Bændablaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 60
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202060
GRÓÐUR&GARÐALÍF
Gengið um göturnar á blómgunartíma gullregns
Víða um land var 2020 alveg
stórkostlegt ár fyrir hin ýmsu
blómstrandi tré og runna og var
gullregn engin undantekning.
Blómgun þess er sérlega falleg og
stendur oft nokkuð lengi.
Í gömlum görðum mátti
sjá stór og falleg tré svo þakin
gulum hangandi blómklösum að
jaðraði við nágrannaerjum vegna
ofbirtu. Góðviðris göngutúrar á
þessu tímabili sýndu manni líka
hversu algengt gullregn er orðið í
görðum. Varla hafði maður sleppt
augnsambandi við eitt slíkt þegar
næsta tók við. Í þeim tilgangi að
skoða blómstrandi gullregn sem
víðast, ferðaðist ég um landið vítt
og breitt. Allt frá Hafnarfirði til
Mosfellsbæjar. Alls staðar var það
sama sagan: glæsilega blómstrandi
gullregn allt um kring.
Refill, trefill eða gullregnsgrefill
Síðsumars, þegar blómgun var
löngu lokið, tóku ýmsir eftir því
að fallega græna laufið fór að sýna
ummerki sem þeir töldu afleiðingar
af vindbarningi eða þurrki. Aðrir
óttuðust sýkingu. Ekki var það þó
raunin í þessu tilfelli.
Phytomyza cytisi nefnist fluga
(tvívængja/diptera) sem talin er
líklegasti skaðvaldurinn. Flugur
af þessari gerð hafa stundum
verið nefndar gangaflugur eða
grefilflugur og köllum við þessa
því gullregnsgrefil hér í textanum.
Þegar flugurnar skríða úr eggi,
búa þær smám saman til göng inni
í plöntuvefnum eftir því sem þær
nærast og færa sig um. Algengt er
að göngin byrji að myndast nálægt...
tjah... á ég að segja laufstöngli
eða við laufjaðar? Nei, algengt er
að þau byrji að myndast nálægt
verslunarmannahelgi eða svo og geta
oft orðið áberandi skömmu síðar.
Erfitt er að segja hvaðan eða
hvenær hún kom og þarf fólk mér
mun fróðara að leggja til atlögu við
þá spurningu. Hún finnst þó víða í
nágrannalöndum, svo ástæðulaust
er að leita langt yfir skammt. Eins
er ljóst að amk á SV-horninu hefur
hún verið í þó nokkru magni síðustu
árin, þó mismikið hafi verið eftir
henni tekið. Sterkar líkur er því á
að hún hafi verið hér um eitthvert
skeið.
Erlendis byrjar hún fyrri umferð
strax um miðjan júní og nær þá
seinni umferð að hausti. Göngin eru
þó einnota og því takmörkuð umferð
um hver göng. Hér á landi er ekki
ástæða til að óttast meira en eina
kynslóð hvert sumar, að svo stöddu.
Mikilvægt er að taka fram að ekki
er komin staðfest greining á þessa
tegund sem umræddan orsakavald.
Flestir sem kannað hafa málið horfa
þó til hennar sem líklegasta kandídat
á þessari stundu og reynist önnur
bakvið göngin, er það vafalítið
einhver náskyld henni. Það sem hér
kemur fram er því óhætt að fullyrða
um fluguna og hegðun þess.
Þarf eina umferð eða tvær?
Það kemur sér vel að lirfurnar
hefja líf sitt svona seint að sumri,
svo ljóstillífun ársins minnkar ekki
endilega of mikið. Lirfur hér á
landi sem éta lauf að innan, valda
nefnilega oftast ekki eins miklum
skaða og margir halda. Allt sem
er grænt af laufinu á meðan lirfan
athafnar sig, er allajafna fullt af
grænukornum og ljóstillífar jafn
mikið og áður. Smám saman minnkar
það auðvitað eftir því sem meira er
étið, en til einföldunar má segja að
það stoppar þó ekki meðan grænn
litur er til staðar. Liturinn þarf þó
að vera af náttúrunnar hendi og ekki
gildir það sama sé laufið málað.
Magnið skiptir auðvitað einnig
máli, líkt og með t.d. birkikembuna.
Hver og ein lirfa skiptir engu, en
þegar annað hvert lauf er umsetið
strax snemma sumars, breytist
myndin að sjálfsögðu. Enn verra er
þegar heilu blöðin eru rifin af, ýmist
af okkur mannfólkinu eða öðrum
dýrum.
Hentar kannski
haglabyssan best?
Við notum sjaldnast veiðistöng til
að veiða mýs, eða haglabyssuna á
hlýrann. Hver bráð kallar á sína eigin
aðferð og úrvinnslu. Mikilvægt er
t.d. hvaða aðferð er notuð á hlýrann
ef tilgangurinn er svo að nýta hann
til að búa til hlýrabol.
Stundum er skynsamlegt að
fjarlægja laufið samhliða lirfunni
sem er á því. Annað gildir þó um
birkiþélu, birkikembu og þennan
gullregnsgrefil, svo dæmi séu tekin.
Lirfurnar halda sig við það lauf sem
þeim var verpt á eða í og alls ekki
sjálfgefið að þær muni klára allt
laufið innanvert. Jafnvel ef svo er, þá
tekur það nokkurn tíma og á meðan
nýtir plantan öll þau grænukorn sem
enn eru til staðar. Þegar tré eru úðuð
með eitri, er oftast verið að nota eitur
með snertivirkni. Meindýrið þarf því
að snerta eða innbyrða eitrið. Slíkt
eitur hefur sjaldan nokkur áhrif innan
veggja laufblaðs og eru þessar lirfur
því vel varðar. Erfitt er að finna
hinn hárrétta tímapunkt til að úða
gegn flugunum sem verpa, auk þess
sem sú aðgerð væri það mikið „út í
bláinn“ að efast mætti um skynsemi
hennar. Fæstir myndu skjóta á auðan
himin í von um að hæfa gæs sem
þeir sáu ekki.
