Bændablaðið - 17.12.2020, Page 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2020 33
REKSTRARLAND ER BAKHJARL BÆNDA
Í Rekstrarlandi fást allar almennar rekstrarvörur fyrir landbúnað. Nilfisk háþrýstidælur,
Exide rafgeymar, gæðasmurefni og olíur á vélarnar, Ecolab lágþrýstiþvottatæki ásamt
hreinsiefnum, sótthreinsandi og græðandi vökvar fyrir spena og júgur.
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | 515 1100 | Austurvegi 69 | 800 Selfossi | 480 1306 | rekstrarland.is
NÝ VERSLUN Á SELFOSSI
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
RÚÐUR Í
DRÁTTARVÉLAR
FRÁBÆR VERÐ
John Deere
Zetor
Case IH
McCormick
Steyr
Claas
Ford
Fiat
New Holland
Deutz-Fahr
Massey Ferguson
marka framtíðarsýn fyrir stofnunina
og vinna að því að efla stofnunina
svo við getum betur sinnt þeim
verkefnum sem eru hjá okkur.
Það eru skipulags- og
rekstrarlegar áskoranir hjá okkur á
næsta ári að takast á við ásamt því
að byggja upp okkar gagnagrunna
og tölvukerfi,“ segir Hrönn og bætir
strax við: „Sem dæmi, við erum t.d.
að takast á við stærsta riðutilfelli
sem upp hefur komið síðustu áratugi
og það er ótrúlegt að fylgjast með
fagfólkinu takast á við það verkefni.
Við erum að takast á við úrgöngu
Breta úr Evrópusambandinu og
hvernig það hefur á íslenskan inn-
og útflutning.
Mér líst virkilega vel á starfið
og allt því sem starfinu fylgir. Mig
óraði samt ekki alveg fyrir hversu
fjölbreytt stofnunin er og það hefur
verið mjög upplýsandi að fá að
fylgjast með mismunandi verkefnum
og að kynnast öllu því fólki sem
vinnur hér.“
100 manna stofnun
á fjórum stöðum
– Hvernig er stofnunin byggð upp
og hvar eruð þið með starfsemi og
hver er fjöldi starfsmanna?
„Við erum u.þ.b. 100 manns
sem starfa hjá stofnuninni dreift
um landið á 4 mismunandi sviðum
ásamt skrifstofu forstjóra. Sviðin
eru Neytendavernd og fiskeldi,
Dýraheilsa, Markaðsmál og svo
Samhæfing og þjónusta.
Höfuðstöðvarnar eru á Selfossi
og svo erum við með stóra skrifstofu
á Dalshrauni í Hafnarfirði þar sem
inn- og útflutningsmál (markaðsmál)
eru staðsett.
Hjá okkur eru fimm héraðsdýra-
læknar með hvert sitt umdæmi á
landinu. Störfin og verkefnin eru
einstaklega fjölbreytt og viðamikil
en kjarninn er eftirlit með matvælum
og dýraheilsu og velferð og umbjóð-
endur okkar eru neytendur, dýr og
plöntur.“
Neytendavernd og fiskeldi
Hrönn heldur áfram að segja frá
starfsemi Matvælastofnunar og tekur
skýrt fram að starfsemin sé gríðar-
lega viðamikil og fjölbreytt, en líka
skemmtileg og krefjandi.
„Já, það er rétt því það má segja
að við séum með tvö stór eftirlitssvið,
þá annars vegar Neytendavernd
og fiskeldi sem hefur eftirlit með
matvælaframleiðslu og fiskeldi
og hins vegar Dýraheilsa sem
hefur eftirlit með frumframleiðslu,
dýrasjúkdómum og dýravelferð. Þar
koma t.d. gæludýr líka inn. Þriðja
stóra sviðið er svo Markaðsmál
sem sinnir eftirliti og gefur út
vottorð fyrir inn- og útflutning sem
gerir það að verkum að markaðir
erlendis séu opnir fyrir íslenska
framleiðslu sem dæmi. Fjórða
sviðið og skrifstofa forstjóra eru
mikilvægar stoðeiningar fyrir okkur
og ráðuneytið. Það er erfitt að setja
hvaða mál taka lengstan tíma en
það geta verið flókin og stór mál
Fjölskyldan, Hrönn og Brynjar ásamt börnunum, sem eru Eiríkur Freyr, Iðunn Ragna í miðjunni og Ásdís Rún.
Myndin var tekin í fjölskylduferð til vesturstrandar USA 2018, tekin í Universal studios í LA. Mynd / Úr einkasafni
– Framhald á næstu síðu
Hrönn á skrifstofunni sinni á Selfossi en fjölskyldan hefur ákveðið að flytja
á Selfoss og er að leita sér að hentugu húsnæði á staðnum.
Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson