Bændablaðið - 17.12.2020, Side 63
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2020 63
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
í kverkina. Bakið er breitt og
lendin öflug, og samræmið er
hlutfallarétt og langvaxið. Fætur
eru þurrir en stundum með granna
liði og afturfætur eru nágengir.
Hófarnir eru efnisþykkir með
hvelfdan botn og prúðleiki er
í meðallagi. Afkvæmin eru
alhliða geng og fljót til. Töltið er
taktgott og mjúkt, brokkið rúmt
en vekurðin misjöfn. Stökkið
er ferðmikið og fetið takthreint
en stundum ójafnt. Afkvæmi
Vordísar eru reist og reiðhestleg í
sköpulagi, viljug, samstarfsfús og
fasmikil undir manni. Hún hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
4 sætið.
Myrkva frá Torfunesi:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
122 stig
Ræktandi:
Baldvin Kr. Baldvinsson
Eigendur: Ástþór
Jóhannesson og Torfunes ehf.
Faðir: Markús frá
Langholtsparti
Móðir: Mánadís frá Torfunesi
Umsögn um afkvæmi:
Myrkva frá Torfunesi gefur hross
í meðallagi að stærð. Höfuðið er
frítt með vel opin augu. Hálsinn er
hátt settur og mjúkur. Afkvæmin
eru hlutfallarétt og jafnbola. Fætur
hafa öflugar sinar, eru þurrir og
prúðir, en geta verið nágengir að
aftan. Hófar hafa hvelfdan botn
og prúðleiki er yfir meðallag.
Afkvæmin eru ýmist alhliðageng
eða klárhross með tölti. Töltið er
taktgott með góðu skrefi. Brokkið
er taktgott og skrefmikið, stökkið
er ferðmikið og teygjugott og
fetið taktgott. Myrkva frá
Torfunesi gefur viljug og þjál
hross sem fara vel í reið með
góðum höfuðburði og fótaburði.
Hún hlýtur heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi og 5 sætið.
Karitas frá Kommu:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
122 stig
Ræktandi: Vilberg Jónsson
Eigandi: Takthestar ehf
Faðir: Nagli frá Þúfu í
Landeyjum
Móðir: Kjarnorka frá
Kommu
Umsögn um afkvæmi:
Afkvæmi Karitasar eru stór hross.
Höfuðið er með vel borin eyru en
fremur gróft. Hálsinn er reistur,
mjúkur og hátt settur við háar
herðar. Bak og lend er úrvalsgott;
bakið breitt og vöðvafyllt með
góðri baklínu og lendin öflug.
Þau eru hlutfallarétt og fótahá
með öflugar sinar á fótum sem
eru útskeifir að framan. Hófar eru
efnisþykkir og vel lagaðir með
hvelfdum hófbotn, prúðleikinn er
misjafn. Öll afkvæmi Karitasar
eru klárhross með tölti. Töltið
er takthreint og skrefmikið með
miklum fótaburði og brokkið er
takthreint, skrefmikið og svifmikið
með miklum fótaburði. Stökkið
er takthreint og lyftingargott og
hæga stökkið er afar gott. Fetið
er takthreint en fremur skrefstutt.
Afkvæmi Karitasar eru stór og
verkleg með úrvals yfirlínu. Þau
eru skrefmikil og hágeng með
þjálan vilja, reist og fasmikil undir
manni. Hún hlýtur heiðursverðlaun
fyrir afkvæmi og 6 sætið.
Storð frá Stuðlum:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
122 stig
Ræktendur: Páll Stefánsson
og Edda Björk Ólafsdóttir
Eigendur:
Karl Áki Sigurðsson og
Ingólfur Jónsson
Faðir: Víðir frá Prestsbakka -
Móðir: Þerna frá Arnarhóli
Umsögn um afkvæmi:
Storð frá Stuðlum gefur stór
hross. Höfuðið er skarpt og þurrt
með vel opin augu og hálsinn er
vel lagaður við háar herðar og
skásetta bóga. Þau eru með góða
baklínu og afar samræmisgóð;
fótahá, léttbyggð og framhá. Fætur
eru fremur grannir en þokkalega
réttir, hófarnir vel lagaðir með
hvelfdan botn og prúðleiki á fax
og tagl er lítill. Afkvæmi Storðar
eru öll alhliða hross. Töltið er
takthreint, rúmt og skrefmikið,
brokkið taktreint og skrefmikið
og skeiðið er skrefmikið. Stökkið
er jafnvægisgott og skrefmikið en
mætti vera svifmeira á ferðinni og
fetið er skrefmikið. Storð gefur afar
stór, fótahá og léttbyggð hross sem
eru vakandi, þjál og léttstíg í reið
og hlýtur hún heiðursverðlaun
fyrir afkvæmi. Hún hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
7 sætið.
Örk frá Stóra-Hofi:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
122 stig
Ræktandi og eigandi:
Bæring Sigurbjörnsson
Faðir: Hrímbakur frá
Hólshúsum
Móðir: Hnota frá Stóra-Hofi
Umsögn um afkvæmi:
Örk frá Stóra-Hofi gefur hross í
rúmu meðallagi að stærð. Fríðleiki
á höfuð er yfir meðallagi, hálsinn
er reistur og hátt settur. Yfirlína í
baki er alla jafna góð og bak og
lend vöðvafyllt. Afkvæmin eru
fótahá og hlutfallagóð. Fætur
hafa öflugar sinar og góð sinaskil.
Hófar eru efnisþykkir og prúðleiki
í meðallagi. Afkvæmin eru ýmist
alhliðageng eða klárhross með
tölti. Töltið er taktgott með góðu
skrefi og lyftu og hæga töltið
mjög gott. Brokkið er taktgott og
skrefmikið. Stökkið er svifmikið,
takthreint og teygjugott og fetið
er skrefmikið. Örk frá Stóra-Hofi
gefur þjál og viljug hross sem
fara mjög vel í reið með góðum
höfuðburði og reisingu. Hún hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
8 sætið.
Þruma frá Hólshúsum:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
121 stig
Ræktendur: Þórður
Elíasson - Eigendur: Helgi
Jón Harðarson, Erlingur
Erlingsson, Hannes
Sigurjónsson og Inga
Christina Campos
Faðir: Þorri frá Þúfu í
Landeyjum - Móðir: Blika frá
Hólshúsum
Umsögn um afkvæmi:
Þruma frá Hólshúsum gefur stór
hross. Höfuð er fínlegt og frítt
með vel opin augu, hálsinn er hátt
settur við háar herðar og bakið er
vöðvafyllt en yfirlínan er misgóð.
Samræmið er hlutfallagott og
framhátt. Fætur eru réttir, þurrir
en nokkuð grannir. Hófar eru
efnismiklir með hvelfdan botn
og prúðleiki er jafnan góður.
Afkvæmin eru að uppistöðu
klárhross með mjúku, skrefmiklu
og hágengu úrvalstölti og afar góðu
hægu tölti, brokkið er lyftingargott
og stökkið er hátt. Fetið getur
verið ójafnt og skrefstutt. Þruma
frá Hólshúsum gefur fagursköpuð
framhá hross sem eru viljug og
þjál og fara afar vel í reið með
miklum fótaburði. Hún hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
9 sætið.
Hending frá Úlfsstöðum:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
120 stig
Ræktandi og eigandi: Helgi
Jón Harðarson
Faðir: Jarl frá Búðardal -
Móðir: Harka frá Úlfsstöðum
Umsögn um afkvæmi:
Hending frá Úlfsstöðum gefur
hross í rúmu meðallagi að stærð.
Höfuðið er vel gert, hálsinn
er reistur, og vel settur við
háar herðar. Bakið er breitt og
samræmið einkennist af fótahæð
og léttleika. Fætur eru þurrir með
öflugar sinar og nokkuð réttir að
framan en nágengir bæði að framan
og aftan. Hófar eru efnisþykkir
með hvelfdan botn en prúðleika
er ábótavant. Afkvæmin eru flest
klárhross en ef vekurð er til staðar
er hún góð. Töltið er úrvalsgott
með miklum fótaburði, brokkið
er takthreint og lyftingargott.
Stökkið er takthreint og hátt en
fetgæðin fremur slök. Hending
frá Úlfsstöðum gefur ásækin og
fremur þjál hross sem fara afar
vel í reið með miklum fótaburði.
