Bændablaðið - 17.12.2020, Qupperneq 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202034
LÍF&STARF
varðandi úrbætur á athugasemdum
sem koma upp í eftirliti. Við erum
sífellt að reyna að bæta ferilinn
hjá okkur til að reyna eftir fremsta
megni að koma í veg fyrir að mál
séu að dragast að óþörfu hjá okkur,“
segir Hrönn.
Hún tekur líka fram að erfið
velferðarmál dýra geta verið
átakanleg og flókin og oft erfitt
að takast á við, þar geti komið inn
erfiðar mannlegar aðstæður, andleg
og líkamleg veikindi, félagsleg
vandamál og svo framvegis.
„En ég held að slæm meðferð á
dýrum séu alltaf átakanlegustu málin.
Eins má segja að riðutilfellin núna
fyrir norðan eru einstaklega erfið
og viðamikil þar sem afleiðingarnar
eru virkilega sárar fyrir ábúendur
býlanna sem þarf að skera niður.
Ég sé það hins vegar að starfsfólk
Matvælastofnunar setur virkilega
hjarta og sál í sína vinnu og gerir
það virkilega vel,“ segir Hrönn.
Frábær mannauður
Þegar talið berst að mannauði
Matvælastofnunar er Hrönn fljót
til svars.
„Ég segi það hreint út að ég
er ákaflega stolt af mínu fólki hjá
Matvælastofnun og af stofnuninni í
heild sinni. Sérfræðingastofnun eins
og Matvælastofnun væri ekkert án
þess frábæra fólks sem er innanhúss
og sérfræðiþekkingin er gríðarleg.
Ég hef séð hvað fólkið mitt
er tilbúið að leggja á sig til að
fylgja eftir málum, vinna að bættu
umhverfi og betri velferð dýra,
oft við mjög erfiðar aðstæður.
Eftirlitsfólkið hefur orðið fyrir
aðkasti og árásum einstaklinga
sem eiga við vanheilsu að etja,
hefur stigið inn í virkilega erfiðar
aðstæður til að tryggja velferð dýra
og hefur þurft að taka mjög erfiðar
ákvarðanir til að tryggja öryggi
neytenda.
Auðvitað gerum við mistök,
við erum engan veginn hafin yfir
gagnrýni og getum alltaf lært og
bætt okkur. En ég myndi segja að í
heildina vinnum við af heilindum og
metnaði með hag okkar umbjóðenda
fyrir brjósti. Við erum t.d. að bæta
okkur í samskiptum við hagaðila
sem ég held að sé mjög mikilvægt
því það hefur í gegnum tíðina skort
á skilningi á okkar störfum. Ég vil
opna meira á samtal og samráð
þannig að við getum stuðlað að betri
sátt um störf okkar.“
Erlend samskipti
Matvælastofnun á í miklum
erlendum samskiptum og Hrönn
segir þau mjög mikilvæg.
„Við tengjumst sambærilegum
stofnunum á Norðurlöndunum og
Evrópu, ásamt Matvæla öryggis
stofnun Evrópu. Samskiptin eru
mikilvæg því við erum oft að kljást
við sömu vandamálin og áhætturnar,
við getum alltaf lært af hvert öðru
og það er mjög mikilvægt að fylgjast
með því sem er að gerast í kringum
okkur. Samskiptin eru margs konar,
það eru netverk, fundir, námskeið
og fleira sem er unnið saman og ég
myndi gjarnan vilja finna leiðir til
skiptivinnu milli norrænna stofnana
til að við lærum af hvert öðru og flutt
þekkingu og verklag milli landa.“
Mörg erfið mál
„Það geta oft komið mjög erfið mál
inn á okkar borð. Við höfum innleitt
teymisvinnu til að geta betur tekið
á erfiðari og stærri málum. Teymin
hafa gefið stofnuninni mikið, með
því erum við að tryggja að við séum
með réttan mannauð til að takast á
við málin í hvert sinn, þau séu leyst
heildstætt og samhæft, sérstaklega
milli landshluta. Eins eru teymin
líka stuðningur fyrir starfsfólkið
þannig að það standa fleiri að baki
ákvörðuninni sem er tekin,“ segir
Hrönn aðspurð hvernig tekið sér á
erfiðum og flóknum málum, sem
koma inn á borð stofnunarinnar.
