Bændablaðið - 17.12.2020, Page 69
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2020 69
ÖXIN AGNES OG FRIÐRIK
Innilegar jólakveðjur sendi ég vinum mínum og þeim, sem
komu á sýninguna í Borgarnesi, eða fylgdu mér um söguslóðir,
akandi eða ríðandi.
Fögnum nýju, vonandi veirulausu ári.
Magnús á Sveinsstöðum
S. 898-5695 - mao@centrum.is
Búminjasafnið Lindabæ Skagafirði óskar
gestum, velunnurum og styrktaraðilum gleðilegra
jóla og farsældar á komandi ári.
Þakkar heimsóknir og gjafir á árinu.
Kveðja,
Sigmar og Helga
Kæru bændur, viðskiptavinir og samstarfsfólk.
Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.
Siggi, Eygló og bílstjórar hjá Mælivöllum ehf.
Gleðileg jól
og fars lt komandi ár
GLEÐILEGA HÁTÍÐ – VERKIN TALA
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is • velfang@velfang.isÓseyri 2 • 600 Akureyri •
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári
Við sérhæfum okkur í þinni starfsemi
Óskum bændum, búaliði og landsmönnum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Þökkum kærlega fyrir viðskiptin á liðnu ári
og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.
Stjórn og starfsfólk
Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins
Kæru bændur, vinir og ættingjar !
Guð gefi ykkur,
gleðileg jól og farsæld á komandi ári.
Bestu þakkir til viðskiptavina minna á árinu sem er að líða.
Og til ykkar sem ég ekki gat sinnt,
hjartans þakkir fyrir umburðarlyndi og skilning.
Megi árið 2021 færa ykkur öllum gæfu og frið.
Jólakveðja,
Ásta Veðramóti.
Hér er kominn gestur
Þórður Tómasson, fyrrum
safnstjóri Byggðasafnsins í
Skógum undir Eyjafjöllum,
segir í nýrri bók, sem heitir Hér
er kominn gestur, á
sinn einstæða hátt
frá ferðalögum
og gestakomum í
íslensku samfélagi allt
frá þjóðveldistíma
fram á öndverða 20.
öld.
Höfundur fjallar
um ferðabúnað,
ferðahætti, þjóðtrú
og þjóðhætti er snertu
ferðir fólks. Gestrisni
var mikils metin
fyrrum enda oft um
líf eða dauða að tefla
fyrir ferðamanninn.
Aðstæður voru þó
eðlilega misjafnar
þar sem knúið var dyra.
„Börn send á aðra bæi fögnuðu
því að jafnaði, áttu von að fá eitthvað
gott í munninn, flatköku, kandísmola
eða eitthvað annað góðgæti. Þetta
var af öllum vel séð og gleymdist að
þakka fyrir sig. Um þetta má segja
að lengi man til lítilla stunda. Það
var ekki klipið við nögl.
Geir Gíslason, bóndi í Gerðum
í Landeyjum,
sagði mér
frá sendiferð
s inn i á
annan bæ
er hann var
barn að aldri.
Vanaspurning
beið hans er
heim kom.
Hann svaraði:
„Ég fékk ekki
hland í skel og
klæjaði mig
þó svo mikið
í hökuna að ég
hélt að ég fengi
eitthvað gott.“
Útgefandi
er Sæmundur. Bókin er ríkulega
myndskreytt og Margrét
Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður
ritar formálsorð. /VH
BÆKUR&MENNING