Bændablaðið - 17.12.2020, Page 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2020 43
„Við höfum náð góðum árangri í
þessu verkefni og ávinningurinn
er mikill. Það má líta svo á að
hver og einn sem safnar olíu og
fitu á sínu heimili og skilar í réttan
farveg sé eigin olíuframleiðandi,“
segir Guðmundur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Vistorku
á Akureyri, en félagið hefur í
samvinnu við fleiri boðið íbúum
á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu
upp á Græna trekt til að auðvelda
söfnun á úrgangsolíu og fitu sem
til fellur á heimilum. Einn lítri af
olíu sem skilað er inn verður með
íblöndun metanols að einum lítra
af lífdísil.
Græna trektin hefur verið í boði
á Akureyri frá því síðla árs 2015.
Undanfarin ár hafa heimilin safnað
og skilað inn um 6 tonnum af
úrgangolíu og fitu á ári. Veitingahús
og mötuneyti skila um tífalt meira
magni, eða um 60 tonnum árlega,
þannig safnast 70 tonn af olíu og fitu
árlega í gegnum fitusöfnunarkerfið
sem Norðurorka, Orkey, Terra og
Akureyrarbær hafa byggt upp.
Guðmundur segir að markmið
með því að safna þessum vökva
saman sé margvíslegt. Komið sé í veg
fyrir að fitan fari út í fráveitukerfið
þar sem hún getur valdið tjóni, m.a.
stíflum, og farið illa með dælur og
annan búnað. Eins, og ekki síður, sé
búin til úr þessum úrgangi verðmæt
vara, en úrgangsolían og -fitan er
endurunnin hjá Orkey þar sem búin
er til lífdísill.
„Þetta er virkilega öflugt lofts-
lagsverkefni, það dregur úr sóun á
lífrænum úrgangi og hefur einnig
í för með sér minni innnflutning á
jarðefnaeldsneyti.“
Mikil magn fellur til í desember
Nú í desember fellur óvenjumikið
af þessu hráefni til þegar landsmenn
steikja ókjörin öll af laufabrauði,
soðnu brauði og kleinum til viðbótar
við allt hangikjötið og steikurnar
sem boðið er upp á.
„Það fellur mun meira til af
steikarolíu, tólg og fitu á heimilum
landsins en í öðrum mánuðum ársins
og ekki úr vegi að minna fólk á
mikilvægi þess að safna þessu saman
og skila inn fremur en skola niður í
vaskinn,“ segir Guðmundur. Öll fita,
sama hvaða nafni sem hún nefnist,
kemur þó við sögu söfnunarinnar,
þó matarolía sé mest áberandi,
smjör, útrunnið lýsi, hörð fita, t.d.
sú sem fellur til af lambasteikinni,
má gjarnan fljóta með.
Æ fleiri heimili norðan
heiða taka þátt
Hann segir að fólki á Eyja fjarðar-
svæðinu sem safni steikarolíu og
fitu hafi fjölgað jafnt og þétt frá því
verkefnið hófst. Hægt er að skila
ílátum með olíu og fitu við alla
grenndargáma á Akureyri utan eins
og mótttökukassi er einnig til staðar
í Hrísey. Þá má skila í flokkunar-
stöðina við Réttarhvamm. Græna
trektin er hugsuð til að skrúfa á
gosdrykkjarflöskur og auðvelda
fólki þannig söfnunina heima við,
en Guðmundur segir að í raun megi
skila olíunni og fitunni í hvaða íláti
sem er. Hann bendir á að því fleiri
lítrum sem fólk skilar inn því meiri
ábati. Framleiðsla á lífdísil aukist og
þurfi að sama skapi að flytja minna
inn af olíu sem öllum er til hagsbóta.
Græna trektin stendur íbúum á
Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu til
boða en Guðmundur segir áhuga fyrir
hendi að taka slíka söfnun einnig upp
á heimilum á höfuðborgarsvæðinu.
Veitingastaðir og mötuneyti skili
flest inn úrgangsolíu, Ikea t.d.
sem rekur einn stærsta veitingastað
á Íslandi safnar og skilar í réttan
farveg allri sinni úrgangsolíu sem
nemur mörgum tonnum á hverju ári.
Áskorun að ná til fleiri heimila
„Það falla til um það bil tveir lítrar
af úrgangsolíu og fitu af hverju
heimili árlega, þannig að við erum
að tala um gríðarlegt magn í heild
sem til fellur á landinu öllu,“ segir
hann. Magnið gæti á að giska verið
í kringum 300 þúsund lítrar til
eða frá á ári gróflega áætlað. „Það
væri verulegur ávinningur af því
að ná þessu inn til endurvinnslu
og framleiðslu á lífdísil sem síðan
nýtist sem orkugjafi fyrir fiskiskip
og stóra bíla svo dæmi séu tekin,“
segir Guðmundur. Samherji hefur
notað íblöndunarefnið á togara sína
og efnið nýtist einnig við framleiðslu
á malbiki. /MÞÞ
Flottar
tækjavélar
á hvert bú.
KUBOTA M5111: Vel heppnaðar og vinsælar vélar frá KUBOTA
Eigum fyrirliggjandi hinar sívinsælu KUBOTA M5111 dráttarvélar til afgreiðslu strax.
Snarpar 113 ha. vélar, rafstýrt beisli,
kúplingsfrír vendigír og útskjótanlegur krókur.
Rúmgott ökumannshús, loftpúðafjaðrandi
ökumannssæti, farþegasæti og loftkæling í húsi.
Einstök sparneytni og lipurð í akstri. Flotmikil dekk,
420/65R24 að framan og 540/65R34 að aftan.
Samlit STOLL ámoksturstæki með dempara, 3ja
sviði og 220 cm skóflu.
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Baldursnes 8
Sími 568-1555
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Ísfell ehf, Óseyrarbraut 28
220 Hafnarfjörður, Sími 5200 500
www.isfell.is, isfell@isfell.is
Höfum á lager mikið úrval af alskyns vinnufatnaði, hífi- og festingabúnaði, krönum og talíum, snjókeðjum,
pökkunarlausnum og fallvarnarbúnaði. Í vörulistanum á www.isfell.is er að
finna ítarlegar upplýsingar um allar vörur.
Vinnufatnaður Hífilausnir Kranar og talíur Snjókeðjur Pökkunarlausnir Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna!
UMGENGNI&UMHVERFISMÁL
Góður árangur náðst í að safna úrgangsolíu og fitu hjá eyfirskum heimilum:
Um 70 tonnum af olíu er skilað og hún endurunnin
– Einn lítri af úrgangsolíu verður að einum lítra að lífdísil
Guðmundur Sigurðsson fram
kvæmda stjóri Vistorku á Akureyri.