Hún hlýtur heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi og 10 sætið.
Vaka frá Hellubæ:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
120 stig
Ræktandi og eigandi:
Gíslína Jensdóttir
Faðir: Feykir frá
Hafsteinsstöðum
Móðir: Gola frá Hellubæ
Umsögn um afkvæmi:
Vaka frá Hellubæ gefur hross í
rúmu meðallagi að stærð. Fríðleiki
á höfuð er undir meðallagi, hálsinn
er reistur við háar herðar. Bakið er
breitt en yfirlína í baki er misjöfn.
Samræmið einkennist af fótahæð
en miðlengdar gætir. Fætur hafa
öflugar sinar, eru útskeifir að
framan og aftan og nágengir að
aftan. Hófar eru efnismiklir með
hvelfdan botn en prúðleiki er
fremur slakur. Afkvæmin eru að
uppistöðu klárhross með tölti. Þau
eru hágeng og skrefmikil, með
úrvalsgott hægt og greitt stökk.
Vaka frá Hellubæ gefur þjál og
ásækin hross sem fara vel í reið
með miklum fótaburði. Hún hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
11 sætið.
Gerða frá Gerðum
Kynbótamat aðaleinkunnar,
120 stig
Ræktandi:
Sigrún Daníelsdóttir -
Eigendur: Mara Daniella
Staubli og Lisa Staubli
Faðir: Baldur frá Bakka -
Móðir: Litbrá frá Hömluholti
Umsögn um afkvæmi:
Gerða frá Gerðum gefur smá
hross. Fríðleiki á höfuð er misjafn,
hálsinn er reistur og frekar hátt
settur en getur verið djúpur.
Bakið er breitt og lendin öflug.
Afkvæmin eru léttbyggð, fætur
eru þurrir, ekki öflugir en nokkuð
réttir. Hófar eru undir meðallagi en
þó með hvelfdan botn, prúðleiki
er í meðallagi. Afkvæmin eru
jafnvíg alhliðahross. Töltið er
takthreint og lyftingargott og
brokkið skrefmikið. Afkvæmin eru
vel vökur með góða skrefalengd.
Greiða stökkið er teygjugott
og fetið er taktgott. Gerða frá
Gerðum gefur þjál og viljug hross
með góðum fótaburði. Hún hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
12 sætið.
Gná frá Ytri-Skógum:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
119 stig
Ræktandi og eigandi:
Ingimundur Vilhjálmsson
Faðir: Orri frá Þúfu í
Landeyjum
Móðir: Hrefna frá Ytri-
Skógum
Umsögn um afkvæmi:
Gná frá Ytri-Skógum gefur hross í
rúmu meðallagi að stærð. Fríðleiki
á höfuð er í meðallagi, hálsinn er
mjúkur með klipna kverk við háar
herðar en vantar stundum fínleika.
Yfirlína í baki er nokkuð góð en
bakið getur verið mjótt og lendin
gróf. Samræmið er hlutfallsrétt,
fætur eru með öflugar sinar en
nágengir að framan og aftan og
útskeifir að framan. Hófar eru
efnisþykkir með hvelfdan botn
og prúðleiki er meðalgóður.
Afkvæmin eru að uppistöðu
jafnvíg alhliðahross. Töltið er rúmt,
taktgott og skrefmikið og brokkið
er rúmt og taktgott. Stökkið er
ferðmikið en vantar stundum betri
líkamsbeitingu og fetið taktgott
en getur verið skrefstutt. Gná frá
Ytri-Skógum gefur þjál og viljug
hross sem fara vel í reið með
góðri reisingu og fasi. Hún hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
13 sætið.
Dúsa frá Húsavík:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
119 stig
Ræktandi og eigandi:
Vignir Sigurólason
Faðir: Ypsilon frá Holtsmúla 1
Móðir: Birna frá Húsavík
Umsögn um afkvæmi:
Dúsa frá Húsavík gefur hross í
rúmu meðallagi að stærð. Fríðleiki
á höfuð er í meðallagi, hálsinn er
mjúkur með háar herðar. Yfirlína
í baki er góð og bak breitt og
vöðvafyllt. Samræmið einkennist
af fótahæð og sívölum bol. Fætur
eru þurrir, prúðir með góð sinaskil,
útskeifir að framan en réttir að
aftan. Hófar eru efnismiklir og vel
formaðir og prúðleiki úrvalsgóður.
