Bændablaðið - 17.12.2020, Qupperneq 65
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2020 65
og skinaskil. Fætur eru útskeifir
að framan og nágengir að aftan.
Hófar eru efnisþykkir og prúðleiki
er í meðallagi. Afkvæmin eru flest
alhliðageng. Töltið er takthreint,
rúmt með góðum fótaburði,
brokkið öruggt og skrefmikið, og
skeiðið öruggt. Stökkið er hátt og
taktgott, fetið er taktgott en skortir
stundum skrefastærð. Surtsey frá
Feti gefur viljug og þjál hross sem
fara vel í reið með góðum fótaburði.
Hún hlýtur heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi og 22 sætið.
Hrauna frá Húsavík:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
116 stig
Ræktandi og eigandi:
Gísli Haraldsson
Faðir: Orri frá Þúfu í
Landeyjum
Móðir: Urð frá Hvassafelli
Umsögn um afkvæmi:
Hrauna frá Húsavík gefur stór
hross. Fríðleiki á höfuð er í
meðallagi. Hálsinn er reistur við
háar herðar en gætir hjartarháls.
Baklínan er nokkuð góð en bakið
getur verið mjótt. Afkvæmin eru
fótahá og léttbyggð, fætur hafa
öflugar sinar og svera liði en geta
verið nástæðir og réttleiki er í
meðallagi. Hófar eru efnisgóðir og
prúðleiki er góður. Afkvæmin eru
ýmist alhliðageng eða klárhross.
Töltið og brokkið er taktgott
með góðum fótaburði, stökkið er
teygjugott. Hrauna frá Húsavík
þjál hross sem fara vel í reið með
góðum fótaburði. Hún hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
23 sætið.
Spóla frá Syðri-Gegnishólum:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
116 stig
Ræktandi: Ólafur Jósefsson
Eigandi: Ólafur Jósefsson og
Austurás hestar ehf.
Faðir: Sjóli frá Dalbæ
Móðir: Drottning frá Sæfelli
Umsögn um afkvæmi:
Spóla frá Syðri-Gegnishólum gefur
hross í rúmu meðallagi að stærð.
Höfuð er svipgott og skarpleitt með
vel borin eyru. Hálsinn er reistur
og mjúkur við háar herðar, bakið
er breitt og vöðvafyllt og lendin
öflug. Afkvæmin eru hlutfallarétt
og fótahá, fætur er þurrir með góð
sinaskil, réttir en stundum nágengir.
Hófar eru sterkir með hvelfdan
botn en prúðleiki er slakur. Spóla
gefur virkjamikil ganghross, töltið
er takthreint, skrefmikið með
hárri fótlyftu og jafnvægisgott á
hægri ferð, brokkið er skrefmikið
en ferðlítið og stundum ójafnt
og skeiðið er skrefmikið en ekki
snarpt. Stökkið er teygjugott og
hátt og hæga stökkið takthreint.
Spóla gefur svipgóð, framfalleg
og myndarleg hross með mikla
skreflengd, þau eru samstarfsfús
og búa yfir háum hreyfingum.
Hún hlýtur heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi og 24 sætið.
Esja Sól frá Litlu-Brekku:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
116 stig
Ræktendur og eigendur:
Vignir Sigurðsson og Jónína
Garðarsdóttir
Faðir: Númi frá
Þóroddsstöðum - Móðir: Elja
frá Ytri-Hofdölum
Umsögn um afkvæmi:
Esja Sól gefur hross í meðallagi að
stærð. Höfuð hefur beina neflínu en
er ekki svipmikið. Hálsinn er langur
og grannur, fremur hátt settur en
mætti vera hvelfdari. Yfirlína í baki
er sterk og lendin öflug. Afkvæmin
eru jafnvægisgóð og langvaxin.
Fætur er þurrir og sterkir og geta
verið nágengir að framan. Hófar
eru efnisgóðir með hvelfdan
botn. Prúðleiki afkvæmanna er
misjafn. Esja Sól gefur afbragðs
alhliða hross. Töltið er taktgott,
rúmt og skrefmikið, brokkið er
taktgott og öruggt. Skeiðið liggur
vel fyrir þeim; jafnvægisgott,
sniðfast og ferðmikið. Stökkið er
rúmt en sviflítið og fetið taktgott.
