Bændablaðið - 17.12.2020, Side 52
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202052
LÍF&STARF
Hvað segja bændur nú … um ullina?
Ullin hefur fylgt manninum frá
landnámstíð og má segja að á
fyrstu 1950 árunum hafi hún verið
aðalástæða þess að landinn lifði af.
Í upphafi voru tækin frumstæð
þ.e. halasnældur, grófir kambar
og vefstaður.
Innréttingar voru stofnaðar um
miðja 18. öldina af Skúla Magnússyni
fógeta en þá voru fluttir inn rokkar,
fínni kambar og vefstólar eins og við
þekkjum í dag. Í lok 19. aldar voru
spunaverksmiðjur reistar víða um
land og þá gátu bændur sent ullina
sína í vinnslu. Þetta var ekki síst gert
til að auðvelda konum spunann en í
verksmiðjunum var unninn lopi sem
sendur var til baka á heimilin þar
sem spunakonurnar spunnu hann í
band. Upp úr 1940 virðist sem þær
hafi ákveðið að sleppa að spinna
lopann og prjónuðu
beint úr honum eins
og við þekkjum í dag.
Vefnaðarverksmiðjur
tóku smátt og smátt
við vefnaði heima
við eftir að þær voru
stofnaðar í lok 19.
aldar og hér á landi
stóð rekstur þeirra í
um það bil eina öld
þegar þeim öllum var
lokað þegar nýir tímar
héldu innreið sína.
Eftir það hafa teppi,
værðarvoðir og annar
vefnaður ekki verið
unnin í verksmiðjum
á Íslandi. Enn eru til
prjónaverksmiðjur
sem sinna hluta af því
sem áður var ofið og
má þá nefna prjónaðar
voðir sem m.a. nýttar
eru í fatnað.
Í gegnum öldudali
Ullin hefur farið í gegnum öldudali
og má segja að viðhorf til hennar
hafi verið mjög neikvætt í byrjun
21. aldarinnar og má það m. a. rekja
til þess að um miðja síðustu öld
komu gerviefnin fram. Gerviefnin
þóttu miklu betri, litríkari, entust
og þoldu þvotta betur en ullin.
En í dag á tímum sjálfbærni og
umhverfisverndar er farið að horfa
á alla hina fjölmörgu góðu eiginleika
ullarinnar umfram gerviefnin.
Upp úr 1990 var mikil kreppa
í landbúnaði og þá leitaðu bændur
eftir því að auka tekjurnar á
heimilunum með ýmiss konar
handverki og smávinnslu úr heima
fengnu hráefni. Margt var reynt
og margar handverksverslanir
spruttu upp víða um land. Konur í
landbúnaði skelltu sér á námskeið
og lærðu að spinna, vinna band í
prjón og lita band. Skapaði þetta
mörgum aukatekjur og hjá sumu
handverksfólki skapar ullin tekjur
enn þann dag í dag. Stjórnvöld komu
að þessu með tilkomu styrkjakerfis
til að létta undir við stofnkostnað
ásamt leiðbeiningum í vöruþróun
og sölu.
Viðsnúningur þegar litla svarta
peysan með rennilásnum kom
Má þó segja að alvöru viðsnúningur
hafi orðið þegar litla svarta peysan
með rennilásnum kom fram árið
2007 (hönnun Védísar Jónsdóttur)
en þá þurftu allir að eignast slíka
flík og prjónarnir fóru á fulla ferð.
Þar á eftir fylgdi efnahagskreppan
og enn hellti prjónafólk sér út í
prjónaskapinn. Síðan hefur verið
prjónað nánast linnulaust enda hefur
túrisminn allt fram til byrjun ársins
2020 flætt yfir landið og flestir
ferðamenn þurfa auðvitað að eignast
a.m.k. eina íslenska lopapeysu.
Í byrjun aldarinnar ákváðu
Landssamtök sauðfjárbænda
í samstarfi við Ístex að breyta
skipulagi sem snéri að matsmönnum
og nýta það fjármagn sem fór í
ullarmatið, til að greiða bændum
fyrir ullarmat heima á bæjunum.
Þetta er sambærilegt við það sem
gert er erlendis. Ístex hefur frá
þeim tíma haldið kynningarfundi
og námskeið um allt land og gert
myndbönd um ullarmat https://
ullarmat.is/fraedslumyndbond/.
Markmið Textílmiðstöðvar
Íslands og Þekkingarseturs á
Blönduósi er að leggja áherslu á
hráefni okkar Íslendinga, íslensku
ullina og unnið er að því á öllum
vígstöðvum í stofnuninni að leggja
enn frekar áherslu á gæði hennar og
verðmæti.