Afkvæmin eru að uppistöðu jafnvíg
alhliðahross. Töltið er takthreint
með góðri lyftu, brokkið skrefmikið
og taktgott og skeiðgæðin góð.
Stökkið er hátt og svifmikið og
fetið er taktgott, skrefmikið og
rösklegt. Dúsa frá Húsavík gefur
hross sem fara vel í reið með
góðum fótaburði og hafa þjálan
vilja. Hún hlýtur heiðursverðlaun
fyrir afkvæmi og 14 sætið.
Lady frá Neðra-Seli :
Kynbótamat aðaleinkunnar,
119 stig
Ræktandi:
Hilmar Sæmundsson
Eigandi: Hilmar Sæmundsson
og Jóhanna Einarsdóttir
Faðir: Ófeigur frá Flugumýri
Móðir: Lukka frá Kvistum
Umsögn um afkvæmi:
Lady frá Neðra-Seli gefur hross í
rúmu meðallagi að stærð. Fríðleiki
á höfuð er yfir meðallagi, hálsinn
er hátt settur við háar herðar með
klipna kverk. Yfirlína í baki er
nokkuð góð en lendin getur verið
gróf. Fótahæð og léttleiki einkennir
samræmið, fætur eru réttir með
mikil sinaskil. Hófar hafa hvelfdan
botn en prúðleiki er fremur slakur.
Afkvæmin eru alhliðageng.
Töltið er taktgott, skrefmikið
og lyftingargott. Brokkið er
skrefmikið en getur skort ferð,
skeiðið og stökkið ferðmikið og
takthreint en fetið er í meðallagi.
Lady frá Neðra-Seli gefur viljug
og þjál hross sem fara vel í reið.
Hún hlýtur heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi og 15 sætið.
Hilda frá Bjarnarhöfn:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
119 stig
Ræktandi: Hildibrandur
Bjarnason - Eigandi: Anna
Dóra Markúsdóttir
Faðir: Forseti frá Vorsabæ -
Móðir: Lukka frá Kvistum
– Framhald á næstu síðu
Þjóð frá Skagaströnd er með 127 stig í aðaleinkunn kynbótamats.
Kynbótamat
Röð Númer Nafn Uppruni Stig
1 IS2003201166 Þóra Prestsbær 136
2 IS2000236511 Happadís Stangarholt 127
3 IS2002256955 Þjóð Skagaströnd 127
4 IS2005284976 Vordís Hvolsvelli 126
5 IS2001266211 Myrkva Torfunesi 122
6 IS2003265892 Karitas Kommu 122
7 IS2006287105 Storð Stuðlar 122
8 IS2001286003 Örk Stóra-Hof 122
9 IS1999287759 Þruma Hólshús 121
10 IS1997258874 Hending Úlfsstaðir 120
11 IS2000235940 Vaka Hellubær 120
12 IS1995284600 Gerða Gerðar 120
13 IS1998284011 Gná Ytri-Skógar 119
14 IS2000266019 Dúsa Húsavík 119
15 IS1999286988 Lady Neðra-Sel 119
16 IS2003237209 Hilda Bjarnarhöfn 119
17 IS2000237637 Alda Brautarholt 118
18 IS1999286133 Nótt Ármót 118
19 IS2000236512 Kyrrð Stangarholt 118
20 IS1995287138 Urður Sunnuhvoll 117
21 IS2001287660 Gráhildur Selfoss 116
22 IS1996286916 Surtsey Fet 116
23 IS1997266640 Hrauna Húsavík 116
24 IS2001287702 Spóla Syðri-Gegnishólar 116
25 IS2002265005 Esja Sól Litla-Brekka 116
26 IS1995286808 Tara Lækjarbotar 114
27 IS2000284556 Sveina Þúfa í Landeyjum 112
28 IS1994257379 Elding Hóll 112
29 IS2002287811 Jórún Blesastaðir 112
30 IS1995284672 Gáska Álfhólar 110
31 IS1992258442 Sending Enni 108
Hryssur - heiðursverðlaun 2020