Bændablaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202038
UTAN ÚR HEIMI
Norðmenn efla nýsköpun og
frumkvöðla um allt land
Hjá norsku Nýsköpunar miðstöð
inni Innovasjon Norge eru ýmsir
valkostir í boði fyrir bændur og
fyrirtæki tengd landbúnaði en
á þessu ári hefur verið metár í
fjölda umsókna til stofnunarinn
ar. Sigríður Þormóðsdóttir er yfir
maður nýsköpunar í lífhagkerfi hjá
stofnuninni en undir það heyrir
landbúnaður, sjávarútvegur og
skógrækt.
Það má segja að Innovasjon
Norge sé sambland af meðal annars
Tækniþróunarsjóði, Íslands stofu,
Byggðastofnun og Nýsköpunar
miðstöð Íslands þar sem árlega eru
veittir þúsundir styrkja og lána um
allan Noreg til að efla atvinnulíf
bæði innanlands og utan fyrir norsk
fyrirtæki sem hyggja á útflutning.
„Það sem fellur undir styrk
veitingar hjá stofnuninni þegar
kemur að landbúnaði eru ýmiss
konar fjárfestingar á sveitabæjum,
meðal annars uppbygging á útihús
um, kaup á húsnæði eða til viðbótar
landsvæðis. Forsendur láns og styrk
veitingar er að fjárfestingin skili sér
í meiri arðsemi og betri búrekstri.
Einnig ná styrkir til bænda sem hafa
hug á að bæta við reksturinn með
aukabúgrein á búum sínum. Á síð
asta ári voru tæplega 1.200 verkefni
af öllum stærðargráðum í landbún
aði styrkt fyrir rúmar 765 milljónir
norskra króna,“ útskýrir Sigríður.
Allt undir einum hatti
Innovasjon Norge er með starfs
stöðvar í öllum fylkjum Noregs
en stofnunin er ríkisrekin og sett
saman af ráðgjöf, lánastarfsemi og
styrkjakerfi.
„Eignarhaldið á Innovasjon
Norge er 51% iðnaðar og
sjávarútvegs ráðuneytið og 49%
fylkin. Stærsti hluti þess fjár
magns sem fylkin nota til efl
ingar atvinnulífs leggja þeir inn
hjá Fylkisskrifstofu Innovasjon
Norge. Það er hagræðing í að nýta
stofnunina og um leið er tryggt að
sams konar reglur og ferlar gildi um
umsóknir og styrkveitingar um land
allt. Allir viðskiptavinir Innovasjon
Norge, hvar sem er á landinu, geta
fengið sams konar ráðgjöf, styrki og
lán. Við sjáum að þarfir atvinnulífs
ins og fyrirtækjanna er oft saman
sett og þess vegna er mjög algengt
að veitt er bæði ráðgjöf og fjármagn
í formi láns og/eða styrks. Þetta er
sérstaklega í stærri rannsóknar og
þróunarverkefnum þar sem þörf er
á að gera langtímaplön þ.m.t. fjár
festingarplan. Með stórum verkefn
um erum við að tala um verkefni í
stærðargráðunni 50100 milljón
ir norskra króna, sem er yfirleitt
ekki meira en 50% af heildarverði
verkefnisins. Við erum með sam
starfsmenn úti um allt land og þeir
peningar sem fara í nýsköpun út til
fylkjanna koma frá okkur. Þetta er
gert til að hafa gagnsæi og sömu
reglur en einnig til þess að ekki sé
verið að styrkja sömu verkefni um
allt land og að fólki sé ekki mis
munað,“ útskýrir Sigríður og segir
jafnframt:
„Þekking á markaði og sam
keppni er mikilvæg við þróun og
nýsköpun alveg frá upphafi. Í því
sambandi er mikilvægt að hugsa
út fyrir fylkismörk og landamæri.