Afkvæmin eru mjúk og fara vel
í reið, viljinn er góður og þjáll.
Esja Sól gefur reiðhestlega gerð,
takthrein og aðgengileg alhliða
hross. Hún hlýtur heiðursverðlaun
fyrir afkvæmi og 25 sætið.
Tara frá Lækjarbotnum:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
114 stig
Ræktandi: Jónína Hrönn
Þórðardóttir
Eigendur: Jónína Hrönn
Þórðardóttir og Torfunes ehf.
Faðir: Hrannar frá Kýrholti
Móðir: Emma frá Skarði
Umsögn um afkvæmi:
Tara frá Lækjarbotnum gefur
fremur stór hross. Fríðleiki á
höfuð er yfir meðallagi, hálsinn
er reistur við háar herðar. Yfirlína
í baki er nokkuð góð og lendin jöfn
og öflug. Samræmið er fremur
sívalt, fætur eru þurrir, nágengir
að aftan og gætir fléttings að
framan. Hófar hafa þykka hæla og
afkvæmin eru misprúð. Afkvæmi
Töru eru að stærstum hluta
klárhross með taktgóðu skrefmiklu
og lyftingargóðu tölti, brokkið er
rúmt og skrefmikið, stökkið hátt og
teygjugott og hæga stökkið mjög
gott en fetið í meðallagi. Tara frá
Lækjarbotnum gefur viljug og reist
hross með mjög góðum fótaburði.
Hún hlýtur heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi og 26 sætið.
Sveina frá Þúfu í Landeyjum:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
112 stig
Ræktandi: Guðni
Guðmundsson
Eigendur: Guðni Þ
Guðmundsson og Anna B.
Indriðadóttir
Faðir: Sveinn-Hervar frá Þúfu
í Landeyjum
Móðir: Dröfn frá Þúfu í
Landeyjum
Umsögn um afkvæmi:
Sveina frá Þúfu gefur hross í
rúmu meðallagi að stærð. Höfuðið
er skarpt, hálsinn er grannur og
langur. Bak og lend eru alla
jafna nokkuð vel vöðvafyllt og
samræmið hlutfallarétt. Fætur eru
í tæpu meðallagi og nágengir að
aftan. Hófar eru í góðu meðallagi
en prúðleiki góður. Afkvæmin eru
alhliðageng en skeiðgæðin í tæpu
meðallagi. Tölt og brokk er taktgott
með góðu skrefi. Stökk og fet er
takthreint. Sveina frá Þúfu gefur
þjál hross sem fara vel í reið með
góðum höfuðburði. Hún hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
27 sætið.
Elding frá Hóli:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
112 stig
Ræktandi: Bjarni H Jónsson
Eigandi: Þjórsárbakki
Faðir: Hrynjandi frá
Hrepphólum
Móðir: Glódís frá Skarðsá
Umsögn um afkvæmi:
Elding frá Hóli gefur stór hross.
Fríðleiki á höfuð er yfir meðallagi
með beina neflínu og stór augu,
hálsinn er reistur og langur við
háar herðar en getur verið djúpur.
Yfirlína í baki er góð, bakið er
breitt og lendin öflug. Afkvæmin
eru fótahá og alla jafna léttbyggð
með sívalan bol, fótagerð er
misjöfn, framfætur útskeifir og
afturfætur nágengir. Hófar eru
nokkuð efnisþykkir en prúðleiki
er í tæpu meðallagi. Afkvæmin
eru yfirleitt klárhross með tölti.
Töltið er takthreint, skrefmikið
og með góðri fótlyftu, brokkið
er skrefmið og greiða stökkið
hátt en fetgæðin misjöfn. Elding
frá Hóli gefur ásækin og vakandi
hross sem fara vel í reið, reist
með góðum fótaburði. Hún hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
28 sætið.
Jórún frá Blesastöðum:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
112 stig
Ræktandi: Sigurður R
Andrésson og Jóhanna
Haraldsdóttir
Eigandi: Magnús T
Svavarsson
Faðir: Sveinn-Hervar frá Þúfu
í Landeyjum
Móðir: Fjóla frá Haga
Umsögn um afkvæmi:
Jórún frá Blesastöðum gefur hross í
tæpu meðallagi að stærð. Höfuð er
skarpt og þurrt, hálsinn er mjúkur
við háar herðar, lendin er afar
öflug en yfirlína í baki mætti vera
sterkari. Afkvæmin eru hlutfallarétt
en mættu vera fótahærri. Fætur
eru þurrir en ekki veigamiklir og
nágengir að framan og aftan. Hófar
hafa þykka hæla og prúðleiki er í
rúmu meðallagi. Jórún gefur alla
jafna klárhross með tölti. Töltið
er takthreint og lyftingargott og
brokkið skrefmikið. Afkvæmin
stökkva af krafti, hafa þjálan og
góðan reiðvilja og góðan fótaburð.
Hún hlýtur heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi og 29 sætið.
Gáska frá Álfhólum:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
110 stig
Ræktandi og eigandi: Sigríður
S Valdimarsdóttir
Faðir: Gáski frá Hofsstöðum+
Móðir: Blíða frá Álfhólum
Umsögn um afkvæmi:
Gáska frá Álfhólum gefur hross í
tæpu meðallagi að stærð. Fríðleiki
á höfuð er í meðallagi, hálsinn er
hátt settur við háar herðar en ekki
fínlegur. Bakið er breitt og lendin
öflug en spjaldið getur verið stíft.
Afkvæmin er sívalvaxin. Fætur eru
þurrir með öflugar sinar og mikil
sinaskil; útskeifir að framan og ná-
gengir að aftan. Hófar hafa hvelf-
dan botn en prúðleiki er slakur.
Afkvæmin eru að uppistöðu klár-
hross með mjög góðu og hágengu
tölti, brokkið er takthreint, skref-
mikið og lyftingargott. Stökkið er
hátt og fetið taktgott en getur verið
skrefstutt. Gáska frá Álfhólum
gefur viljug og þjál hross sem fara
vel í reið með góðum höfuðburði
og miklum fótaburði. Hún hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
30 sætið.
Sending frá Enni:
Kynbótamat aðaleinkunnar,
108 stig
Ræktandi: Eindís
Kristjánsdóttir
Eigendur: Eindís
Kristjánsdóttir og Haraldur Þ
Jóhannsson
Faðir: Vörður frá Enni
Móðir: Ljóska frá Enni
Umsögn um afkvæmi:
Sending frá Enni gefur hross í
rúmu meðallagi að stærð. Fríðleiki
á höfuð er í meðallagi, hálsinn er
reistur og langur við háar herðar en
getur verið djúpur. Bakið er breitt
og vöðvafyllt og lendin öflug en
línan í bakinu getur verið svög.
Samræmið einkennist af góðri
fótahæð og sívölum bol, fætur
eru þurrir með öflugar sinar en
eru útskeifir að framan og eru
nágengir að framan og aftan. Hófar
er djúpir og efnisgóðir og prúðleiki
er góður. Afkvæmin eru yfirleitt
klárhross með tölti, töltið og
brokkið er takthreint, skrefmikið
og lyftingargott. Greiða stökkið
er teygjugott og hátt en fetið er
misjafnt. Sending frá Enni gefur
framfalleg, viljug og þjál hross
sem fara einkar vel í reið með
góðum höfuðburði og fótaburði.
Hún hlýtur heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi og 31 sætið.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Myrkva frá Torfunesi er með 122 stig í kynbótamati aðaleinkunnar.
Karitas frá Kommu er með 122 stig í kynbótamati aðaleinkunnar.
Storð frá Stuðlum er með 122 stig í kynbótamati aðaleinkunnar.
Háskólinn á Hólum auglýsir eftirfarandi reiðhesta til sölu:
1. Uni frá Hólum IS2013158300
2. Mar frá Hólum IS2009158306
Skrifleg tilboð þurfa að berast skrifstofu skólans í síðasta lagi
29. desember nk. Merkt: Háskólinn á Hólum, Guðmundur
Eyþórsson – tilboð í hross. Áskilinn er réttur til að hafna öllum
tilboðum. Frekari upplýsingar hjá sveinn@holar.is