Bændablaðið - 17.12.2020, Síða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202032
Kristján Þór Júlíusson sjávar
útvegs og landbúnaðar ráð herra
skipaði doktor Hrönn Ólínu
Jörundsdóttur í embætti forstjóra
Matvælastofnunar til næstu fimm
ára frá og með 1. ágúst síðastliðn
um en alls bárust átján umsóknir
um starfið. Hrönn hefur verið að
setja sig inn í starfið en hún er
efnafræðingur með framhalds
menntun í umhverfisefnafræði og
hefur starfað hjá Matís undanfar
in 11 ár. Hún hefur jafnframt sér
hæft sig á sviði matvælaöryggis,
áhættumats og áhættumiðlunar.
Hrönn Ólína er mikill hjólreiða
garpur og segist elska jólin en fer þó
ekki hátt með það.
Uppalinn Mosfellingur
„Ég fæddist á Lansanum í Reykjavík
í júlí 1978 og eftir flakk fyrstu
fimm árin, m.a. til Fáskrúðsfjarðar
og Svíþjóðar, þá settumst við að í
Mosfellsbæ og ég flokka mig sem
uppalinn Mosfelling. Pabbi er
prófessor í HÍ í sjávarlíffræði og
mamma er tannlæknir en ég á svo
tvær yngri systur.
Ég bý með Brynjari Guðmunds
syni, sem er Siglfirðingur í húð og
hár, og samtals eigum við fimm börn
frá fyrri samböndum. Ég ólst upp
í hestamennsku og handbolta, fór
í MS til að taka stúdentinn og svo
beint í HÍ í efnafræði því ég vissi
ekkert hvað ég vildi verða, not
aði útilokunaraðferðina og þá var
efnafræði það sem stóð upp úr, eins
furðulegt og það kann að hljóma.
Eftir að hafa klárað B.Sc. í efna
fræði þá dró ég fyrrverandi eigin
mann með út til Svíþjóðar þar sem
ég fór í framhaldsnám í umhverfis
efnafræði. Eftir að hafa búið þar í
sjö ár þar til við fluttum heim aftur
og beint í Mosó, eignuðumst við
þrjú börn og skildum, en nokkrum
árum seinna kynntist ég Brynjari og
við erum búin að vera límd saman
síðan.“
Stjórnarformaður Bláa hersins
Eftir heimkomuna frá Svíþjóð byrj
aði Hrönn hjá Matís 2009 sem ver
kefnisstjóri og varð svo sviðsstjóri
yfir matvælaörygginu nokkru seinna
og sá um reksturinn á þjónusturann
sóknarstofunni. Þaðan kom hún svo
beint til Matvælastofnunar í ágúst.
„Fyrir utan það þá er ég stjórn
arformaður Bláa hersins sem er
stýrt af herforingjanum Tómasi
Knútssyni, eldhuga og frumkvöðli.
Fyrir utan vinnuna þá er ég djúpt
sokkin í reiðhjólasportið þar sem
búið er að skipta út reiðskjótunum
með keppnum, þjálfun og æfingum.
Á veturna stundum við fjölskyldan
svo skíðasportið af miklum móð þar
sem við hjónaleysin förum mikið á
fjallaskíði. En annars er öll útivist
mjög ofarlega á áhugasviðslistanum.
Ég held að það sé óhætt að segja að
ég sé jákvæður orkubolti sem hefur
gaman af lífinu og nýjum áskorun
um. Eins og ég segi í hjólreiðunum,
ég elska brekkur,“ segir Hrönn og
hlær.
Matvælaöryggi og umhverfismál
Talið berst næst að því hvað hafi
komið til að hún hafi sótt um starf
forstjóra Matvælastofnunar þegar
hún var í góðu starfi hjá Matís.
„Já, þú segir nokkuð, bæði í
mínu námi erlendis og hjá mínum
fyrri vinnuveitanda, Matís, þá hef
ég unnið að málum sem varðar
matvælaöryggi og umhverfismál. Í
gegnum þessa vinnu og rannsóknir
þá hef ég þróað hjá mér brennandi
áhuga á málaflokkunum, og þá
sérstaklega matvælaöryggi og get
drepið niður hvaða partí sem er
með umræðum um óæskileg efni
í matvælum og áhrif þeirra á heilsu
manna.
Ég hef mjög góða þekkingu og
kunnáttu á áhættumati og matvæla
öryggi og hef mjög sterkar skoðanir
á mikilvægi málaflokksins. Ég hafði
einnig unnið með Matvælastofnun
í gegnum árin og finnst starf stofn
unarinnar vera einstaklega mikil
vægt og að mörgu leyti vanmetið.
Eins hef ég líka sterka skoðun á
hvert er hægt að fara með stofnun
ina til að gera hana enn betri og það
voru þær hugmyndir og skoðanir
sem gerðu það að verkum að ég gat
ekki annað en sótt um,“ segir Hrönn.
Stolt af því að hafa
fengið stöðuna
Kom það þér á óvart að hafa fengið
starfið hjá Matvælastofnun?
„Já og nei, það kom mér vissulega
á óvart að komast áfram því ég veit
að samkeppnin var gríðarlega sterk
og mjög flottir kandídatar sem sóttu
um og ég er því líka mjög stolt af
því að hafa fengið stöðuna. En ég
held að ég hafi margt fram að færa
og ég náði að selja þá framtíðarsýn
og stefnu sem ég hef á eftirliti og
stjórnun inn í valnefndina og til
ráðherra.
Það sem ég held að hafi veitt
mér forskot á aðra aðila var að ég
vil leggja mikla áherslu á samtal og
skilning milli aðila ásamt því að ég
er mjög drífandi og framávið með
góða þekkingu og skilning á hluta
verkefna stofnunarinnar.
Ég hef nú þegar hafið
stefnumótun innan stofnunarinnar
sem ég held að leiði til framsýnnar
stofnunar sem svarar þörfum
samtímans og skapar betri sátt um
störf stofnunarinnar.“
Annasamir mánuðir
Eins og gefur að skila tekur það tíma
sinn fyrir nýjan forstjóra að kynnast
starfi stofnunarinnar og fólkinu sem
þar starfar en það hefur þó gengið
ótrúlega vel hjá Hrönn.
„Já, fyrstu mánuðirnir hafa verið
mjög annasamir. Fyrir það fyrsta að
reyna að ná áttum og yfirsýn yfir
það gríðarlega víðfeðma svið sem
stofnunin sinnir og kynnast öllu því
frábæra fólki sem hjá stofnuninni
vinnur. Eins er áskorun að takast á
við stjórnun á stofnun sem ég þekki
ekki til fullnustu á tímum COVID
og tryggja það að fólk geti unnið
áfram, líði vel og geti sinnt sínum
verkefnum. En sem betur fer er
ég með mjög gott fólk með mér
til aðstoðar. Við erum að byrja að
LÍF&STARF
Hrönn Ólína Jörundsdóttir, nýr forstjóri Matvælastofnunar:
þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg
og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt
– Nýi forstjórinn stundar reiðhjólasportið grimmt, elskar jólin og uppáhaldsstaðurinn á Íslandi er Þórsmörk
Hrönn Ólína Jörundsdóttir, nýr forstjóri Matvælastofnunar, stödd fyrir utan húsnæði stofnunarinnar á Selfossi þar sem hennar skrifstofa og starfsaðstaða er.
Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson