Bændablaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 70
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202070
Myndin sem fylgir er úr nýlegri
ársskýrslu Orkustofnunar fyrir
árið 2019. Myndin sýnir kosti
smávirkjana fyrir nærumhverfið.
Þessi grein er skrifuð til að
upplýsa með hvaða hætti fjölgun
smávirkjana getur bætt lífskjör á
landsbyggðinni.
Stærsti galli við að flytja
orku langar leiðir, er vaxandi
flutningstöp. Því lengri leið, meiri
flutningstöp sem svo aftur rýrir
samkeppnishæfni fyrirtækja á
landsbyggðinni. Landsnet hefur
upplýst að raforkutöp þeirra árið
2019 hafi numið 2,2 milljörðum
árið 2019 og Landsnet þarf að kaupa
orku fyrir þessum töpum árlega eins
og aðrir dreifingaraðilar raforku.
Ég tel að raforkutöp á Íslandi
kunni að vera allt að 5 milljarðar
árlega og ég tek það fram að þetta
er ekki nefnt hér sem gagnrýni á
flutningsaðilaraforku. Þetta er nefnt
til að við getum fjallað opinberlega
um þessa heildarmynd og hvort við
eigum að minnka þessi raforkutöp
um t.d. 60% (3 milljarðar á ári)
3 milljarðar á ári í 30 ár er = 90
milljarðar. Það er ekkert lítið í
húfi! Kostnaður af raforkutöpum
lendir á neytendum sem „hækkun
á flutningskostnaði raforku“. Það er
því mikilvæg græn stefna að minnka
þessi raforkutöp
Besta leiðin til að minnka
raforkutöp hratt, er að fjölga
smávirkjunum hratt. Þegar
smávirkjunum fjölgar þá
„detta raforkutöp dauð“ og
flutningskostnaður raforku getur
þá lækkað.
Stjórnvöld geta stutt betur
við fjölgun smávirkjana á
landsbyggðinni t.d. með
lagabreytingu:
1. Aðili sem áformar smá virkj
un geti óskað eftir úttekt
ráðgjafarfyrirtækis um hver
séu raforkutöp í því tengivirki
raforku sem hann áformar að
tengjast.
2. Sami ráðgjafi geri jafn framt
áætlun um lækkuð raforku töp
þegar framleiðsla hefst.
3. Ávinningur af orkusparnaði
gæti skipst milli virkjunar og
flutningsaðila (t.d. 50/50).
4. Þegar ný virkjun tekur til
starfa er strax hægt að lækka
flutningskostnað raforku á
svæðinu.
5. Frekari styrkir til smávirkjana
gætu t.d. verið eins og gert
er í kvikmyndaiðnaði um
endurgreiðslu skatta o.fl.
Smávirkjanir eru græn verkefni.
Það kostar mikið að senda raforku
langar leiðir. Sex þrep í spennulækkun
kosta 3% tap í hverjum spennubreyti;
220 kV / 132 kV / 66 kV / 33 kV /
11 kV / og 380/220 volt til neyt enda.
3%x 6 gera samtals =18% raforkutöp.
Smávirkjanir sem tengjast beint 33
kV spennu eyða strax raforkutapi.
Þessir eru helstu kostir
smávirkjana:
• Minni flutningstöp
• Aukið raforkuöryggi í
viðkomandi dreifikerfi.
• Smávirkjanir eru græn verkefni
(spara orku)
• Um 80% kostnaðar við
byggingu nýrra smávirkjana
fer til verktaka/þjónustuaðila/
starfsmanna, á viðkomandi
landsvæði og eflir atvinnulíf á
svæðinu.
Svo er rétt að upplýsa að erlendir
staðlar gera ráð fyrir því að
orkuöryggi sé mikilvægasta atriði
við mat á þjóðaröryggi.
Kristinn Pétursson
LESENDABÁS
Afkoma bænda hefur heilt yfir
verið óviðunandi um árabil.
Staða sauðfjárbænda er sér
staklega alvarleg. Afurða verð
til bænda hefur lækkað á sama
tíma og kjöt afurða stöðvar
standa höllum fæti í samkeppni
við innfluttar kjötvörur. Afnám
frystiskyldu og breytingar
á tollaumhverfi með nýjum
samn ingum við ESB hafa á
skömmum tíma gjörbreytt sam
keppnis umhverfi fram leiðslu og
úrvinnslu kjötafurða á Íslandi.
Viðskiptafrelsi og heilbrigð
samkeppni eru af hinu góða og á
endanum eru það neytendur sem
velja hvaða matvæli þeir kaupa.
Þá snúast tollasamningar aðallega
um gagnkvæmni og ekki er hægt
að líta fram hjá þeim gríðarlega
ávinningi sem Íslendingar njóta
af tollfrjálsum viðskiptum með
sjávarafurðir og fleira. Það er því
brýnt að leitað verði skynsamlegra
leiða til að jafna samkeppnisstöðu
innlendrar matvælaframleiðslu og
ná fram hagræðingu í þágu bænda
og neytenda.
Samstarf og verkaskipting
afurðastöðva
Árið 2004 var veitt heimild
til samstarfs, sérhæfingar og
verkaskiptingar við mjólkur
vinnslu. Um er að ræða sérstakt
ákvæði í búvörulögum um
undanþágu frá ákvæðum
samkeppnislaga. Ávinningurinn
af þeirri breytingu hefur verið
umtalsverður og skilað sér
bæði til neytenda og bænda.
Töluverður framleiðnivöxtur á
ári hverju hefur náðst fram og
hefur vöxturinn verið vel umfram
meðaltal annarra atvinnuvega
á sama tímabili. Auk hærra
afurðaverðs til bænda og lægra
raunverðs til neytenda hefur
hagræðingin skilað auknum
fjárfestingum í greininni og betri
nýtingu aukaafurða.