Við leggjum mikla áherslu á að
umsækjendur hafi góða þekkingu
á að varan eða þjónustan sem á að
þróa sé samkeppnishæf og skili sér
í aukinni arðsemi og samkeppn
ishæfni fyrirtækjanna. Við erum
upptekin af að í þróunarvinnunni
og þegar við styrkjum til dæmis stór
verkefniverkefni þá er mikilvægt að
fyrirtækin meti markaðsmöguleika
sína í alþjóðasamhengi. Fyrir stóra,
þunga styrki þarf markaðurinn að
ná út fyrir landsteinana. Oft er þetta
samansett lán og styrkir en við
getum farið upp í verkefni sem er
styrkt og lánað fyrir allt að 70 millj
ónum norskra króna. Styrkurinn í
þessu er að hafa þetta allt undir
einum hatti. Þegar fyrirtækin þurfa
að hugsa um langtímafjárfestingar
þá er blandað saman styrkjum og
lánum til að klára hlutina. Ef maður
ætlar að koma á framfæri þekkingu
í rannsóknar og þróunarverkefnum
verður að vera möguleiki á að fá
fjármagn til að geta gert langtíma
áætlanir.“
Styrkir og lán í landbúnaði
Starfsfólk Innovasjon Norge
eiga í góðu samstarfi við norsku
Ráðgjafar miðstöðina í öllum fylk
j um landsins því ráðunautar innan
þeirra vébanda eru mikilvægir til að
miðla fagþekkingu bæði til bóndans
og til Innovasjon Norge.
„Við styrkjum mikið
í sjávar útvegi en þegar
kemur að land búnaði,
leggur ríkið til fjár
magn í gegnum árlega
búvöru samninga, til
að styrkja nýsköpun
og þróun í landbúnaði.
Það er síðan Innovasjon
Norge í gegnum sínar
skrifstofur úti í fylkj
unum sem deila út
styrkjunum. „Styrkirnir
sem standa til boða í
landbúnaði geta bæði verið vegna
fjárfestinga en líka vegna til dæmis
framleiðslu á svæðisbundnum mat
vælum, ferðaþjónustu á búum, endur
hæfingu á búum fyrir fatlaða og svo
framvegis. Einnig eru veittir styrkir
til kynslóðaskipta. Flestöll minni
verkefnin eru styrkt og þarf ekki
að sækja um lán fyrir. Nú erum við
til dæmis í þeirri stöðu að leiðbeina
minkabændum sem verða að hætta í
þeim búskap um hvað þeir geta byrj
að með í staðinn. Þar að auki hafa
aðilar í landbúnaði möguleika á að
sækja um annað fyrir utan þá peninga
sem eyrnamerktir eru í búvörusamn
ingum. Þá er bæði hægt að sækja
um styrki og lán í tengslum við fjár
festingar sem er mest þegar verið er
að byggja upp nýjar virðiskeðjur í
tengslum við framleiðslu eða ræktun
Það snýr þá jafnan að samstarfi milli
iðnaðar og frumframleiðslu og til
dæmis fullnýtingu á aukaafurðum.“
/ehg
Sigríður Þormóðsdóttir er yfirmaður nýsköpunar í lífhagkerfi hjá norsku
Nýsköpunarmiðstöðinni Innovasjon Norge en undir það heyrir landbúnaður,
sjávarútvegur og skógrækt. Í ár er met í fjölda umsókna til stofnunarinnar.
Mynd / Astrid Waller
Fjós úr timbri, en í ár hafa þeir bændur sem byggja ný fjós eða byggja við
fjós úr timbri fengið aukastyrk. Það hefur verið vinsælt og hafa 140 verkefni
verið styrkt. Það að byggja úr timbri er eitt af fjölmörgum aðgerðum til
úrbóta í umhverfis- og loftslagsmálum og með því leggur landbúnaðurinn
sitt af mörkum í þeim efnum ásamt því að margir vilja meina að velferð dýra
í slíkum fjósum sé meiri. Mynd / Fjøssystemer AS
Nýsköpun í norskri ostagerð, „Gangstad gård-
systeri“. Mynd / Erik Bye
Noregur:
Merkjavörur verslanakeðja
eiga undir högg að sækja
Eftir að stjórnmálamaðurinn
Dag Fossen kom með tillögu inn
á norska þingið að banna stóru
verslanakeðjunum að nota eigin
merkjavörur á búvörur hafa
línurnar svo sannarlega logað
á ýmsum vígstöðvum í Noregi.
Merkjavörur eins og Folkets,
First Price, Eldorado, Xtra og
Prima eiga nú undir högg að
sækja en allar eiga þær það
sameiginlegt að vera í eigu mis
munandi verslanakeðja.