Veldur vandamálum
í mannsaugum
Vandamálið er því oft að mestu
útlitslegt og bundið við mennsk
augu. Það er helst þegar plantan
er veik fyrir, eða að berjast við
aðra óværu sem stór hópur þessara
flugna (gullregnsgrefil og birkiþélu)
og fiðrilda (birkikembu) myndi
hafa teljanleg áhrif. Eins skiptir
plöntustærðin máli. Hlutfallslega
er skaðinn af hverri flugu mestur á
laufminnstu trjánum. Það gefur auga
leið að ungt tré með 30 lauf, sem
missir 15 lauf til hálfs undir göng
hefur misst allt að 25% af sínum
ljóstillífunar möguleikum, jafnvel
það sem eftir lifir fram að lauffalli.
Sami lauffjöldi á stóru tré með 3000
laufum skerðir ljóstillífun einungis
um 0,25% sem telur seint mikið í
stóra samhenginu. Því til viðbótar
er missirinn mismikilvægur, því stór
hluti laufþykknis er hið minnsta að
hluta í skugga og því ekki jafn mikla
orku að hafa úr hverju einasta laufi.
Til einföldunar er hér ekki tekið tillit
til nývaxtar laufs eftir að skaðinn er
að fullu kominn í ljós.
Samhengi er oftast milli skertrar
ljóstillífunar og versnandi útlits, því
hver einustu göng sem myndast eru
árás á okkar innbyggða fegurðarskyn.
Sjálfsmynd okkar hríðversnar
eftir því sem göngunum fjölgar og
skömmin vegna þess að bjóða fólki
upp á þessa hræðilegu sýn verður
óbærileg. Fjárhagslegt högg getur
líka verið ansi stórt, eftir því hversu
marga tíma þarf hjá sálfræðingi til
að jafna sig og hvort nauðsyn er
hreinlega að flytja í annað hverfi.
Svo bregðast skrauttré
sem önnur
Sjálfur geri ég akkurat ekkert við
þessu. Lít á þetta sem hvimleitt, en
hluta af náttúrunni og ekki nógu
alvarlegt til mótvægisaðgerða.
Ýmis rándýr í skordýrafánunni njóta
lirfumáltíðar og smáfuglar borða svo
bæði rándýr og lirfur.
Átta mig þó fyllilega á því að
fyrir mörgum er að sjálfsögðu vont
að skrauttré sé ekki garðaprýði allt
sumarið, en kannski er það líka
spurning um væntingastjórnun. Við
ætlumst oft til of mikils af okkur
sjálfum og eflaust eru væntingarnar
síst minni gagnvart plöntulífi
garðsins. En það gildir einu hvert
viðfangið er, of háar væntingar
skilja ekkert svigrúm eftir fyrir
eðlilegar sveiflur lífsins. Slíkt eru
bara fyrirfram ákveðin vonbrigði
sem bíða þess að raungerast.
Undanfarin sumur virðast margir
óvissir hvað sé að koma fyrir
gullregnið þeirra og vonandi get ég
með þessum fáu orðum uppfrætt
forvitna og róað einhverjar taugar.
Tímasetningin kann að virðast
óvenjuleg, en á sumrin hefur
maður engan tíma til að lesa sér til.
Til þess er veturinn. Vel má vera
að næsta ársrit Garðyrkjufélags
Íslands innihaldi nánari upplýsingar
um þessa óværu og fleiri til, en
ekki vil ég byggja upp væntingar
til vonbrigðis, svo best að segja
ekkert meir um það. Dr. Brynju
Hrafnkelsdóttur er sérstaklega
þakkaður yfirlesturinn.
Kristján Friðbertsson.
Gengið um göturnar á blómgunartíma gullregns.
Hér má skýrt sjá ummerkin sem um ræðir, göngin sem lirfan hefur grafið í
laufinu. Litlu punktarnir sem sjást stundum á laufinu ofanverðu, eru staðir
þar sem fullvaxin fluga hefur ýmist fengið sér smá bita, eða verpt eggi inn
í laufið. Hvoru tveggja kemur til greina.
Hér sést að eldri göng, eða eldri hlut-
ar af göngum þorna með tímanum
og verða brún. Þau nýrri eru enn
hálfgagnsæ. Svört strik og punktar
eru úrgangur lirfunnar, sem sýnir
okkur að hún er svo almennileg að
bera lífrænan áburð á tréð í gegnum
laufið innanvert, svo það skolist ekki
í burtu. Aldeilis hjálpleg lirfa, sem
sýnir samfélagsábyrgð í verki.
Hið minnsta 3 lirfur birkikembu sjást
hér dunda sér við að éta sama laufið
að innan. Glöggir taka skjótt eftir
því að birkikemban étur blaðið að
innan hringinn í kring um sig. Ólíkt
gullregnsgrefilnum sem innbyrðir
jafnóðum og hann hreyfir sig áfram
og myndar sínar hlykkjóttu línur
sem við köllum göng. Allur sá hluti
birkilaufsins sem enn er grænn, er í
fullu starfi við að skaffa birkinu syk-
ur hvenær sem færi gefst.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ALTERNATORAR í flestar
gerðir dráttarvéla