs-
að fyrir stjórnendur í ferðaþjón-
ustu og tengdum atvinnugreinum
til að gera þeim betur kleift að
takast á við þær áskoranir sem
ferðaþjónustan stendur frammi
fyrir á COVID-19 tímum. Í
Ratsjánni verður þannig unnið
að því að auka yfirsýn, nýsköp-
unarhæfni og getuna, í greinun-
um, til að þróa vörur og þjónustu.
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir,
framkvæmdastjóri Íslenska ferða
klasans, segir eina af grund
vallarspurningunum sem íslensk
ferðaþjónsta þurfi að svara sé hvern
ig íslensk fyrirtæki ætli að mæta
til leiks eftir þennan faraldur. „Það
mun ráða úrslitum um það hvort
okkur muni takast að byggja upp
samkeppnishæfa ferðaþjónustu sem
þekkt verður á heimsmælikvarða
fyrir faglega þjónustu, sjálfbærni,
verndun náttúruauðlinda og íbúa
sem verða stoltir gestgjafar fólks
alls staðar að úr heiminum.“
Mikilvægt að koma
vel undirbúin til leiks
Hún segir að ekki sé nóg að fyrir
tækin mæti bara til leiks. „Stjórnvöld
spila stóran þátt með viðspyrnuað
gerðum og stuðningsumhverfið
og mennta stofnanir einnig með
góðum og uppbyggjandi menntunar
úrræðum, þjálfun og hæfni.
Íslenski ferðaklasinn er alls
ekki undanskilinn þegar kemur að
stuðningsumhverfi og úrræðum til
að bjóða fyrirtækjum upp á. Í sam
starfi við RATA, sem sérhæfir sig í
að efla einstaklinga við að hámarka
árangur sinn, og tengiliði frá sjö
landshlutasamtökum, Austurlandi,
Norðurlandi eystra, Norðurlandi
vestra, Vestfjörðum, Vesturlandi,
Suðurlandi og Reykjanesi, bjóð
um við upp á Ratsjána, sem er 16
vikna nýsköpunarhraðall til að
efla stjórnendur í ferðaþjónustu
og tengdum greinum. Að hámarki
12 fyrirtæki á hverju svæði taka
þátt og munu læra hvert af öðru og
miðla sinni dýrmætu reynslu, finna
stuðning frá jafningjum og sameig
inlega stíga inn í nýja tíma með öll
þau vopn á hendi sem þarf til að
skara fram úr,“ segir Ásta Kristín.
Fjarfundir á tveggja vikna fresti
Þátttakendurnir munu hittast á
tveggja vikna fresti á sameigin
legum vinnustofum á fjarfundum
þar sem kafað verður í kjarna þeirra
verkfæra sem fyrir valinu verða.
Á milli sameiginlegu vinnustof
anna er haldinn svæðisbundinn
heimafundur sem er í umsjón
landshlutanna sjálfra. Þar verður
farið nánar yfir efnistök frá sam
eiginlegum fundi og unnið með
sérstöðu hvers svæðis fyrir sig á
þeirra forsendum.
Viðfangsefni valin
með þátttakendum
Viðfangsefni og dagskrá
Ratsjárinnar verða að vissu leyti
mótuð í samstarfi við þátttakendur,
en tekur mið af þeim áskorunum
sem rekstur fyrirtækja í ferðaþjón
ustu stendur frammi fyrir. Meðal
þeirra efnisþátta sem verða í boði
eru nýsköpun og vöruþróun, mark
aðsmál og markhópar, sjálfbærni
og ábyrg ferðaþjónusta, stafræn
þróun og tæknibylting fyrirtækja,
breyttir tímar og tækifærin – kaup
ákvörðunar hringurinn, draumur
stofnenda – tilgangur og mark
miðasetning, heimasíður – hvernig
skarar síðan mín fram úr?, já
kvæð sálfræði, breytingastjórnun,
endurhugsaðu viðskiptamódelið,
skapandi hugsun sem verkfæri til
framfara, samkeppnishæfni og sér
stöðugreining.
Ratsjáin mun hefjast með
formlegum hætti í janúar 2021 og
stendur til 16. apríl. Frekari upp
lýsingar um Ratsjána er að finna á
vef Íslenska ferðaklasans (iceland
tourism.is).
Verkefnið um Ratsjána var fyrst
sett af stað í samstarfi Ferðaklasans
og Nýsköpunarmiðstöðvar árið
2016 en hefur notið stuðnings frá
Byggðaáætlun frá 2019. Í ljósi
breyttra tíma mun Ratsjáin 2021
miða að því að vera svæðisbund
in en samtengd í senn og er því
töluvert frábrugðin upprunalega
verkefninu. /smh
LÍF&STARF
Nýsköpunarhraðallinn Ratsjáin:
Ferðaþjónustufyrirtæki undirbúa
sig fyrir endurreisnina
– Grundvallaratriði hvernig við mætum aftur til leiks
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.