Markaðshlutfall þessara merkja
vara eykst ár frá ári og sem dæmi
hefur sala á kjötvörum og eggjum í
þessum flokkum aukist frá 23 pró
sentum árið 2010 í 44 prósent árið
2020. Þegar kemur að hakki og farsi
hefur salan á sama tímabili farið úr
36 prósentum í 81 prósent.
Óska eftir meira eftirliti
Nú hefur stjórnmálamaður
inn og fyrrum kúabóndinn Dag
Fossen gengið fram og óskað
eftir að bann verði sett á slíkar
merkjavörur þegar aðilar hafa
náð ákveðinni stærð. Þetta verði
gert til að minnka það vald sem
verslanakeðjurnar hafa á fram
leiðendum og neyt endum. Einnig
til að skapa meiri fjölbreytni
á markaði og hleypa að fleiri
spennandi vörum. Staðan eins og
hún er í dag gerir það að verkum
að bændur fá minna í vasann og
neytendur greiða hærri kostnað
fyrir vörurnar.
Norsku Bændasamtökin hafa
einnig látið í sér heyra vegna máls
ins og hafa óskað eftir eftirliti á
innkaupa og söluverði á merkja
vörum verslanakeðjanna. Þetta
snýst um samkeppni á norskum
dagvörumarkaði, valdatafl í virð
iskeðjunni, baráttu um hillupláss
í verslunum og ekki síst um pen
inga. Óskað er eftir útskýringum
á hlutverki og stöðu birgja en sex
prósent af birgjum í landinu standa
fyrir helming af heildarveltunni. Í
Svíþjóð eru mun fleiri birgjar sem
deila með sér kökunni.
/ehg-Bondebladet
Niðurstaða rannsóknarinnar var að nánast engin þekkt merki öldrunar
eins og hún lýsir sér í heila manna með próteinútfellingum og æðakölkun
fundust í heila hákarlsins.
Somniosus microcephalus:
Heili 245 ára hákarls sýnir
engin merki öldrunar
Nýverið birtist vísindagrein um
rannsóknir á áhrifum öldrunar
á heila un það bil 245 ára gam
als hákarls í samanburði við
sama ferli í heila manna. Hákarl
þessi veiddist í haustralli 2017
djúpt vestur af landinu. Klara
Jakobsdóttir, sérfræðingur á botn
sjávarsviði, er einn af höfundum
greinarinnar.
Öldrun hefur ýmis áhrif á frumur
í heila manna sem eru vel þekktar.
Í frétt á vef Hafrannsóknastofnunar
segir að rannsóknir hafi hins vegar
bent til að hákarl (Somniosus
microcephalus) geti náð óvenjulega
háum aldri, eða hæstum aldri allra
hryggdýra, jafnvel allt að 4–500
árum. Því var markmið rannsóknar
innar að athuga hvort greina mætti
svipuð áhrif öldrunar í heila hákarla
eins og þekkt eru í heilum manna
og rotta.
Engin merki öldrunar
Niðurstaða rannsóknarinnar var að
nánast engin þekkt merki öldrunar
eins og hún lýsir sér í heila manna
með próteinútfellingum og æða
kölkun fundust í heila hákarlsins.
Jafnframt sáust engin merki um
taugahrörnun. Þetta bendir til að
heili hryggdýra geti haldist lítið
eða óbreyttur í mjög langan tíma
líkt og sýnt hefur verið fram á í há
öldruðum einstaklingum, 100 ára
eða eldri.
Umhverfi og atferli
Höfundar greinarinnar leiða líkum
að því að umhverfi og atferli séu
ástæður þess hversu lengi hákarl
lifir án sýnilegra áhrifa öldrunar á
heila. Hákarl er talinn hægsyndur
og heldur að mestu til í stöðugu en
köldu umhverfi á tiltölulega miklu
dýpi í sjó sem er um 4 °C heitur.
Þetta veldur því að líklega eru
efnaskipti hæg og vísbendingar eru
um að blóðþrýstingur hákarls sé mun
lægri en hjá öðrum hákarlategund
um. Lykillinn að háum aldri virðist
því vera að hreyfa sig lítið og halda
sig í kulda og myrkri, að minnsta
kosti fyrir hákarl. /VH