COVID er mikil áskorun
– Hver eru brýnustu mál stofn unar
innar á þessum skrýtnu tímum sem
við lifum á?
„Vissulega er vinna á tímum
COVID virkileg áskorun og að finna
betri leiðir til að sinna okkar vinnu
áfram. Það eru stór utanaðkomandi
verkefni sem við þurfum að takast
á við eins og afleiðingar Brexit á
íslenskan inn og útflutning. Ég
myndi segja að brýnustu málin séu
annars vegar að byggja upp frekari
samskipti milli okkar og hagaðila
okkar til að geta byggt upp betri
og sterkari Matvælastofnun með
jákvæða ímynd.
Eins erum við að skoða lausnir
til að efla rafrænar lausnir sem á
bæði við okkar viðskiptavini en eins
okkar eigið starfsfólk. Við þurfum
að endurskipuleggja uppsetningu
okkar gagnagrunna og gera t.d.
afgreiðslu vottorða eins sjálfvirka
og við getum. Eins erum við að meta
og skoða hvernig við getum sinnt
betur okkar eftirliti. Við settum niður
3 vísa fyrir þjónustu annars vegar og
eftirlit hins vegar sem við ætlum að
styðjast við. En í framtíðinni viljum
við að þjónustan okkar sé snögg,
fagleg og aðgengileg og að eftirlitið
sé einfalt, málefnaleg og skilvirkt.“
Framtíðarsýnin er skýr
– Hver eru brýnustu verkefni Mat
væla stofnunar í náinni framtíð?
„Mín framtíðarsýn er að
Matvælastofnun sem ein mikil
vægasta stofnun landsins í
Matvælalandinu Ísland, vinni
samhliða hagsmunaaðilum með
jákvæðu hugarfari beggja aðila og
að allir eftirlitsaðilar séu samhæfðir
og skilvirkir í sínu eftirliti.
Mín framtíðarsýn er líka að eftirlit
sé litið jákvæðum augum og eftirlit
sé notað sem tækifæri til að bæta
sig og sína framleiðslu og jafnvel
sem markaðstækifæri. Ef eftirlit er
einfalt, málefnalegt og skilvirkt þá
er það klárlega styrkur fyrir góðan
iðnað og framleiðslu.
Við þurfum líka að tryggja að sá
rammi sem Matvælastofnun vinnur
innan svari þörfum samtímans.
Ég mun leggja áherslu á samtal
og samvinnu við hagsmunaaðila,
betri upplýsingagjöf og stafrænni
Matvælastofnun.“
Framtíðin björt
Hrönn segist horfa björtum augum
á framtíð Matvælastofnunar þegar
hún horfir í gegnum kristalkúluna
sína næstu 10 til 15 árin.
„Já, já, ég sé mjög bjarta framtíð
fyrir Matvælastofnun, ég held að við
séum alltaf að þróast og breytast og
það er hollt. Samfélagið er sífellt í
þróun og við verðum að fylgja því.
Við erum byrjuð á stefnumótun
til næstu fimm ára og ég sé það
sem virkilega spennandi verkefni
en við erum búin að lista niður bæði
innanhúss og utanhúss verkefni
niður á blað. Ég sé að ráðuneytið er
á góðum stað og samskiptin milli
Matvælastofnunar og atvinnuvega
og nýsköpunarráðuneytisins eru
mjög góð þar sem ráðuneytið
hefur virkilega lagt sig fram við
að fá yfirsýn yfir öll þau fjölmörgu
verkefni sem við sinnum. Ég held að
næstu ár verði viðburðarík og ég sé
vel skipulagða og skilvirka stofnun
eftir 10–15 ár.“
Djúpt sokkin í hjólasportið
Hrönn Ólína á sér mörg áhugamál
og reynir að sinna þeim eftir fremsta
megni þegar hún er ekki í vinnunni.