Könnun á afstöðu til ullarinnar
Í gegnum tíðina hefur borið við
að bæði stjórnvöld, bændur sjálfir
og aðrir landsmenn haldi hinu
og þessu fram í sambandi við
viðhorf bænda til ullarinnar. Þá
er jafnan byrjað eitthvað á þessa
leið: Bændur segja … bændur
halda … bændum finnst ... og svo
framvegis. Textílmiðstöðin ákvað
að ekki væri hægt að festa hendi á
svona umtal án þess að gerð væri
könnun á málinu sem sýndi svart
á hvítu viðhorf bænda. Í samstarfi
við Félagsvísindastofnun Háskóla
Íslands var skoðanakönnun um
viðhorf bænda til ullarinnar
framkvæmd en þar á bæ var mikill
áhugi á verkefninu.
Spurningalisti fór á öll
sauðfjárbýli sem skráð eru hjá
Landssamtökum sauðfjárbænda,
eða 1.080 býli. Alls bárust svör frá
572 býlum sem er 53% sauðfjárbúa.
Ullarverð Ístex til bænda kemur
oftast til tals þegar ullina ber á
góma hjá bændum. Spurt var um
afstöðu til verðs Ístex á 1. flokk af
hvítri ull og kom óánægja svarenda
þar í ljós. Aftur á móti var ekki
kannað hver afstaða svarenda væri
til beingreiðslna vegna 1. flokks
hvítu ullarinnar. Mætti skoða
það nánar í samhengi við heildar
ullarverð til bænda og miðað
við heimsmarkaðsverð á ull sem
reyndar hefur fallið mjög á síðustu
vikum skv. Bændablaðinu 18. tbl.
24. september 2020.
Ánægjulegt er að flestir bændur
rýja að hausti en ullin er hreinust og
greiðust á þeim árstíma. Á Norður
og Austurlandi eru 80% búa sem
rýja að hausti og aftur snoð í feb/
mars. Á Vestfjörðum, Suður og
Vesturlandi er það gert á rúmlega
70% búa.
Mikill áhugi
Samkvæmt könnuninni er mikill
áhugi meðal bænda á að auka
þekkingu sína á meðferð ullar
við rúning og umhirðu hennar. Er
mikil ánægja með þá niðurstöðu. Í
framhaldi af birtingu skýrslunnar
stóð Félag ungra bænda fyrir vel
sóttu netnámskeiði í samstarfi við
Ístex, í flokkun á ull þ. 22. okt. sl.
Starfsfólk Ístex fór yfir nýtingu á
ullinni og hvernig hver flokkur var
nýttur, ullarflokkunina, nýjungar
hjá fyrirtækinu í að skapa verðmæti
úr verðminni ull og einnig hönnun
á litum og flíkum til prjóna. Þegar
flest var, voru 96 á línunni. Fagna
ber þessu framtaki ungra bænda
og er þetta beinn ávinningur
af könnuninni. Í framhaldinu
var haldið annað sambærilegt
námskeið þ. 19. nóv. sl. þar sem
voru um 70 þátttakendur. Vonandi
er þessi aðferð við að miðla
þekkingu um flokkun ullar komin
til að vera.
Góðir rúningsmenn
skipta sköpum
Góð meðferð á ull eykur verðmæti
hennar hvort sem hún fer í iðnað
eða handvinnslu. Umhirða
ullarinnar hefst um leið og búið
er að rýja kindina því þá er lagður
grunnur fyrir ullina að ári. Góðir
rúningsmenn skipta sköpum, sá
sem hefur góð tök á verkefninu og
passar upp á að tvíklippur komi
ekki við rúninginn (það er þegar
klippt er tvisvar í sama hárið).
Tvíklippur detta niður í reyfið,
skemma það og ef mikið er um
þær er reyfið óhæft til vinnslu því
það myndast hnökrar í bandinu við
spunann. Kom fram í fyrirspurn
til Ístex á fundi ungra bænda að
Á FAGLEGUM NÓTUM
Jóhanna E. Pálmadóttir,
verkefna stjóri Textílmiðstöðvar
Íslands, að meta ull.
Góðir rúningsmenn skipta sköpum, sá sem hefur góð tök á verkefninu og
passar upp á að tvíklippur komi ekki við rúninginn. Hér er Bjarki Benediktsson
yfirrúningsmaður að störfum.
Hvítar, fallegar og tilbúnar í rúning.
Frk. Snjóhvít.
Ullina þarf að geyma á þurrum
stað og þar sem ekki komast
utanaðkomandi óhreinindi í ullina
eins og heymoð og slíkt.