Bændablaðið - 17.12.2020, Page 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2020 41
ATVINNUHÚSNÆÐI - JÖRÐ
Vantar fyrir viðskiptavin íbúð eða iðnaðarhúsnæði helst
á höfuðborgarsvæðinu á verðbilinu 40-60 miljónir í
skiptum fyrir góða jörð á Norðurlandi.
Jörðin er staðsett 200 km frá höfuðborgarsvæðinu. Á
jörðinni eru góð hús, íbúðarhús 187 fm steinhús, hesthús
384 fm, vélargeymsla 131 fm. Komið er að viðhaldi á
húsum. Miklir möguleikar á svæðinu. Ræktað land og
beitarland innan girðingar eru 72 hektarar, 1460 hektarar
í óskiptu landi. Mjög gott beitiland fyrir hross og kindur,
rjúpnaveiði og hlutdeild í á. Ljósleiðari kominn inn í hús
og 3 fasa rafmagn.
Aukið úrval - nú fást 18m og 20m breið
bogahús hjá okkur.
BOGAHÚS
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
571-3535
VEFFANG
www .bkhonnun . is
12m - 15m - 18m & 20m breið
Nethyl 2a • 110 Reykjavík • Sími: 577 1000 • info@khvinnufot.is • www.khvinnufot.is
Frábærir sokkar sem eru
tilvalin jólagjöf. Sokkar
“Bluegard” með einstakt
slitþol. Slitsterkir
“Workwear” sokkar 3 pör
í pakka. Hlýjir og góðir
sokkar úr merinó ull, 36%.
Gleðileg jól!
Verð 3.290 kr. Verð 1.600 kr. Verð 1.848 kr.
VANTAR ÞIG SEÐLA/KORTAVESKI?
Sendum frítt!
Netverslun - www.drangey.is
Kr. 11.200
Kr. 8.900
Kr. 7.400
Kr. 5.900
-20%
-20%
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
DRIFSKÖFT
OG DRIFSKAFTAEFNI
Bændasamtök Íslands
óska bændum og
landsmönnum öllum
gleðilegra jóla.
Megi nýja árið verða
ykkur farsælt og
gjöfult.
Björn Rúriksson horfir yfir byggðirnar úr lofti í nýrri bók sinni:
„Flogið aftur í tímann“
BÆKUR&MENNING
Björn Rúriksson á Selfossi var
að gefa út bókina ,,Flogið aftur í
tímann“ en hún tekur til meðferðar
byggðir á höfuðborgarsvæðinu
og í öllu þéttbýli á Suður- og
Suðvesturlandi. Horft er yfir
byggðirnar úr lofti eins og þær
voru sumarið og haustið 2020.
Einnig er farið aftur í tímann
og allmörg svæði sýnd til
samanburðar eins og þau voru
fyrir 40-45 árum síðan. Bókin er á
íslensku og ensku og er 228 síður
í stóru broti.
„Það var eiginlega í þessum
heimsfaraldri sem hugmyndin
fæddist að þessari bók. Á
flugferðum mínum um landið
af ýmsum tilefnum í hálfa öld
byggðist upp ljósmyndasafn af
bæjum og borg, og myndir teknar
á öllum árstíðum. Ég hef kosið að
reyna að sýna þessar eldri myndir
í samhengi, sérstaklega þar sem
sami staður frá líku sjónarhorni er
borinn saman yfir langt árabil, og
líða oft 40-45 ár á milli. Til þess
að auka fjölbreytni bókarinnar
valdi ég að setja saman þrjá kafla
um náttúruna, og einnig til þess að
skilja að byggðirnar. Seinasti kafli
bókarinnar fjallar um mjög svo
áhugaverða þróun í búskap jöklanna
en þeir hafa dregist saman og
minnkað eins og flestir vita. Nokkrir
jöklar eru teknir til skoðunar, en þó
sérstaklega tveir, Sólheimajökull og
Breiðamerkurjökull með Jökullónið
framan við. Ég vona að menn njóti
þessa efnis og að það auki áhuga
á landinu okkar fagra,“ segir
Björn, sem gaf bókina út á 70 ára
afmælisdegi sínum, 12. nóvember
síðastliðinn. Bókin fæst í Bónus,
Nettó og Bókakaffinu á Selfossi og
N1 stöðvunum á Suðurlandi. Hún
kostar 6.900 kr.
Björn Rúriksson. Björn með nýju bókina sína, en hann hefur flogið um allt
Ísland síðustu 50 ár til að mynda byggðir og stórkostlega náttúru.
Mynd / Aðsend