Tímabært er að afurðastöðvar í
kjötiðnaði geti með sambærilegum
hætti hagrætt í sinni starfsemi
með það fyrir augum að draga
úr kostnaði við framleiðslu. Það
opnar enn fremur á möguleikann
á frekari fjárfestingum til að
auka framleiðni og virði afurða.
Með hagkvæmari afurðastöðvum
og svigrúmi til fjárfestinga
skapast frekari grundvöllur fyrir
nýsköpun, vöruþróun og aðrar
markaðsnýjungar. Ávinningurinn
mun skila sér bæði til neytenda
og bænda.
Samstarf og verkaskipting
á þessu sviði getur jafnframt
stutt við frekari framþróun í
heimaslátrun og markaðslausnum
eins og Beint frá býli þar sem
minni einingar stækka markaðinn
og eru sveigjanlegri í innleiðingu
tækni og markaðsnýjunga.
Íslenskrar kjötafurðastöðvar
munu seint ná sambærilegri
stærðarhagkvæmni og stór
sláturhús í Evrópu. Framleiðslu
magnið er of lítið hér á landi. En
það dregur fram nauðsyn þess að
nýta þau tækifæri til hagræðingar
sem eru til staðar þannig að
innlend framleiðsla og úrvinnsla
kjötafurða eigi betri möguleika á
að standast samkeppni erlendis
frá.
Ójöfn samkeppnisskilyrði
Í flóknu landbúnaðarkerfi ESB er
finna margs konar undanþágur
frá samkeppnisreglum. Ein
þeirra er að afurðastöðvar geta
samstillt aðgerðir í framleiðslu
og sölu landbúnaðarafurða
og þannig hagrætt til að bæta
kjör bænda og neytenda.
Að auki hefur ESB gripið til
víðtækra stuðningsaðgerða við
landbúnað í aðildarlöndunum
vegna þess ástands sem
ríkir vegna COVID19
heimsfaraldursins. Er bæði um
að ræða almennar aðgerðir en
einnig sértækar sem fela meðal
annars í sér frekari undanþágur
frá samkeppnisreglum ESB
tímabundið í 6 mánuði vegna
framleiðslu mjólkurvara, blóma
og kartaflna. Það er gert til að
vernda þær greinar sem hafa
orðið fyrir mestu áhrifum af
faraldrinum.
Sama er upp á teningnum í
Noregi þar sem landbúnaðurinn
býr við mun hagstæðari
samkeppnisskilyrði en sá íslenski.
Þar í landi er til að mynda
að finna almenna undanþágu
í samkeppnislöggjöfinni
fyrir afurðastöðvar en hér er
undanþágan eingöngu fyrir
mjólkuriðnaðinn.
Áhersla á nýsköpun og
matvælaframleiðslu
Íslenskur landbúnaður er
mikilvægur og sérstaða hans
ótvíræð. Heilnæmi fram leiðsl
unnar og hreinleiki náttúr
unnar eru eftirsótt gæði. Þrátt
fyrir erfið umhverfisskilyrði
á norðlægri breiddargráðu eru
tækifæri íslenskrar matvæla
framleiðslu til aukinnar
verðmætasköpunar fjölmörg.
Stefna Sjálfstæðisflokksins er að
styðja við þá sérstöðu og nýta
sóknarfærin til fulls á grundvelli
einkaframtaks og frelsis til
athafna. Það rímar vel við þá
stefnu að draga úr tilkostnaði í
framleiðslunni og gæta að því að
regluverkið hamli ekki nýsköpun
og framþróun innan greinarinnar.
Ríkisstjórnin samþykkti í
haust aðgerðir til að stuðla að
félagslegum og efnahagslegum
stöðugleika í tengslum við
forsendur Lífskjarasamningsins.
Eitt af því er að kanna sérstaklega
hagkvæmni og skilvirkni í
matvælaframleiðslu. Vel færi
á því að landbúnaðarráðherra
fylgdi þeim áherslum eftir svo
bæði bændur og neytendur fái
notið góðs af. Það gæfi líka nýrri
matvælastefnu ríkisstjórnarinnar
fljúgandi start.
Teitur Björn Einarsson
1. varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi
Fjölgum smávirkjunum
Kristinn Pétursson.
Skynsamleg hagræðing
Teitur Björn Einarsson.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
BÆKUR& MENNING
Kóngsríkið
Bræðurnir Roy og Carl Opdal
alast upp við erfiðar aðstæður í
afskekktu norsku þorpi, þar sem
hnefarétturinn ræður. Carl verður
fyrir skelfilegu ofbeldi og flýr á
endanum fortíð sína. Roy verður
eftir, býr einn í húsi foreldranna
og gerir við bíla. Tuttugu árum
seinna birtist Carl aftur með
glæsilega eiginkonu og háfleygar
áætlanir um hótelrekstur.
Koma hans hristir rækilega upp
í kyrrlátu lífi þorpsbúa og gamlar
væringar og fólskuverk leita upp
á yfirborðið. Voveifleg dauðsföll
kallast á við löngu liðna atburði
og spennan verður óbærileg fyrir
Roy; hann þarf að velja
á milli bróður síns og
framtíðarinnar sem hann
dreymir um.
Enginn stenst Jo Nesbø
snúning þegar kemur
að þéttum, snúnum og
óvæntum fléttum enda
hafa bækur hans farið
sigurför um heiminn. Hér
er enginn Harry Hole –
en allt annað er til staðar
og lesendur verða ekki
sviknir.
Útgefandi er JPV
og þýðandi er Bjarni
Gunnarsson.