„Ég hef alltaf verið á þeirri
skoðun að maður verði að hafa
eitthvað annað fyrir stafni til að hvíla
hugann ef maður er í krefjandi starfi,
það er mjög mikilvægt að kúpla sig
aðeins út. Eins er mikilvægt að sinna
fjölskyldunni og ég hef alltaf verið
mikil fjölskyldumanneskja. Annars
er ég djúpt sokkin í hjólasportið,
líklega mikið meira en góðu hófi
gegnir en hjólreiðar eru eitt það
skemmtilegasta sem ég veit en ég
stunda bæði þjálfun, æfingar og
keppnir. Svo koma skíðin eftir það
en skíðin eru líka eitthvað sem við öll
fjölskyldan stundum saman. Annars
eru almenn útivera og samvera
með fjölskyldunni það sem ég legg
áherslu á, bara t.d. fara út að kvöldi
til í stjörnuskoðun með krökkunum
er æði, sérstaklega svona á COVID
tímum.“
Jólin eru æði
Nú þegar jólahátíðin er alveg
að ganga í garð er ekki komist
hjá því að spyrja nýjan forstjóra
Matvælastofnunar hvernig jólin
séu í hennar huga.
„Ég er svona laumujólabarn,
mér finnst jólin æði. Ég er samt
aðeins of löt í skreytingum og
bakstri. Það eru samt alltaf settar
upp einhverjar seríur og alltaf
eitthvað bakað en það er pínu
óskipulagt og ómarkvisst. Ég
laumast samt alveg til að spila
jólalög fyrir 1. desember.
Ég hlakka alltaf til jólanna þar
sem maður finnur að samfélagið
dettur í annan gír og það eru alltaf
ákveðnir töfrar í kringum jólin. Ég
ákvað líka fyrir löngu að stressa mig
ekki of mikið á jólunum og reyna
að njóta þeirra frekar. Eins höfum
við skapað þá hefð að fara alltaf í
skógræktina í Mosó og saga niður
eigið jólatré sem er svo skreytt á
Þorláksmessu með eins miklu af
heimatilbúnu og gömlu skrauti eins
og hægt er, mér finnst það mjög
heimilislegt en algjörlega stíllaust.
Annars eru foreldrar okkar beggja
úti á landi og við höfum bara reynt
að hitta sem flesta en skipulagið
er nú oft bara eftir eyranu eftir því
sem hentar hverju sinni. Krakkarnir
mínir eru stundum hjá okkur en ef
þau eru ekki heima, þá er jólahaldið
bara fært til,“ segir Hrönn.
2021 verður frábært ár
Hvernig leggst nýtt ár, 2021, í þig?
„Ég er í eðli mínu einstaklega
bjartsýn og lausnamiðuð
manneskja þannig að ég held að
2021 verði frábært ár. Og auðvitað
vonar maður að 2021 verði betra en
2020. En ég held að við förum að
fara að komast út úr þessu COVID,
við getum farið að hittast meira og
farið að koma samfélaginu aftur í
gang. Ég sé fullt af skemmtilegum
verkefnum fyrir mér á árinu, bæði
persónulega og hvað vinnuna
varðar.
Við fjölskyldan erum t.d. búin
að selja heimilið í Mosfellsbænum
og erum að leita okkur að húsi á
Selfossi þar sem höfuðstöðvar
Matvælastofnunar eru, þannig að
það verður spennandi nýr kafli í
lífinu að flytja á nýjan stað. Ég er
líka mjög jákvæð gagnvart 2021
hjá Matvælastofnun. Vissulega
eru áskoranir fram undan, COVID
hafði töluverð áhrif á stofnunina
sem við erum ekki búin að sjá
fyrir endann á. En við erum að
móta okkur framtíðarsýn og búin
að ákveða verkefni til að vinna
að sem ég held að geri stofnunina
betri. Þannig að ég horfi björtum
augum á framtíðina,“ segir nýi
forstjórinn. /MHH
Hrönn stödd á skíðasvæðinu á Siglufirði í fallegu veðri, en hún hefur mjög
gaman af því að fara á skíði og allri útiveru. Mynd / Úr einkasafni
Hrönn keppti í keppni á Íslandsmeistaramótinu í fjallahjólreiðum í fyrra á Ísafirði, en henni finnst fátt skemmtilegra en að þeysast á hjólinu sínu um allar
koppagrundir. Mynd / Hörður Ragnarsson
Hér er Hrönn við Glym í Hvalfirði á
fallegum sumardegi. Mynd / Úr einkasafni